Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
!"
" "
!!
# $!
#
!% !
%"$
% !
$$ #
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$
" $
"
#
# $!
#
!% !
%##
"
$! $#
"
" $
# #
# !$
!% #
%#!
$! #
$ ##$
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Af sautján flug-
félögum sem flugu
áætlunarflug frá
Keflavíkurflugvelli í
ágúst stóðu Ice-
landair og WOW air
fyrir nærri átta af
hverjum tíu ferðum
frá vellinum. Þetta
kemur fram í nýrri
samantekt Túrista.
Icelandair stóð
fyrir sex af hverjum tíu ferðum frá
Keflavíkurflugvelli en WOW er með 16%
hlutdeild. Til samanburðar er EasyJet
með 4,2% hlutdeild.
Íslensku flugfélögin
með 8 af 10 brottförum
WOW Félagið er
með 16% hlutdeild.
● Í ágústmánuði var 1.059 leigusamn-
ingum þinglýst, sem er 19,9% fækkun
á milli mánaða en 5% hækkun saman-
borið við sama mánuð í fyrra. 609
samningum var þinglýst á höfuðborgar-
svæðinu, sem er 35,6% fækkun á milli
mánaða en 8,4% fjölgun á milli ára. Tal-
ið er að verkfall lögfræðinga hjá sýslu-
manni hafi haft áhrif. Þetta kemur fram
í tölum Þjóðskrár.
Leigusamningum fækk-
aði á milli mánaða
STUTTAR FRÉTTIR ...
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Virkara hlutverk stofnanafjárfesta
sem hluthafar í fyrirtækjum kallar á að
þeir upplýsi eigendur sína um hvernig
þeir hyggist hegða sér sem fjárfestar.
Þetta segir Flóki Halldórssson, fram-
kvæmdastjóri sjóðsstýringarfyrirtæk-
isins Stefnis, en hann fjallaði um þessi
mál á ráðstefnu Strategíu í fyrradag.
Stofnanafjárfestar eru lífeyrissjóðir,
verðbréfasjóðir og tryggingafélög en
hlutdeild þeirra á hlutabréfamarkaði
hefur farið vaxandi á heimsvísu und-
anfarna áratugi. ,,Þróunin hefur verið
einstaklega hröð á Íslandi. Það sjáum
við með samanburði á hluthafalistum
nú og fyrir tíu árum síðan.“ Hann nefn-
ir Haga og Icelandair en þar eru stofn-
anafjárfestar og fjármálafyrirtæki
áberandi meðal stærstu hluthafa.
Flóki segir stóra hlutdeild lífeyrissjóða
hér skýrast af stærð íslenska lífeyr-
issjóðakerfisins, sem er það næst-
stærsta í heiminum miðað við lands-
framleiðslu.
Nokkrir stærstu
lífeyrissjóðirnir
hafa nú sett sér
hluthafastefnu.
„Stofnanafjárfest-
ar taka sér virkara
hlutverk og fjár-
festingarstefnur
þeirra taka á fleiri
málum en áður.“
Hann nefnir aukna áherslu á um-
hverfismál, samfélagsmál og stjórn-
arhætti sem dæmi. „Þróunin erlendis
er líka í þessa átt. Fjárfestarnir setja í
ríkara mæli út á kaupréttaráætlanir
og launakjör forstjóra.“
Flóki segir umdeilt hversu virkir
stofnanafjárfestar eiga að vera. „Líf-
eyrissjóðirnar hafa engu að síður verið
að setja sér stefnu um að vera virkari
og útskýra um leið hvernig þeir muni
hegða sér sem hluthafar. Það er í takt
við erlenda þróun. Í ljósi smæðar
skráða hlutabréfamarkaðarins og
stærðar lífeyrissjóðakerfisins, er ekki
óeðlilegt að lífeyrissjóðir skýri út
hvernig hluthafar þeir ætli að vera.“
Stefnir sjálfur setti sér reglur árið
2013 sem útskýra hluthafastefnu og
meðferð atkvæðisréttar „Við teljum
okkur skulda eigendum sjóðanna upp-
lýsingar um hvernig við ætlum okkur
að kjósa í umboði þeirra og hvernig
hluthafi við erum. Eigendur okkar og
aðrir geta séð hvernig við kjósum í ein-
staka málum. Við fáum aðhald, þetta
eykur gegnsæi og eykur vonandi
traust á störfum okkar.“
Umboði fylgir ábyrgð fyrir fjárfesta
Flóki
Halldórsson
● Greiningardeildir gera flestar ráð
fyrir lítilli breytingu á verðbólgu í
september. Íslandsbanki gerir ráð fyrir
því að vísitala neysluverðs muni lækka
um 0,1% og að verðbólga verði áfram
2,2%. IFS Greining og Capacent gera
hins vegar ráð fyrir óbreyttu verðlagi í
september og spá því að verðbólga á
ársgrundvelli hækki í 2,3%. Landsbank-
inn spáir hins vegar 0,1% hækkun
neysluvísitölu og þar af leiðandi hækk-
un ársverðbólgu úr 2,2% í 2,4%.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Föt Greiningardeildir spá því að verð-
bólga verði 2,2% til 2,4% í september.
Spá lítilli breytingu á
verðbólgu milli mánaða