Tölvumál


Tölvumál - 01.11.2005, Side 31

Tölvumál - 01.11.2005, Side 31
Tölvuleikir Tölvumál 31 Að auki spilar efnis- hyggjan stórt hlutverk í EVE; leikmenn þurfa að útvega peninga til að auka veldi sitt og vægi. Fjölþátttökuleikur eins og EVE hefur engan eiginlegan endi. Jafnvel þótt leikmenn hafi mikið frelsi í því sem þeir vilja taka sér fyrir hendur verða þeir jafnframt að sýna ábyrgð, gamla heiminum dóu margar þeirra út á meðan aðrar týndu niður verulegum hluta tækniþekkingar gamla heimsins. Þetta tímabil hnignunar stóð yfir í þúsundir ára. Smám saman tókst fimm nýlendum að vinna sig upp á það tæknistig að geta ferð- ast um geiminn á ný. Þessi upprisa mann- legs samfélags er gjarnan nefnd hið nýja upphaf. Þessi tímapunktur er sögusvið EVE. Þegar nýr leikmaður byrjar að spila EVE, byrjar hann á því að velja sér það menn- ingarsamfélag sem hann vill að persóna sín tilheyri. Hann getur valið fjögur þeirra: Amarr, Gallente, Caldari eða Minmatar; hið fimmta, Jove, geta leikmenn ekki val- ið. Þegar menningarsamfélag hefur verið valið byrjar leikurinn á geimstöð sem er undir stjórn þess menningarsamfélags. Þar kaupir hann sér geimskip og tekur til við að fljúga um geiminn, kaupandi og selj- andi vörur, vinnandi málm og önnur auð- æfi úr loftsteinum og hugsanlega ráðast á aðra leikmenn og ræna þá. Takmark leikmanna er að þjálfa per- sónu sína og gera hana hæfari til að at- hafna sig í leiknum. Að auki spilar efnis- hyggjan stórt hlutverk í EVE; leikmenn þurfa að útvega peninga til að auka veldi sitt og vægi. Leikmenn geta síðan stofnað með sér félög sem berjast saman að sam- eiginlegum markmiðum. Þessi félög geta í krafti stærðar sinnar rekið margfalt öflugri efnahagsstefnu en einstaklingar. Til dæmis geta þau keypt heilu pláneturnar í því skyni að stunda þar stórvirka námuvinnslu og hergagnaframleiðslu. Fjölþátttökuleikur eins og EVE hefur engan eiginlegan endi. Heimurinn mallar allan sólarhringinn óháð því hvort einstak- ir leikmenn eru tengdir honum eða ekki. Þessi staðreynd hefur áhrif á ýmis grund- vallaratriði spilamennsku í EVE fram yfir hefðbundna tölvuleiki. Þannig þurfa leik- menn sjálfir að setja sér persónuleg mark- mið í leiknum og heimurinn snýst ekki í kringum þá líkt og í venjulegum tölvu- leikjum. Jafnvel þótt leikmenn hafi mikið frelsi í því sem þeir vilja taka sér fyrir hendur verða þeir jafnframt að sýna ábyrgð, þar sem öllum aðgerðum fylgja afleiðingar. Þannig getur leikmaður ráðist á annan leikmann og jafnvel drepið hann en með því kallar hann yfir sig mögulegar refsiaðgerðir sem geta verið mjög harka- legar. Þar sem leikmenn hafa eytt tugum eða hundruðum klukkustunda í að þjálfa persónur sínar upp er þeim annt um að persónurnar haldi stöðu sinni og virðingu í leiknum og verði ekki brennimerktar sem níðingar. Þetta leiðir til þess að menn sýna sanna samfélagslega ábyrgðartilfinningu

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.