Morgunblaðið - 12.09.2015, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.09.2015, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Frábær pakkatilboð til Færeyja 23. september Bókaðu núna!Sigling með Norrænu og hótel í Færeyjum í 4 nætur frá kr. 65.800 á mann miðað við að 2 ferðist saman. Hægt er að velja um gistingu í Þórshöfn eða í Rúnavík. Frábært tækifæri til að heimsækja Færeyjar. Brottför frá Seyðisfirði 23. september og komið til Seyðisfjarðar 29. september. Sjá nánar á www.smyrilline.is eða hafa samband við Norrænu Ferðaskrifstofuna í síma 5708600 og Austfar í síma 4721111 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Það hefur kosti og galla að kjósa samtímis til embættis forseta Ís- lands og um breytingar á stjórn- arskránni, sem m.a. geta haft áhrif á valdsvið forsetans, en það er ekki andlýðræðislegt. Þetta er mat tveggja fræðimanna við Háskóla Ís- lands sem Morgunblaðið ræddi við. Í þingsetningarræðu sinni á mánu- daginn lýsti Ólafur Ragnar Gríms- son forseti þeirri skoðun sinni að það að tengja verulegar breytingar á stjórnarskránni við kjör forseta lýð- veldisins væri andstætt lýðræð- islegu eðli. „Ég get ekki séð að það sé and- lýðræðislegt að halda þjóð- aratkvæðagreiðslu samfara forseta- kosningum eða þingkosningum. Í mörgum fylkjum Bandaríkjanna eru haldnar þjóðaratkvæðagreiðslur samhliða þing- og forsetakosningum og þar er öll fulltrúadeild og hluti öldungadeildar kjörin á sama degi og forsetinn. Í Svíþjóð hefur verið kosið til sveitarstjórna um leið og kosið er til þings. Frá fyrstu íslensku stjórnarskránni 1874 til allra síðustu ára var bara ein leið til að breyta ís- lenskri stjórnarskrá: þing sam- þykkti breytingu, síðan voru alþing- iskosningar, og svo þurfti nýtt þing að samþykkja sama stjórnarskrár- frumvarp óbreytt. Í seinni kosning- unum voru kjósendur sem sé bæði að kjósa þingmenn til fjögurra eða sex ára – og kjósa um stjórn- arskrárbreytingar. Fleiri lönd hafa haft þennan háttinn á,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórn- málafræði. Varla andlýðræðislegt „Deila má um kosti og galla þessa fyrirkomulags,“ segir Ólafur, „en er það andlýðræðislegt? Höfum við verið með andlýðræðislega stjórn- arskrá síðan 1874? Það að hafa margar tegundir kosninga á sama degi hefur bæði kosti og galla. Kosturinn er sá helst- ur, að þetta fyrirkomulag er aukin þjónusta við kjósendur: gerir þeim auðveldara fyrir að kjósa. Reynslan sýnir, að margar kosningar, m.a. margar þjóðaratkvæðagreiðslur, hafa tilhneigingu til að draga úr kjörsókn – sem reyndar hefur líka minnkað víða þar sem kosningar eru fáar. Kostnaður við fáar kosningar er minni en við margar kosningar, en það eru tæplega gild rök: ef við veljum útgáfu lýðræðis sem krefst margra kosninga verðum við auðvit- að að borga fyrir það. Við höfum auðvitað efni á að velja það lýðræð- isform sem við teljum best og lýð- ræðislegast. Gallinn við að hafa margar tegundir kosninga á einum degi er helstur sá, að kjósendur þurfa að hugsa um fleiri en eitt mál í einu. Sá galli er þó sennilega lít- ilvægur miðað við kosti fyr- irkomulagsins. Ekki virðist t.d. reynsla Svía eða Bandaríkjamanna um þetta hafa haft skaðlegar afleið- ingar,“ segir Ólafur og bætir við: „Auðvitað má líka segja, að sumpart sé óheppilegt að gera miklar breyt- ingar á embætti forseta í stjórn- arskrá um leið og forseti er kosinn. En Íslendingar hafa margoft breytt stjórnarskrárákvæðum um alþing- iskosningar um leið og nýtt alþingi var kosið. Og til eru þeir, sem segja að gamla stjórnarskráin hafi reynst vel – þó sennilega séu þeir miklu fleiri sem vilja breyta henni.