Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
Fyrstu áskriftartónleikarsinfóníuvetrarins 2015-16 fóru fram s.l. fimmtu-dagskvöld við góða að-
sókn eða ríflega 80% sætanýtingu.
Að þessu sinni innan vébanda gulu
tónleikaraðarinnar svonefndu –
„afbragðskostur fyrir þá sem vilja
heyra fjölbreytilega klassíska tón-
list með fjölda einleikara og söngv-
ara“ svo vitnað sé í skilgreiningu
tónleikaraða á vef SÍ.
Hversu langt eða skammt sú
nær er vitaskuld túlkunaratriði.
En hvað heildarframboð fyrra
vetrarmisseris varðar virðist
manni í fljótu bragði nokkuð ljóst
að sízt er nú leitað lengra fanga en
gert var í fyrra. Hvorki eftir sjald-
heyrðri klassík né að nýrri list-
tónsköpun, að undanskildu nýju
verki eftir staðartónskáldið Daníel
Bjarnason n.k. 26. nóvember.
Sumum þætti því eflaust dag-
skrárvalið bera vott um lítinn sam-
tímametnað, þó svo að Tectonics
tónleikar næsta vors bæti þar
nokkru úr. Hins vegar verður því
varla á móti mælt að í síauknu létt-
metisflóði seinni ára virðast nú
jafnvel fremstu listaverk tónlistar-
sögunnar eiga í vök að verjast.
Ekki sízt fyrir stöðugan niður-
skurð fjárveitinga til RÚV, helzta
menningarvaka þjóðarinnar meðan
grunnskólakerfið stendur sig ekki
betur en raun ber vitni. Það er því
enn meiri ástæða en áður til að
halda meistarasmíðum mannsand-
ans á lofti – þó ekki væri nema til
að viðhalda gæðasamanburði; for-
sendu hins raunfrjálsa vals al-
mennings.
Viðfangsefni fimmtudagskvölds-
ins stóðu vel undir þeim mark-
miðum. Ballettverk Jórunnar Við-
ar frá 1950, Eldur [áður Eldurinn]
heyrði ég síðast á Siglufjarð-
arhátíð 2006 undir stjórn Ligiu
Amadio, og hafði það í engu glatað
leiftrandi aldurnaratöfrum sínum
við endurheyrn í líflegri meðferð
Meisters og SÍ á trúlega einni var-
anlegustu tónsmíð íslenzks ný-
klassísisma.
Ægifagur Klarínettkonsert Moz-
arts bauð sem frægasta verk sinn-
ar tegundar vitaskuld upp á mis-
kunnarlausan einleikssamanburð,
jafnt héðra sem erlendis, og var að
sama skapi harla óárennilegt við-
fangsefni fyrir nýjan klarínettleið-
ara SÍ. En þó hefði þar stundum
mátt óska sér ívið ágengara ,sól-
ista-egós‘ – manni dytti helzt í hug
að spyrna aðeins meira í registra-
andstæðurnar, t.a.m. þegar stokkið
er lengst niður á urrandi chal-
umeau karlagrobbssviðið – þá var
örðulaust líðandi legatóþokki Arn-
gunnar engu líkur og hefði vel til-
efnað aukalag að verki loknu.
,Vor‘-sinfónía Roberts Schu-
manns bauð upp á álíka fjölbreytt-
an og liðugan hljómsveitarleik og
heyrðist í fyrri atriðum kvöldsins,
nema hvað Eyjólfur hresstist til
muna þegar fyrsti málsvari frum-
leikans í tónsköpun kallaði mest á
kraft og snerpu – sem skilaði sér
síðan hressilega undir forystu
stjórnanda Útvarpshljómsveitar
Vínarborgar. Meister tókst þar á
ofan að draga verulega úr hjakk-
kenndustu ítrekunum verksins
með fjölbreyttari áferð en maður
átti að venjast, og hóf fyrir vikið
hljómkviðuna upp á hærra plan.
