Morgunblaðið - 12.09.2015, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
Auglýsing frá Samtökum
eigenda sjávarjarða
Samtök eigenda sjávarjarða, sem eru samtök hlutaðeigenda í sjávarauðlindinni, óska
hér með eftir lögfræðingi eða lögfróðum manni (endurskoðanda, fasteignasala)
til að vinna að innheimtu gjalds fyrir afnot af lögbundnum og sjórnarskrárvörðum
eignarréttindum sjávarjarða eða ráðstöfun þeirra réttinda. Mannréttindadómstóll
Evrópu hefur gefið út það álit sitt, að réttur þessi sé lögformleg eign eigenda sjávar-
jarða í samræmi við 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmála Evrópuráðsins.
Kostnaður vegna vinnu yrði til að byrja með greiddur í samræmi við árangur í starfi
en útlagður kostnaður greiddur að fullu.
Áhugasamir aðilar vinsamlegast hafið samband við undirritaðan.
Ómar Antonsson, formaður Samtaka eigenda sjávarjarða,
Horni, Höfn í Hornafirði,
s. 478 2577 eða 892 0944.
Netfang: omarantons@gmail.com eða: ses.netlog@gmail.com
Heimasíða samtakanna er: www.ses.is
Náttúruleg umhirða munns og tanna!
Tannkremin frá Weleda hreinsa tennurnar á árangursríkan hátt
Tannholdið styrkist með jurtablöndum og slímhimnur munnholsins
haldast ferskar. Tannkremin innihalda engin auka-bragðefni.
Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á
www.weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
lúxusbílaframleiðendur séu að vinna
hratt í að þróa tæknina. „Það hefur
náðst mikill árangur í að ná eyðslu
og mengun bílanna niður. Vöru-
gjaldaumhverfið hér miðast við
mengunarstaðla bíla þannig að verð-
in eru hagstæðari eftir því sem bíll-
inn mengar minna.“
Fleiri valkostir í lúxusbílum
Mikil aukning hefur orðið í sölu
Audi bíla en sem dæmi þá er Audi Q5
á verðbilinu 8-12 milljónir króna, en
44 slíkir bílar seldust fyrstu 8 mán-
uði ársins. Jóhann Ingi Magnússon,
vörustjóri hjá Heklu, segir að al-
mennt sé meiri jákvæðni á bílamark-
aðnum. „Það er greinilega komin
meiri kaupgeta hjá fólki og það er
meira tilbúið að fara út í stærri fjár-
festingar. En það sem helst skýrir
aukninguna hjá okkur eru nýir val-
kostir.“ Hann nefnir sem dæmi raf-
magnsbíla og að lúxusmerkin séu
orðin framarlega á því sviði. „Þessi
aukning endurspeglar allt samfélag-
ið, það er komin meiri hreyfing á
þjóðfélagið. Bílarnir eru margir
orðnir gamlir og kominn tími á end-
urnýjun.“
Sala á Mercedes-Benz hefur auk-
ist um 22% milli ára og segir Jón
Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri
Öskju, að markaðurinn hafi verið
mjög góður það sem af er árinu.
„Sala á lúxusbílum hefur aukist en
það er í takt við það sem almennt er
að gerast í Evrópu. Þessir sem telj-
ast til lúxusbílaframleiðenda hafa
verið að auka verulega framboð á
sínum bílum, sem þýðir að Merce-
des-Benz er kominn með minni bíla
sem teygja sig neðar í verðum.“ Jón
Trausti segir að rekja megi þessa
aukningu fyrst og fremst til þess að
framboðið er að aukast á samkeppn-
ishæfum bílum. Einnig nefnir hann
að lúxusbílaframleiðendurnir hafi
verið að ná miklum árangri í að
lækka útblástur. „Þeir ná því meiri
markaðshlutdeild því fólk er að leita
sér að umhverfisvænum bílum sem
menga lítið en eru samt skemmti-
legir og öruggir.“
Meira selt af dýrari
tegundum bifreiða
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bílar Mikil aukning hefur orðið í sölu dýrari tegunda fyrstu 8 mánuðina.
42% aukning í nýskráningum fólksbíla fyrstu 8 mánuðina
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Á fyrstu átta mánuðum ársins hefur
nýskráðum fólksbílum fjölgað um
42% frá sama tíma í fyrra. Skráðir
hafa verið tæplega 11.000 nýir bílar á
þessu ári samkvæmt upplýsingum
Samgöngustofu. Þegar skoðaðar eru
einstakar tegundir kemur í ljós að
mest aukning hefur orðið í sölu Opel
sem hefur rúmlega tuttugufaldast á
milli ára, þá er einnig mikil aukning í
sölu Mitsubitshi sem hefur sjöfald-
ast og sala á Volvo hefur fimmfald-
ast. Töluverð aukning er í flestum
öðrum tegundum. Flestir nýskráðir
bílar eru frá Toyota og seldust nær
60% fleiri af þeirri tegund. Það virð-
ist sem mikil aukning sé í sölu dýrari
tegunda bíla. Volvo XC90 sem kostar
rúmlega 10 milljónir króna seldist í
22 eintökum á þessu ári í samanburði
við eitt eintak á síðasta ári. Seldir
hafa verið rúmlega 100 fleiri Toyota
Landcruiser á þessu ári í saman-
burði við síðasta ár, en Landcruiser
er hægt að fá frá 9 milljónum króna.