“ Allar breytingar óþarfar? „Þótt þjóðhöfðinginn segi það ekki berum orðum eru rök hans á þann veg að eigi að breyta stjórnarskrá í veigamiklum atriðum verði að gera það áður en nýr forseti er kjörinn svo að bæði forsetaefnin og fólkið í landinu viti hvernig stjórnskipunin sé þegar forsetaskiptin verða. Um leið megi alls ekki gera neitt í óða- goti. En hvað þýðir þetta?, segir Guðni Th. Jóhannesson, dósent í sagnfræði við HÍ. „Taki nýr forseti við á næsta ári hljóta kjósendur að hafa í huga að vel megi vera að stjórnarskrá verði breytt verulega í embættistíð hennar eða hans. Manni sýnist helst að forseti telji í raun all- ar breytingar á stjórnarskrá óþarf- ar. Það væri í samræmi við fyrri orð hans þegar hann lýsti stjórn- arskránni frá 1944 sem listilegri smíð, án hnökra svo nokkru næmi. Hitt er auðvitað umhugsunarefni að samkvæmt þeirri stjórnarskrá lætur forsetinn ráðherra framkvæma vald sitt, eins kjánalega og það hljómar nú í raunveruleika samtímans, og þessir sömu ráðherrar hafa lýst yfir áhuga á því að kosningar um breyt- ingar á stjórnarskrá fari fram sam- hliða forsetakosningum. Það væri því áhugavert að heyra sjónarmið þeirra frekar en sagnfræðingsins í þessum efnum., segir Guðni. Fræðimenn ósammála forseta  Forseti Íslands segir andlýðræðislegt að kjósa samtímis til embættis forseta og um stjórnarskrá  Hefur kosti og galla en ekki andlýðræðislegt, segir Ólafur Harðarson prófessor í stjórnmálafræði Morgunblaðið/Eggert Embættistaka Forseti Íslands, forsetafrú, biskup og forseti Hæstaréttar við innsetningu í embætti í ágúst 2012. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir rúmlega 311 milljóna króna kostnaði rík- issjóðs við kosningar til emb- ættis forseta Íslands, komi til þeirra. Enginn kostnaður fellur til verði forseti sjálfkjörinn í embætti. Hvergi er vikið að þjóð- aratkvæðagreiðslu vegna stjórnarskrárbreytinga í frum- varpinu. Vegna anna var ekki hægt að fá svör við því í inn- anríkisráðuneytinu í gær hvort aukakostnaður hlytist af ef samtímis yrði kosið til forseta og um stjórnarskrána. Samkvæmt lögum fellur nú allur kostnaður við forseta- kosningar á ríkissjóð, en áður greiddu sveitarfélög fyrir störf kjörstjórna auk þess að leggja til húsnæði undir kjörfundi. 300 milljónir í kosningar KOSTAR AÐ KJÓSA Guðni Th. Jóhannesson Ólafur Þ. Harðarson „Mér líst vel á veturinn. Umgjörðin er orðin skemmtileg og fagmannleg. Það liggja mikil tækifæri í þessari deild,“ segir Garðar Hólm Birgisson, nýkjörinn formaður Meistaradeildar í hestaíþróttum. Skeiðleikar deildar- innar verða á Selfossi í dag. Það er meðal nokkurra breytinga á starfi deildarinnar. Skeiðleikarnir, þar sem keppt er í gæðingaskeiði og 150 metra skeiði, eru færðir fram á haust. Það er að sögn Garðars gert vegna þess að von er um betra veður á þessum tíma auk þess sem hestarnir eru í betri þjálfun nú í lok keppnistímabilsins. Ekki verða riðin B-úrslit í keppn- um vetrarins. Það er gert til að stytta dagskrána og gera hana áhorfendavænni en ekki síður til að minnka álagið á þeim hesti sem vinn- ur B-úrslitin. Innimótin verða í Fákaseli, eins og verið hefur, nema hvað fimmgangurinn verður í Sprettshöllinni. Þar er meira pláss fyrir hestana að sýna sitt besta í skeiði og öðrum greinum. Átta lið taka þátt, þau sömu og í fyrravetur. Hins vegar er knöpum fjölgað um einn í hverju liði. Þeir verða nú fimm en áfram taka aðeins þrír þátt í hverri keppni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Meistaradeild Sigurður Sigurðarson og Sigurbjörn Bárðarson verða með. Breytt fyrirkomu- lag meistaradeildar  Skeiðleikarnir verða á Selfossi í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.