Tölvumál - 01.11.2005, Blaðsíða 33
Tölvuleikir
Tölvumál 33
CCP hefur eytt mikl-
um tíma í það gera
leikjakerfið þannig úr
garði að það sé ekki
hægt að hafa telj-
andi áhrif á hermun
heimsins með því að
fikta í biðlaranum.
lyklaborðsflýtilykla eða hæfileika þeirra í
að beita músinni til þess að halda óvinin-
um í sigtinu. Þetta gerir það að verkum að
bardagar í EVE eru framákvarðanlegir (e.
deterministic), upp að vissu marki. Leik-
maðurinn stýrir einu skipi, en hefur mörg
vopna- og varnakerfi á skipinu. Leikmað-
urinn getur verið í bardaga við marga
óvini samtímis og þarf að stilla varnakerfi
sín í samræmi við það hvernig andstæð-
ingar hans stilla árásarkerfi sín.
Sú staðreynd að bardagar í EVE eru
framákvarðanlegir, hafandi upplýsingar
um allar forsendur, þýðir að miðlarinn
þarf aðeins að senda biðlaranum upphafs-
stöðu bardagans. Svo lengi sem að staða
kerfisins breytist ekki (leikmenn sem í
bardaga eiga, breyta ekki stillingu kerfa
sinna) getur biðlarinn framreiknað at-
burðarásina. Biðlarinn getur jafnframt
framkallað grafískar sjónhverfingar til
þess að gera atburðarásina enn áhugaverð-
ari, án þess að þurfa að ráðfæra sig við
miðlarann. Þetta gerir það að verkum að
samskipti á milli biðlara og miðlara eru
margfalt minni en ella.
Það að láta biðlarann sjálfan taka
ákvarðanir um niðurstöður aðgerða leik-
mannsins og senda miðlaranum niðurstöð-
urnar, svo að hann geti látið aðra biðlara
vita, er því miður ekki mögulegt. Það væri
þó mjög tæknilega þægileg leið til þess að
minnka samskipti biðlara og miðlara. Sök-
um eðlis fjölþátttökuleikja þá eyða menn
oft á tíðum löngum tíma í að spila þá og
löngunin til þess að stytta sér leið, með
því að svindla verður sífellt sterkari eftir
því sem á líður. Vegna þessa þarf að gera
ráð fyrir því að biðlarinn ljúgi stanslaust
og haga miðlaranum og leikjakerfinu
þannig að það hafi ekki áhrif á árangur
leikmannsins.
Ef biðlaranum eru gefin völd með því
að leyfa honum að ákvarða, þó að það
væri ekki nema lítinn part af hermuninni,
er alveg sama hve vel er vandað til verks-
ins. Það er ekki hægt að halda í við 60.000
ákafa spilara sem hafa nokkur ár til þess
að nota ýmis aflúsunar- og minnisskoðun-
artól til þess að nýta sér ákvörðunareigin-
leika biðlarans til þess að koma sér áfram í
leiknum á óheiðarlegan hátt.
CCP hefur eytt miklum tíma í það gera
leikjakerfið þannig úr garði að það sé ekki
hægt að hafa teljandi áhrif á hermun
heimsins með því að fikta í biðlaranum.
Miðlarinn sér um alla ákvörðunartöku og
biðlarinn sér svo til einungis um að sýna
grafík og framreikna atburðarás eftir upp-
lýsingum frá miðlaranum, ásamt því að
láta miðlarann vita um ákvarðanir leik-
mannsins. Eftir situr að það eina sem gerir