Tölvumál - 01.11.2005, Blaðsíða 37
Útrás í UT
Tölvumál 37
öllum vélum af innra neti fyrirtækis, til að
mynda uppsettan hugbúnað og stýrikerfi.
Hugbúnaðurinn einfaldar utanumhald á
leyfum, vélbúnaði og þess háttar. Verðið á
hugbúnaðinum er háð fjölda útstöðva.
Hugbúnaðinn er hægt að setja upp á einni
vél, en má líka setja upp á fleiri vélar.
Emil segir aðal kostinn við hugbúnað-
inn vera þann að kerfisstjórinn sér á einum
stað allt netið og Þórarinn bætir við:
,,Hugbúnaðurinn sér allar vélarnar sjálfur,
þ.e. finnur þær allar. Ekki þarf að setja inn
neinn endahugbúnað á útstöðvarnar.”
Network Malware Cleaner
Network Malware Cleaner er hugbúnaður
sem vinnur með vírusvörnum að því að
hreinsa óæskilegar skrár og forrit úr tölvu-
kerfum. Hugbúnaðurinn, sem keyrir frá
miðlægri vél, leitar að óæskilegum skrám
og flytur í einskonar sóttkví. Einnig til-
kynnir hugbúnaðurinn þegar hann finnur
vélar sem eru án vírusvarna. Hugbúnaður-
inn er mjög hraðvirkur og þarfnast ekki
uppsetningar á hverja útstöð sem er eins-
dæmi með slíkan hugbúnað. Þá getur kerf-
isstjórinn í hverju fyrirtæki stillt hugbún-
aðinn til og þannig stjórnað að hverju er
leitað og hvað sé hreinsað eða flutt í sótt-
kví. Í dag leitar hugbúnaðurinn í gagna-
grunni með 7900 auðkennum og getur
hreinsað út 40.879 atriði á bak við hvert
þeirra.
Malware Destroyer
Emco dreifir ókeypis útgáfu af Malware
Cleaner sem heitir Malware Destroyer og
er hannað fyrir einmenningstölvur eða
heimatölvur. Emco Malware Destroyer er
dreift m.a. á vefnum Download.com,
Tucows.com og Snapfiles.com.
Remote Desktop Professional
Hugbúnaðurinn Remote Desktop Pro-
fessional er notaður til þess að yfirtaka
vélar og framkvæma þjónustur á þær. For-
ritið safnar að auki mikið af upplýsingum
um vél- og hugbúnað á vélunum.