Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Frábær
pakkatilboð
til Færeyja 23. september
Bókaðu
núna!Sigling með Norrænu og hótel í Færeyjum í 4 nætur
frá kr. 65.800 á mann miðað við að 2 ferðist saman.
Hægt er að velja um gistingu í Þórshöfn eða í Rúnavík.
Frábært tækifæri til að heimsækja Færeyjar.
Brottför frá Seyðisfirði 23. september og komið til Seyðisfjarðar 29. september.
Sjá nánar á www.smyrilline.is eða hafa samband við Norrænu
Ferðaskrifstofuna í síma 5708600 og Austfar í síma 4721111
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Það hefur kosti og galla að kjósa
samtímis til embættis forseta Ís-
lands og um breytingar á stjórn-
arskránni, sem m.a. geta haft áhrif á
valdsvið forsetans, en það er ekki
andlýðræðislegt. Þetta er mat
tveggja fræðimanna við Háskóla Ís-
lands sem Morgunblaðið ræddi við. Í
þingsetningarræðu sinni á mánu-
daginn lýsti Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti þeirri skoðun sinni að það
að tengja verulegar breytingar á
stjórnarskránni við kjör forseta lýð-
veldisins væri andstætt lýðræð-
islegu eðli.
„Ég get ekki séð að það sé and-
lýðræðislegt að halda þjóð-
aratkvæðagreiðslu samfara forseta-
kosningum eða þingkosningum. Í
mörgum fylkjum Bandaríkjanna eru
haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur
samhliða þing- og forsetakosningum
og þar er öll fulltrúadeild og hluti
öldungadeildar kjörin á sama degi
og forsetinn. Í Svíþjóð hefur verið
kosið til sveitarstjórna um leið og
kosið er til þings. Frá fyrstu íslensku
stjórnarskránni 1874 til allra síðustu
ára var bara ein leið til að breyta ís-
lenskri stjórnarskrá: þing sam-
þykkti breytingu, síðan voru alþing-
iskosningar, og svo þurfti nýtt þing
að samþykkja sama stjórnarskrár-
frumvarp óbreytt. Í seinni kosning-
unum voru kjósendur sem sé bæði
að kjósa þingmenn til fjögurra eða
sex ára – og kjósa um stjórn-
arskrárbreytingar. Fleiri lönd hafa
haft þennan háttinn á,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson prófessor í stjórn-
málafræði.
Varla andlýðræðislegt
„Deila má um kosti og galla þessa
fyrirkomulags,“ segir Ólafur, „en er
það andlýðræðislegt? Höfum við
verið með andlýðræðislega stjórn-
arskrá síðan 1874?
Það að hafa margar tegundir
kosninga á sama degi hefur bæði
kosti og galla. Kosturinn er sá helst-
ur, að þetta fyrirkomulag er aukin
þjónusta við kjósendur: gerir þeim
auðveldara fyrir að kjósa. Reynslan
sýnir, að margar kosningar, m.a.
margar þjóðaratkvæðagreiðslur,
hafa tilhneigingu til að draga úr
kjörsókn – sem reyndar hefur líka
minnkað víða þar sem kosningar eru
fáar. Kostnaður við fáar kosningar
er minni en við margar kosningar,
en það eru tæplega gild rök: ef við
veljum útgáfu lýðræðis sem krefst
margra kosninga verðum við auðvit-
að að borga fyrir það. Við höfum
auðvitað efni á að velja það lýðræð-
isform sem við teljum best og lýð-
ræðislegast. Gallinn við að hafa
margar tegundir kosninga á einum
degi er helstur sá, að kjósendur
þurfa að hugsa um fleiri en eitt mál í
einu. Sá galli er þó sennilega lít-
ilvægur miðað við kosti fyr-
irkomulagsins. Ekki virðist t.d.
reynsla Svía eða Bandaríkjamanna
um þetta hafa haft skaðlegar afleið-
ingar,“ segir Ólafur og bætir við:
„Auðvitað má líka segja, að sumpart
sé óheppilegt að gera miklar breyt-
ingar á embætti forseta í stjórn-
arskrá um leið og forseti er kosinn.
En Íslendingar hafa margoft breytt
stjórnarskrárákvæðum um alþing-
iskosningar um leið og nýtt alþingi
var kosið. Og til eru þeir, sem segja
að gamla stjórnarskráin hafi reynst
vel – þó sennilega séu þeir miklu
fleiri sem vilja breyta henni.“
Allar breytingar óþarfar?
