Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015 KANARÍ – Enska ströndin tvær vikur (17. nóv. – 2. des.) frá 89.900 kr. á mann m.v. tvo fullorðna og eitt barn. PLÚS Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Maður á að nota tímann vel og vera glaður og hress. Og ánægður með líf- ið,“ segir Guðný Jóna Þorbjörns- dóttir sem er 100 ára í dag. Það leikur enginn vafi á því að Guðný hefur lifað eftir þessu lífsmottói. Hún er eld- hress og tekur glaðlega á móti blaða- manni með hlýju handabandi sem ylj- ar inn í hjarta. Guðný lætur vel af sér og segist vera „sæmilega hress“. Hún hugsar um heilsuna og hreyfir sig reglulega. Hún hefur aðeins tapað sjón en ekki mikilli heyrn og spjallar um heima og geima. Hún fylgist vel með öllum af- komendum sem eru orðnir 107 talsins og eru búsettir víða um heim. Meðan á viðtalinu stendur spyr Guðný dótt- ur sína Jórunni, sem einnig er heima, hvort Helen sé enn í Argentínu. Þau svör fást að hún sé á leiðinni heim og lendi víst í dag. Prjónar og heklar Guðný er alltaf með eitthvað á prjónunum og lauk nýverið við að hekla barnateppi. Það verður fyrir langömmubarn sem er væntanlegt í janúar. Það leikur allt í höndunum á henni en fjöldi málverka og teikninga prýða heimili hennar. Þegar hún var komin yfir sjötugt þá hóf hún nám við Myndlistarskólann. Í sumar fór hún í veiði á Stöðvar- firði þar sem hún fæddist og bjó um áratuga skeið. „Ég veiddi tvær fínar bleikjur,“ segir Guðný sem þykir allt- af gaman að veiða. Hún fer á hverju sumri í veiði og hefur gert síðustu ár, oftast með börnum sínum sem einnig eru með veiðibakteríuna. Hún segist þó ekki vera mikil aflakló, þegar hún er spurð. Þegar hún var níræð veiddi hún stærsta lax sem hafði veiðst í Stöðvará í Stöðvarfirði. „Ég veit það ekki. Ég hef unnið mikið. Ég hef verið hamingjusöm og á góð börn. Lífið hefur verið gott,“ svara Guðný þegar hún er spurð hverju hún megi þakka langlífið. Guðný fékkst við ýmis störf um ævina, starfaði á matstofu, stofnaði saumastofu, saltaði síld á Siglufirði og sinnti bústörfum og barnauppeldi svo fátt eitt sé nefnt. „Ég ætla að fylgja þér til dyra. Þú mátt ekki fara með vitið úr bænum. Það litla sem eftir er,“ segir Guðný og brosir þegar við kveðjumst. Það er einstök hlýja og þakklæti sem fylgir þessari fallegu konu, ætli það sé ekki lykillinn að löngu lífi. Guðný fæddist 12. september árið 1915 á Grund í Stöðvarfirði í Stöðv- arhreppi í Suður-Múlasýslu, dóttir Þorbjörns Stefánssonar úr Stöðv- arfirði og Jórunnar Jónsdóttur af Mýrum. Systkini Guðnýjar voru þrjú. Þegar Guðný var 15 ára gömul flutti hún til Reykjavíkur og starfaði þá í matsölu hjá frænku sinni í Hafn- arstræti 18. Þar kynntist hún fyrri eiginmanni sínum Ingimari Sölvasyni loftskeytamanni. Saman eignuðust þau einn son. Ingimar fórst með togaranum Braga við England haust- ið 1940. Síðari maður Guðnýjar var Jóhannes Ásbjörnsson rennismiður í Reykjavík og á Akureyri og síðar bóndi í Stöðvarfirði, en hann lést árið 2005. Börn þeirra eru sex. Þau hjónin bjuggu á Stöð frá 1958 til 1988 og voru um tíma með afurðahæsta kúabúið á Austurlandi. Maður á vera glaður og hress  Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir er 100 ára í dag  Þakklæti og lífsgleði einkennir þessa miklu veiði- konu sem rennir fyrir fisk á hverju sumri  Heilsuhraust og hugsar um heilsuna sem er mikilvægt Morgunblaðið/Golli Hress og kát Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir 100 ára við eitt málverkanna sem hún hefur málað af mikilli natni. Veiði Í sumar fór hún í veiði í Stöðv- ará við Stöðvarfjörð. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Framkvæmdir eru að fara af stað við þrjá turna í Túnunum í Reykjavík og er byggingarkostnaður ekki undir 12 milljörðum króna. Hluti húsnæð- isins er þegar kominn í útleigu. Áformað er að hefja framkvæmdir við 8 hæða fjölbýlishús í Mánatúni í Reykjavík í október. Framkvæmdin þéttir byggð á þessu eftirsótta svæði Það er verktakafyrirtækið Dverg- hamrar sem byggir húsið. Það verð- ur 8 hæðir og með 34 íbúðum. Fimm íbúðir verða á hverri hæð á fyrstu 6 hæðunum en á 7. og 8. hæð verða tvær stærri íbúðir, alls fjórar íbúðir. Húsið mun tengjast bílakjallara sem fyrir er á lóðinni. Umsókn um fram- kvæmdina bíður afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa í Reykjavík. Fram kemur í umsókninni að svo- nefnd A-rými í húsinu verði 4.300 fermetrar. Miðað við að ferm. á svæðinu kosti 375 þús. ætti að kosta um 1,6 milljarða að byggja húsið. Guðmundur R. Guðmundsson húsasmiður er annar eigenda Dverghamra. Hann segir Mánatún 1 verða tilbúið vorið 2017 ef allt geng- ur að óskum. „Þetta verða að mestu leyti tveggja og þriggja herbergja íbúðir og þær verða minni en al- mennt gerist á svæðinu.“ Höfðatorgsreitur byggður upp Skammt frá eru að hefjast miklar framkvæmdir á Höfðatorgsreitnum. Félagið Höfðatorg hefur þannig sótt um leyfi hjá byggingarfulltrúa í Reykjavík til að byggja 12 hæða fjöl- býlishús með 94 íbúðum í Bríetar- túni. Verður turninn við hlið Foss- hótelsturnsins sem var tekinn í notkun í júní í sumar. Þá hefur ann- að félag, Höfðavík, sótt um leyfi til að byggja 7-9 hæða verslunar- og skrifstofuhús, auk kjallara á þremur hæðum og tengibyggingu yfir í H1, hæstu bygginguna á reitnum. Bæði félögin tengjast Eykt. Pétur Guðmundsson, forstjóri Eyktar, segir þegar samið um leigu á þremur hæðum í fyrirhuguðum skrifstofuturni. Hann áætlar að samanlagður kostnaður við íbúða- og skrifstofuturninn sé á annan tug milljarða. Verklok við skrif- stofuturninn séu áformuð haustið 2017 og verklok við íbúðaturninn í lok árs 2017, eða um vorið 2018. Pálmar Kristmundsson, arkitekt hjá PK arkitektum, hannar húsin. Þegar þessu lýkur verður einn áfangi eftir í uppbyggingu Höfða- torgsreitsins. Sá mun kalla á niður- rif núverandi húsnæðis WOW Air, á horni Bríetartúns og Katrínartúns. Bygging þriggja turna í Túnunum að hefjast  Kostar 12 milljarða  3 hæðir leigðar út í óbyggðu húsi Teikning/PK-arkitektar Höfðatorg Svona leit fyrirhugaður íbúðaturn út í fyrri drögum. Teikning/Kanon-arkitektar Mánatún 1 Stórar íbúðir verða á efstu tveimur hæðum hússins. Ásmundur Einar Daðason, þingmað- ur Framsóknarflokksins, hefur ósk- að eftir því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri verði kallaður inn á fund fjárlaganefndar Alþingis eftir að borgarstjóri sagði í vikulegu bréfi sínu að sanngjarnt væri að sveitar- félög fengju hlutdeild í vextinum sem þau ættu snaran þátt í að skapa. Ásmundur segir að rekstrarvandi borgarinnar hafi verið mikið til um- ræðu að undanförnu og eftir að borg- arstjóri tjáði sig opinberlega um fjárlögin þá væri gott að fá hann inn á fundinn til þess að vita hvernig rík- isvaldið beri ábyrgð á vandan- um. Vigdís Hauks- dóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir sjálfsagt að verða við bón Ásmund- ar. „Sérstaklega í ljósi orða borgar- stjórans að rekst- ur borgarinnar sé með þeim hætti að það sé torvelt að reka borgina án þess að ríkið komi þar að.“ Vill borgarstjóra fyrir fjárlaganefnd  Nefndarformaður tekur vel í beiðnina Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.