Tölvumál - 01.11.2005, Blaðsíða 36
Útrás í UT
EMCO með 3000 viðskiptavini í
70 löndum
Viðtal við Þórarinn Óskarsson, framkvæmdastjóra Emco
Halldóra Matthíasdóttir
36 Tölvumál
Fyrirtækið hefur um
3000 viðskiptavini á
skrá um allan heim
Emco ehf. er fyrirtæki sem sérhæfirsig í hugbúnaðarþróun fyrir kerfis-stjóra og var stofnað árið 2001.
Stofnendur Emco eru Emil Þór Jónsson og
Þórarinn Óskarsson.
Frumkvöðullinn var Emil Þór Jónsson
sem hóf forritaþróun í ársbyrjun 2000, 24
ára gamall en 6 mánuðum síðar kom Þór-
arinn til samstarfs með fjármagn til áfram-
haldandi þróunar, því hann hafði fulla trú
á þessum unga systursyni sínum. Í mars
2001 var EMCO svo stofnað og salan
hófst á netinu í nóvember sama ár.
Emil Þór Jónsson starfaði sem kerfis-
stjóri hjá VÍS frá 1998 til 2004. Hann
starfaði fyrir og byggði upp Emco með
Þórarni ásamt því að sinna fullu starfi hjá
VÍS en ákvað fyrir rúmu ári síðan að ein-
blína á hugbúnaðarþróun hjá Emco.
Þórarinn er rafeindavirki að mennt og
hefur starfað sem slíkur hjá Símanum frá
árinu 1966. Árið 1977 bauðst honum að
taka þátt í tölvuvæðingu símaskrárinnar
undir stjórn Ara Arnalds verkfræðings sem
síðar stofnaði VKS ásamt Friðriki Mart-
einsyni og hefur Þórarinn síðan þá verið
kerfisstjóri hjá Símanum og hjá Anza eftir
að tölvudeild Símans var flutt út fyrir fyr-
irtækið, en hann lét af störfum þar í byrjun
sumars og hóf fullt starf hjá Emco sem er
sívaxandi fyrirtæki.
Emco selur hugbúnaðarlausnir sínar á
vefversluninni http://emco.is og einnig
með milligöngu endursölu- eða umboðs-
aðila víða um heiminn. Ásamt Emil sinna
erlendir verktakar í Kanada, Pakistan,
Úkraínu og Nýja Sjálandi forritun og ým-
iss konar textavinnu. Emil stýrir verkefn-
um sem eru í gangi hverju sinni en Þórar-
inn er meira í sölu og markaðsmálum.
Fyrirtækið hefur um 3000 viðskiptavini
á skrá um allan heim en meðal viðskipta-
vina erlendis eru Boeing flugvélaframleið-
andinn, Hewlett-
Packard og Xer-
ox. Meðal við-
skiptavina innan-
lands eru Síminn,
VÍS, deCode og
Eimskip. 60%
viðskiptavina eru
í Bandaríkjum
Norður Ameríku.
Þá er ótalið fjöldi
niðurhala á
ókeypis hugbún-
aði frá fyrirtæk-
inu, sem eru um
1000 niðurhaln-
ingar á hverjum
degi.
Um rúmlega
tveggja ára skeið veitti Dr. Jón Þór Þór-
hallson stofnandi og stjórnarformaður
ECP International http://www.ecpint.com
EMCO markaðsráðgjöf sem styrkt var af
Útflutningsráði.
Vöruframboð
Hugbúnaðarlausnir Emco miða að því að
spara kerfisstjórum í fyrirtækjum vinnu.
Fyrirtækið framleiðir rúmlega 30 mismun-
andi hugbúnaðarpakka og hér á eftir eru
nokkrir þeir helstu.
Network Inventory
Hugbúnaðurinn Network Inventory er
þekktasta vara Emco. Um er að ræða hug-
búnað sem safnar saman upplýsingum frá