Minni bensíneyðsla og mengun
Sala á Porsche hefur rúmlega tvö-
faldast milli tímabila en seldir hafa
verið 53 nýir Porsche bílar á fyrstu 8
mánuðum ársins. Verð þeirra er frá
12 milljónum króna. Björn Ragnars-
son, framkvæmdastjóri bílasviðs
Bílabúðar Benna, segir að bílamark-
aðurinn í heild sinni hafi verið að
taka vel við sér. „Við höfum séð það
að fólk sem átti fínni bíla hefur dreg-
ið það lengi að endurnýja bílana sína.
Það skýrir að einhverju leyti þessa
aukningu en það má líka nefna að
verðmunur á dýrari lúxusbílum er
orðinn lítill í samanburði við aðra
bíla.“ Hann segir það einnig hafa
áhrif á aukna sölu dýrari tegunda að
Landsframleiðslan jókst um 5,6% á
öðrum ársfjórðungi í samanburði við
sama fjórðung í fyrra, samkvæmt
nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.
Hefur aukning landsframleiðsla ekki
verið meiri í einum ársfjórðungi frá
ársbyrjun 2008. Hagvöxtur á fyrstu
sex mánuðum ársins nemur alls 5,2%
og hefur ekki verið jafn mikill á fyrri
helmingi árs síðan 2007.
Þjóðarútgjöld jukust um 7,3% á
fyrri helmingi ársins, þar af jókst
fjárfesting um 21,2%. Á öðrum árs-
fjórðungi nam fjárfestingarvöxtur
23,4%. Að frádreginni fjárfestingu í
skipum og flugvélum jókst fjárfest-
ing um 6,1% á fyrri helmingi ársins.
Einkaneysla jókst um 4,4% á fyrstu
sex mánuðum ársins og samneysla
um 1,0%.
Innflutningur jókst hraðar en út-
flutningur vöru og þjónustu á fyrri
árshelmingi en innflutningsvöxtur
var 13,6%. Útflutningurinn jókst
hins vegar um 9,0% á sama tíma. Þar
af óx útflutningur á þjónustu um
15,5% en vöruútfluningur um 3,9%.
Samanlagður afgangur af vöru- og
þjónustuviðskiptum var um 65,7
milljarðar króna á fyrstu sex mán-
uðum ársins, sem er mun hærri fjár-
hæð en á sama tímabili í fyrra, þegar
hann var 30 milljarðar króna á verð-
lagi þess árs.
Minni hagvöxtur 2014
Hagstofan birti einnig í gær
endurskoðaðar tölur um landsfram-
leiðslu síðasta árs. Samkvæmt þeim
var 1,8% hagvöxtur á árinu 2014,
sem er lækkun um 0,1 prósentu frá
tölum Hagstofunnar frá í mars.
Einkaneysla var aðeins minni en í
fyrri tölum og nam hún 3,7% í fyrra.
Vöxtur fjárfestinga reyndist hins
vegar meiri en áður var áætlað og
jukust þær um 15,4% á síðasta ári.
Morgunblaðið/Ómar
Uppgangur Þjóðarútgjöld jukust
um 7,3% á fyrri helmingi ársins.
Mesti hagvöxtur á
ársfjórðungi í 7 ár
Fjárfesting jókst
um 21,2% á fyrstu
sex mánuðunum
Fyrirsjáanlegt er að tryggingafélögin
þurfi að hækka verð til að mæta
auknum tjónakostnaði. Þetta segir
Sigurður Örn Karlsson, sérfræðingur
hjá IFS Greiningu. „Þau þurfa að
hækka verð, með hækkun gjaldskrár
eða lækkun afslátta, en þegar sam-
sett hlutfall er komið yfir 100% hjá
öllum félögunum eru hækkanir fyr-
irsjáanlegar,“ segir hann og bætir við
að tjónatíðni hækki samhliða upp-
gangi í hagkerfinu.
Að sögn Ragnheiðar Agnarsdóttur,
framkvæmdastjóra einstaklingsráð-
gjafar og markaðsmála hjá TM, eru
engar gjaldskrárhækkanir í farvatn-
inu. Hins vegar sé verið að endur-
skoða afsláttarkjör einstakra við-
skiptamannahópa þar sem afslættir
hafi farið hækkandi á síðustu miss-
erum.
Sigurður Óli Kolbeinsson, fram-
kvæmdastjóri vátryggingasviðs hjá
Verði, segir félagið stöðugt fylgjast
með afkomu mismunandi trygginga-
greina og aðlaga verð að kostnaði
hverju sinni. „Það er þó ætíð mark-
mið félagsins að halda eins mikið aft-
ur af verðhækkunum og mögulegt er
og reynt er að grípa til ýmissa ann-
arra aðgerða en að hækka verð.“
Samhliða breytingum á kjörum var
ákveðið að fella niður eigin áhættu í
ábyrgðartryggingu ökutækja í vildar-
kerfi Varðar, sem komi á móti ið-
gjaldabreytingum. Ekki standi til að
grípa til frekari breytinga á öku-
tækjatryggingum á næstunni.
Haft er eftir Sigurjóni Andréssyni,
markaðsstjóra hjá Sjóvá, að tjónum
hafi fjölgað mikið undanfarin misseri.
„Hjá Sjóvá hækkaði kaskótrygging
ökutækja frá og með 2. september.
Algeng hækkun fyrir viðskiptavini er
á bilinu 1-2%. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um frekari hækkun á
gjaldská.
Björn Brynjólfsson, fjölmiðla-
fulltrúi VÍS, segir iðgjöld og afslætti í
sífelldri skoðun, til að bregðast við
breytingum á tjónakostnaði einstakra
vátryggingagreina. brynja@mbl.is
Verðhækkanir
fyrirsjáanlegar
Hár tjónakostnaður tryggingafélaga