Tölvumál - 01.11.2005, Blaðsíða 8
Orðanefnd
8 Tölvumál
stöðvar. Í kjölfar þess styrks fékkst síðan
rausnarlegur styrkur frá menntamálaráðu-
neytinu. Vorið 2004 fannst nefndarmönn-
um viðbótin orðin það mikil að rétt væri að
gefa verkið einnig út sem prentaða bók auk
þess að koma því fyrir í orðabankanum. Þá
var hafist handa við að afla styrkja frá fyr-
irtækjum og stofnunum til þess að greiða
kostnað við útgáfuna. Í ljós kom þá eins og
áður að orðanefndin á víða hauka í horni.
Skýrslutæknifélagið sjálft styrkti einnig út-
gáfuna. Ég vil nota þetta tækifæri til þess
að þakka öllum sem tóku kvabbi mínu um
fjárframlög af ljúfmennsku og gerðu okkur
kleift að ljúka þessu verki. Allra styrkveit-
enda er getið í bókinni.
Þegar undirbúningur hófst fyrir þessa
útgáfu leitaði nefndin til félagsmanna í
Skýrslutæknifélaginu og annarra áhuga-
manna um tölvutækni um samvinnu við
endurskoðun orðasafnsins. Vinnugögn
nefndarinnar voru gerð aðgengileg á vef-
setri nefndarinnar og áhugamenn um orða-
forða tölvutækninnar hvattir til þess að
koma athugasemdum á framfæri við
nefndina. Ekki bárust margar athugasemd-
ir en ýmsir munu hafa notað vinnugögnin
til þess að finna heiti á hugtökum sem ekki
höfðu þegar fengið íslenskt heiti. Morgun-
blaðið veitti aðgang að orða- og hugtaka-
lista á vef sínum mbl.is, SKÝRR veitti að-
gang að orðalista sem varð til við þýðingu
á Oracle-hugbúnaði og Gísli Hjálmtýsson
prófessor við Háskólann í Reykjavík lagði
til orðalista um netkerfi og netþjónustu.
Allir þessi orðalistar voru notaðir við end-
urskoðun orðasafnsins og þakkar nefndin
þeim sem veittu aðgang að þeim.
Orðanefndin hefur eins og áður leitað
til ýmissa sérfræðinga sem hafa veitt góð
ráð og lesið yfir einstaka kafla orðasafns-
ins. Sérstaklega ber að geta Jóhanns
Gunnarssonar og Arnalds Axfjörð sem
lásu yfir kafla um tölvu- og gagnaöryggi
og veittu aðgang að vinnugögnum sínum.
Maríus Ólafsson las yfir kafla um orða-
forða sem tengist lýðneti og veraldarvef
og veitti ráð bæði um orðanotkun og skil-
greiningar. Magnús Gíslason svaraði
spurningum um ýmis svið tölvutækninnar
eins og hann hefur gert við allar fyrri út-
gáfur Tölvuorðasafns. Orðanefndin þakk-
ar þessum mönnum fyrir veitta aðstoð.
Einnig vill nefndin þakka þeim fjölmörgu
sem hafa hringt eða skrifað og lagt fram
fyrirspurnir um orðanotkun en þær hafa
oft orðið til þess að nefndin hefur endur-
skoðað heiti sem þegar voru til eða fundið
heiti fyrir ný hugtök.
Í þetta sinn hefur nefndin fengið Hið ís-
lenska bókmenntafélag til liðs við sig til
þess að gefa verkið út. Er það mjög við-
eigandi þar sem Bókmenntafélagið stóð
einnig að fyrstu útgáfunni ásamt Íslenskri
málnefnd. Það má því segja að hringnum
sé lokað. Ég vil þakka forsvarsmönnum
Bókmenntafélagsins fyrir mjög ánægju-
lega samvinnu, sérstaklega framkvæmda-
stjóranum Gunnari Ingimundarsyni.
Orðanefndin hélt fundi sína í Íslenskri
málstöð frá því að málstöðin tók til starfa í
byrjun árs 1985 þangað til haustið 2002
og Íslensk málnefnd gaf Tölvuorðasafn út
í 2. og 3. útgáfu. Orðanefndin og Skýrslu-
tæknifélagið færa Íslenskri málnefnd og
málstöðinni þakkir fyrir aðstoð og góða
samvinnu. Frá hausti 2002 hefur orða-
nefndin haldið fundi sína í húsnæði Ný-
herja að Borgartúni 37. Orðanefndin
þakkar fyrir afnot af þeirri aðstöðu og gott
viðmót starfsfólks Nýherja.
Í þremur fyrstu útgáfum Tölvuorða-
safns var einkum stuðst við skrá frá Al-
þjóðlegu staðlasamtökunum og Alþjóð-
lega raftækniráðinu. Hún heitir nú In-
formation Technology - Vocabulary
ISO/IEC 2382. Staðlaráð Íslands, sem er
aðili að þessum stofnunum fyrir Íslands
hönd og hefur jafnframt einkaumboð fyrir
þær á Íslandi, hefur góðfúslega leyft notk-
un þessa rits.
Tölvuorðasafn hefur verið aðgengilegt í
orðabanka Íslenskrar málstöðvar frá því
hann var opnaður hinn 15. nóvember 1997
á veraldarvef lýðnetsins. Í fyrstu var sett
inn bráðabirgðaútgáfa þriðju útgáfu
Tölvuorðasafns en í febrúar 1998 endan-
leg gerð þriðju útgáfunnar. Eins og þegar
hefur komið fram er nú unnið við að end-
urnýja hugbúnað orðabankans. Ráðgert er
að fjórða útgáfa Tölvuorðasafns verði sett
í orðabankann þegar þeirri endurskoðun er
lokið.
Það er von orðanefndarmanna að þessi
nýja bók muni nýtast tölvunotendum í
þeirri viðleitni að fjalla um hugðarefni sín
á vandaðri íslensku. Markmið frumkvöðla
Skýrslutæknifélagsins og þeirra sem hafa