„Þótt þjóðhöfðinginn segi það ekki
berum orðum eru rök hans á þann
veg að eigi að breyta stjórnarskrá í
veigamiklum atriðum verði að gera
það áður en nýr forseti er kjörinn
svo að bæði forsetaefnin og fólkið í
landinu viti hvernig stjórnskipunin
sé þegar forsetaskiptin verða. Um
leið megi alls ekki gera neitt í óða-
goti. En hvað þýðir þetta?, segir
Guðni Th. Jóhannesson, dósent í
sagnfræði við HÍ. „Taki nýr forseti
við á næsta ári hljóta kjósendur að
hafa í huga að vel megi vera að
stjórnarskrá verði breytt verulega í
embættistíð hennar eða hans. Manni
sýnist helst að forseti telji í raun all-
ar breytingar á stjórnarskrá óþarf-
ar. Það væri í samræmi við fyrri orð
hans þegar hann lýsti stjórn-
arskránni frá 1944 sem listilegri
smíð, án hnökra svo nokkru næmi.
Hitt er auðvitað umhugsunarefni að
samkvæmt þeirri stjórnarskrá lætur
forsetinn ráðherra framkvæma vald
sitt, eins kjánalega og það hljómar
nú í raunveruleika samtímans, og
þessir sömu ráðherrar hafa lýst yfir
áhuga á því að kosningar um breyt-
ingar á stjórnarskrá fari fram sam-
hliða forsetakosningum. Það væri
því áhugavert að heyra sjónarmið
þeirra frekar en sagnfræðingsins í
þessum efnum., segir Guðni.
Fræðimenn ósammála forseta
Forseti Íslands segir andlýðræðislegt að kjósa samtímis til embættis forseta og um stjórnarskrá
Hefur kosti og galla en ekki andlýðræðislegt, segir Ólafur Harðarson prófessor í stjórnmálafræði
Morgunblaðið/Eggert
Embættistaka Forseti Íslands, forsetafrú, biskup og forseti Hæstaréttar við innsetningu í embætti í ágúst 2012.
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs
er gert ráð fyrir rúmlega 311
milljóna króna kostnaði rík-
issjóðs við kosningar til emb-
ættis forseta Íslands, komi til
þeirra. Enginn kostnaður fellur
til verði forseti sjálfkjörinn í
embætti.
Hvergi er vikið að þjóð-
aratkvæðagreiðslu vegna
stjórnarskrárbreytinga í frum-
varpinu. Vegna anna var ekki
hægt að fá svör við því í inn-
anríkisráðuneytinu í gær hvort
aukakostnaður hlytist af ef
samtímis yrði kosið til forseta
og um stjórnarskrána.
Samkvæmt lögum fellur nú
allur kostnaður við forseta-
kosningar á ríkissjóð, en áður
greiddu sveitarfélög fyrir störf
kjörstjórna auk þess að leggja
til húsnæði undir kjörfundi.
300 milljónir
í kosningar
KOSTAR AÐ KJÓSA
Guðni Th.
Jóhannesson
Ólafur Þ.
Harðarson
„Mér líst vel á veturinn. Umgjörðin
er orðin skemmtileg og fagmannleg.
Það liggja mikil tækifæri í þessari
deild,“ segir Garðar Hólm Birgisson,
nýkjörinn formaður Meistaradeildar
í hestaíþróttum. Skeiðleikar deildar-
innar verða á Selfossi í dag. Það er
meðal nokkurra breytinga á starfi
deildarinnar.
Skeiðleikarnir, þar sem keppt er í
gæðingaskeiði og 150 metra skeiði,
eru færðir fram á haust. Það er að
sögn Garðars gert vegna þess að von
er um betra veður á þessum tíma
auk þess sem hestarnir eru í betri
þjálfun nú í lok keppnistímabilsins.
Ekki verða riðin B-úrslit í keppn-
um vetrarins. Það er gert til að
stytta dagskrána og gera hana
áhorfendavænni en ekki síður til að
minnka álagið á þeim hesti sem vinn-
ur B-úrslitin. Innimótin verða í
Fákaseli, eins og verið hefur, nema
hvað fimmgangurinn verður í
Sprettshöllinni. Þar er meira pláss
fyrir hestana að sýna sitt besta í
skeiði og öðrum greinum.
Átta lið taka þátt, þau sömu og í
fyrravetur. Hins vegar er knöpum
fjölgað um einn í hverju liði. Þeir
verða nú fimm en áfram taka aðeins
þrír þátt í hverri keppni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meistaradeild Sigurður Sigurðarson og Sigurbjörn Bárðarson verða með.
Breytt fyrirkomu-
lag meistaradeildar
Skeiðleikarnir verða á Selfossi í dag