Ekki illa að verki staðið. Enda
reyndust undirtektir hlustenda
eftir því.
Legatóþokki Örðulaust líðandi legatóþokki Arngunnar Árnadóttur, klarín-
ettleiðara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, var engu líkur, að mati rýnis.
Sígild gæði
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbbmn
Jórunn Viðar: Eldur. Mozart: Klarín-
ettkonsert. Schumann: Sinfónía nr. 1
(Vorsinfónían). Arngunnur Árnadóttir
klar. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórn-
andi: Cornelius Meister. Fimmtudaginn
10. september kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, RIFF, hefur tilkynnt
hvaða kvikmyndir verða sýndar í
aðalverðlaunaflokki hennar, Vitr-
unum, á hátíðinni í ár sem hefst 24.
september. Myndirnar sem keppa
um aðalverðlaunin, Gullna lund-
ann, eru tólf talsins og eiga það
sameiginlegt að vera fyrsta eða
önnur kvikmynd leikstjóra. „Verk-
in eru valin með það að leiðarljósi
að þau ögri viðteknum gildum í
kvikmyndagerð og vísi þannig veg
kvikmyndalistarinnar til framtíðar-
innar,“ segir í tilkynningu.
Ein íslensk mynd verður sýnd í
Vitrunum, Þrestir eftir leikstjór-
ann Rúnar Rúnarsson. Rúnar hlaut
Gullna lundann árið 2011 fyrir
fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd,
Eldfjall. Allar myndirnar í flokk-
inum verða Norðurlanda-
frumsýndar á hátíðinni og meðal
þeirra sem vakið hafa sérstaka at-
hygli er hin bandaríska Krisha eft-
ir Trey Edward Shults, sem fjallar
um samnefnda persónu sem snýr
aftur til fjölskyldu sinnar eftir
langvarandi baráttu við áfeng-
isfíkn. Einnig má nefna Mediterr-
anea eftir Ítalann Jonas Carpign-
ano og Sleeping Giant eftir Andrew
Cividino.
Formaður dómnefndar í ár er
Frederik Boyer, listrænn stjórn-
andi kvikmyndahátíðanna í Tribeca
og Les Arcs í Frakklandi. Frekari
upplýsingar má finna á riff.is.
Í Vitrunum Stilla úr Þröstum, kvikmynd
leikstjórans Rúnars Rúnarssonar.
12 myndir keppa
um Gullna lundann
Red Army
Bíó Paradís 22.45
Territory
Bíó Paradís 20.00
Fúsi
Bíó Paradís 18.00
Love 3D
Bíó Paradís 20.00, 22.30
Bönnuð innan 18 ára
We Are
Your Friends 12
Cole er plötusnúður sem á
sér stóra drauma. Hann
kynnist plötusnúðnum
James, sem hyggst kenna
honum allt sem hann kann.
Það kastast hins vegar í
kekki þegar Cole fer að fella
hug til Sophie, kærustu
James
Smárabíó 17.30, 20.00,
22.50
Háskólabíó 15.00, 17.30,
20.00
Borgarbíó Akureyri 18.00,
22.30
Love & Mercy 12
Mynd um líf tónlistarmanns-
ins og lagahöfundarins Brian
Wilson úr bandarísku hljóm-
sveitinni Beach Boys, allt frá
því hann sló í gegn og þang-
að til hann fékk taugaáfall og
hitti hinn umdeilda sálfræð-
ing Dr. Eugene Landy.
Sambíóin Kringlunni 15.00,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
No Escape 16
Verkfræðingurinn Jack Dwyer
og fjölskylda hans sem vinna
erlendis komast í hann krapp-
an þegar grimmir uppreisn-
armenn nýta sér upplausn í
landinu og hóta því að myrða
alla útlendinga.
Laugarásbíó 15.45, 17.45,
20.00, 22.15
Borgarbíó Akureyri 20.00
Háskólabíó 22.15
Self/less 12
Dauðvona milljarðamær-
ingur flytur vitund sína í lík-
ama heilbrigðs ungs manns.
