Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Áður en þú tekur verkefni að þér skaltu ganga úr skugga um til hvers er raunverulega ætlast af þér. Ekki leggja verkefnin þín á hilluna, þau leysast af sjálfu sér. 20. apríl - 20. maí  Naut Eitthvað veldur þér kvíða og hann þarftu að losna við. Með heiðarleikann að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu sam- starfsmanna þinna. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ef þér mislíkar eitthvað í fari ann- arra gerir þú rétt í því að segja frá því. Enginn er gallalaus, ekki einu sinni þú. 21. júní - 22. júlí  Krabbi En rómantískur dagur! Þú ert í góðum gír og þráir að skemmta þér, daðra og gera það sem þig lystir. Þú færð óvænt símtal í kvöld. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú verður upp fyrir haus í vinnu í dag. Hafðu nánar gætur á fjármálunum; þar má ekkert út af bregða. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það gerir bara illt verra að draga sig enn lengra inn í skelina. Leitaðu hjálpar ef hlutirnir breytast ekki. 23. sept. - 22. okt.  Vog Farðu hægt í öllum umræðum um trú- mál og vertu algjörlega viss um það sem þú vilt segja. Þú býrð yfir listrænum hæfi- leikum, þú veist það bara ekki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur látið aðra ganga fyrir og nú er kominn tími til þess að þú sinnir þér. Reyndu ekki að slá ryki í augu fólks eða koma þínum verkum yfir á aðra. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt það til að hugsa of mikið um hlutina, sem getur valdið því að þú hik- ir of mikið. Frestaðu öllum óþarfa verk- efnum á meðan þú vinnur upp orku og andlegt jafnvægi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhverjar breytingar eru yfirvof- andi og margt sem kallar á athygli þína þessa dagana. Þú átt skilið að taka þér smá frí. Láttu ekki draga úr þér kjarkinn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur sterkar skoðanir á öllu þessa dagana. Ekki láta neitt slá þig út af laginu, þú gætir hagnast verulega ef þú heldur rétt á spilunum sem þér eru gefin. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu aðra heyra hvað þú hefur til málanna að leggja og láttu þá ekki þurfa að draga afstöðu þína út úr þér með töngum. Brjóttu upp rútínuna. Kannaðu alla mála- vexti áður en þú dæmir. Þrátt fyrir ótal fréttir sem bárustalla síðustu viku í flestum fjöl- miðlum, þar sem fólk var hvatt til að taka inn lausa muni vegna veð- urs, þá virtust þær ekki berast til eyrna Víkverja. Víkverji tekur þó fram að hann á þó ekki trampólín og því skellti hann skollaeyrm við þess- um viðvörunum. Hann hafði það bara huggulegt inni undir teppi á meðan regnið buldi lárétt á rúðunni. Það skal tekið fram að þessi veðr- átta ríkti nánast alla vikuna í bæn- um. x x x Eitt af þessum fjölmörgu kvöldumhafði Víkverji rétt náð að festa svefn, þá vaknaði hann við stöðuga dynki sem hættu ekki af sjálfu sér. Þrátt fyrir að Víkverji óskaði þess heitt og innilega. Svefndrukkinn náði Víkverji að átta sig á því að hljóðið kom af svölunum. Svefn- herbergisglugginn er rétt við sval- irnar. Þar lágu þrír forláta plast- stólar eins og hráviðri og ýmist lömdust hvor utan í annan eða sval- irnar. Allt í senn eða til skiptis. Vík- verji „gleymdi“ nefnilega að taka sólstólana inn því hann fullvissaði sjálfan sig um að hann þyrfti ekki að taka þá inn því þeir myndu nú ekki fjúka neitt. x x x Hávaðinn og þar af leiðandi svefn-leysið sem þeir kostuðu Vík- verja hafði hann ekki leitt hugann að. Langt í frá. Hinsvegar var hann svo þreyttur og hann gat ekki hugs- að sér að dröslast í fataleppa, rífa upp svalahurðina og henda þeim holdvotugum inn. Þess í stað hélt hann áfram að móka milli svefns og vöku þar til honum datt það snjall- ræði í hug að fara í annað herbergi í húsinu. Þetta var undir morgun þegar þessi góða hugmynd barst. x x x Þetta veður er ekki alslæmt, langtfrá því. Í það minnsta ekki fyrir skrifstofublók sem vinnur inni frá níutilfimm. Víkverji getur því ekki kvartað undan veðrinu sem knýr hann til að vera heima hjá sér á kvöldin í heitum faðmi sambýlings- ins í stað þess að berjast við klára í misgáfulegu skokki eða hoppa á hestabaki langt fram á kvöld. víkverji@mbl.is Víkverji Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. (Matt. 5:7) mbl.isNethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti Sem endranær er gátan eftirGuðmund Arnfinnsson: Margs vís þykir maður sá. Mikilfengleg alda. Kallast veiðivatnið má, voldugt hafið kalda. Kristín Sigríður Guðjónsdóttir, Hrafnistu, leysir gátuna þannig: Hafsjó fróðleiks hann á til. Hástemmd er sjávaralda. Í Langasjó ég veiða vil en voldugt er hafið kalda. Harpa Hjarðarfelli á þessa lausn: Sá er firna fróðleikssjór. Fallinn brotsjór alda. Vatn eitt Langi- sagt er -sjór. Sjór er hafið kalda. Árni Blöndal svarar: Halurinn er hafsjór frétta. Hugsa, – brotsjór þetta er. Langisjór er líka þetta. Lít ég sjóinn, hvert sem fer. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Hafsjór af fróðleik er frúin. Frekur er brotsjór og snúinn. Við Langasjó lengi má fiska og löngur úr sjónum á diska. „Þá er það svarið,“ segir Helgi R. Einarsson: Hafsjó fróðleiks finna má, feikna sjór er alda, Langisjór er landinu’ á til lands af sjó menn halda. Guðmundur skýrir gátuna þann- ig: Fróður ver er sagnasjór. Sjór er alda feikna stór. Sjór er veiðivatnið grátt, Vera sjór mun hafið blátt. Og lætur limru fylgja: Á jökla upp klífur Jóhanna, jafnan því kölluð SnjóHanna, hún fer líka til sjós sem léttmatrós, af sumum því kölluð SjóHanna. Loks sendir Guðmundur nýja gátu: Prýða þykir prestinn sá. Pils og bolur konum á. Stertimenni hæfir hann. Hafs á öldum bruna kann. Úr Stellu rímum: Margur bylinn fyrir sér fann, þá fley úr naustum greiddi, engu að síður áfram hann öldujóinn leiddi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Dregur sjór til sín Í klípu „OG HEITIÐ ÞIÐ ÞVÍ AÐ LIFA OG STARFA SAMAN SEM FULLKOMIN, ÓSTÉTTBUNDIN, EINING? “ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ER MEÐ FRÁBÆR MEÐMÆLI FRÁ SÍÐUSTU FIMM VINNUVEITENDUM MÍNUM EN ÉG GLATAÐI ÞEIM Á LEIÐINNI HINGAÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...þokkafull TÖLT TÖLT TÖLT TÖLT TÖLT TÖLT JÆJA, VIÐ FÖRUM ALDREI AFTUR ÞANGAÐ HVERS KONAR HLAÐBORÐ ER ÞAÐ ÞAR SEM MATURINN KLÁRAST? SAMMÁLA HVAÐ KOM FYRIR MYNDARLEGA UNGA MANNINN SEM ÉG GIFTIST FYRIR SVO LÖNGU? BÍDDU, ER HRÓLFUR EKKI FYRSTI EIGINMAÐUR ÞINN?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.