En það er ekki allt sem sýn-
ist þegar hann fer að fletta
ofan af ráðgátunni um upp-
runa líkamans.
Sambíóin Egilshöll 15.20,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakki 17.30,
20.00, 22.30
The Transporter
Refueled 12
Sömu þrjár reglurnar gilda
enn: aldrei breyta samn-
ingnum, engin nöfn og aldrei
opna pakkann.
Smárabíó 17.45, 20.00
Sambíóin Akureyri 22.20
Straight Outta
Compton 12
Metacritic 73/100
IMDB 8,4/10
Laugarásbíó 22.20
Smárabíó 20.00, 22.10
Háskólabíó 15.00, 18.00,
21.00
Borgarbíó Akureyri 17.30
Absolutely
Anything 12
Laugarásbíó 18.00
Frummaðurinn Smárabíó 13.00, 15.30
Laugarásbíó 13.45, 15.45
Borgarbíó Akureyri 15.30
The Gift 16
Laugarásbíó 20.00
Agent 47 16
Smárabíó 23.00
Vacation 12
Sambíóin Egilshöll 15.10,
17.50, 20.00
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.40, 17.50, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 15.40
Sambíóin Akureyri 15.40,
17.50
Sambíóin Keflavík 18.00
Mission: Impossible
- Rogue Nation 12
Sambíóin Egilshöll 22.20
Sambíóin Kringlunni 20.00
Pixels Smárabíó 13.00, 15.30
Amy 12
Háskólabíó 20.00
Ant-Man 12
Sambíóin Kringlunni 22.45
Minions Metacritic 56/100
IMDB 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 13.30,
15.40, 17.50
Sambíóin Keflavík 16.00,
18.00
Smárabíó 13.00, 15.20,
17.50
Háskólabíó 15.00
Laugarásbíó 13.50, 15.50
Borgarbíó Akureyri 15.30
Inside Out Metacritic 93/100
Laugarásbíó 14.00
Sambíóin Álfabakka 13.30,
14.00, 15.40
Sambíóin Egilshöll 15.00,
17.10
Sambíóin Kringlunni 15.20,
17.50
Sambíóin Akureyri 15.40,
17.50
Sambíóin Keflavík 16.00
Hrútar 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Háskólabíó 17.30
Bíó Paradís 22.00
Sjóndeildarhringur
Bíó Paradís 20.00
In the Basement
Bíó Paradís 18.00, 20.00,
22.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Krakkarnir úr fyrri Maze Runner-myndinni
reyna komast að því hverjir standa á bak
við völundarhúsið og hvaða hlutverki þeir
gegni, um leið og þeir reyna að sigrast á
eyðilandinu „The Scorch“ þar sem hver
ógnin á fætur annarri bíður þeirra.
Metacritic 39/100
IMDb 75/100
Laugarásbíó 18.00, 21.00
Smárabíó 13.00, 14.00, 16.00, 17.00, 19.00, 20.00,
22.00, 22.20
Háskólabíó 16.00, 19.00, 22.00
Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.00
Sambíóin Keflavík 22.30
Maze Runner:
The Scorch Trials 12
Bandaríski leyniþjónustumaðurinn
Napoleon Solo og KGB maðurinn
Ilya Kuryakin vinna saman að því
að finna dularfull glæpasamtök.
Metacritic 55/100
IMDB 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00
The Man From U.N.C.L.E. 12
Evan er vinsæll arkitekt sem lifir að því
er virðist fullkomnu lífi. Dag einn fer
allt úr skorðum þegar vinkonurnar Ge-
nesis og Bel banka upp á hjá honum og
biðja um aðstoð. Evan getur ekki neit-
að og veit ekki að hann er kominn í lífshættu.
Metacritic 69/100
Sambíóin Egilshöll 15.40, 17.50, 20.00, 22.20
Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.50, 17.50, 20.00, 20.00, 22.20, 22.30
Sambíóin Akureyri 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10
Knock Knock 16