Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 27

Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015 Bið Þegar beðið er eftir strætó í Breiðholtinu má nota tímann til þess að standa kyrr, sitja, klóra sér í höfðinu eða fylgjast með fréttum með því að kíkja á Moggann í símanum. Golli Tæplega 10.700 manns á Íslandi lifa á lágmarkslífeyri. Þetta eru aldraðir, öryrkjar og sjúkir sem reiða sig eingöngu á greiðslur frá almanna- tryggingum og eru samkvæmt öllum könnunum verst setti hópur landsins. Þá er umhugsunarefni að konur, bæði aldraðar og öryrkjar, eru í meirihluta þeirra sem lifa á lágmarkslífeyri frá almannatrygg- ingum. Í kjarasamningum sl. vor var samið um að lágmarkslaun færu í 300.000 krónur árið 2018. Í nýju fjárlaga- frumvarpi eru lífeyr- isþegum ekki tryggð sambærileg kjör. Þess vegna hefur Samfylk- ingin lagt fram frum- varp um hækkun líf- eyris í 300 þúsund krónur á gildistíma nýrra kjarasamninga. Viðsnúningurinn í ríkisrekstrin- um er gleðiefni og er afrakstur réttra ákvarðana í efnahagsmálum frá hruni. Við hefðum viljað sjá hann meiri með réttlátari gjald- töku af auðlindum og sjá svigrúm- ið nýtt á annan hátt, en enginn getur deilt um að svigrúmið er nú til staðar. Þess vegna er sárara að þeir, sem hafa fært fórnirnar und- anfarin ár, fái ekki að njóta þegar betur árar. Hækkun lífeyris almannatrygg- inga í samræmi við hækkun lægstu launa er siðferðislegt réttlætismál. Ef samfélagssátt næst um að hækka lágmarkslaun vegna þess að þau eru talin lægri en góðu hófi gegnir, hlýtur sú sátt líka að eiga ná til lífeyrisþega. Lífeyrisþegar þiggja ekki lífeyri að gamni sínu. Þeir geta ekki geta unnið fyrir sér af ástæðum sem þeir ráða ekki við. Fólk í þeirri stöðu á rétt á sama réttlæti og þeir sem eru enn virkir á vinnumarkaði. Þar fyrir utan er hækkun lífeyr- is efnahagslega skynsamleg. Ef við höldum lífeyrisþegum í fátæktar- gildru erum við á sama tíma að minnka möguleika fólks á að njóta lífsgæða sem eru nauðsynleg hverjum manni til að halda heilsu og vera virkur þátttakandi í sam- félaginu. Þá er hætt við að kostn- aður samfélagsins af alls konar annarri þjónustu aukist einfaldlega á móti. Við skulum sameinast um að tryggja öldruðum og örorkulífeyr- isþegum jafna stöðu í samfélaginu. Eftir Árna Pál Árnason »Ef samfélagssátt næst um að hækka lágmarkslaun vegna þess að þau eru talin lægri en góðu hófi gegn- ir, hlýtur sú sátt líka að eiga ná til lífeyrisþega. Árni Páll Árnason Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. Aldraðir og öryrkjar eiga líka að fá 300.000 Hreyfiafl flótta- mannabylgjunnar sem risið hefur og borist að ströndum Evrópu af auknum þunga síðustu misseri er samsett af mismunandi þáttum. Stærsti áhrifavald- urinn er styrjaldarátök sem rekið hafa fólk burt frá heimkynnum sínum á vergang út í óvissu þar sem flestir hafna í flóttamannabúðum, en hluti tekur sig síðan upp í leit að vænlegri framtíð. Styrjaldirnar í Afganistan, Írak, Sýrlandi og Líbíu, sem Vest- urveldin bera höfuðábyrgð á, eru drýgsta undirrótin, en þar við bæt- ast skærur, óstjórn og innanlands- átök í mörgum Afríkuríkjum sem magnast hafa frá síðustu aldamót- um. Netvæðingin og fjölmiðlabylt- ingin í krafti hennar flytur fréttir um gull og græna skóga handan Mið- jarðarhafs inn í neyðarbúðir og fá- tækustu hreysi. Smygl á fólki yfir hafið við hraklegustu aðstæður hef- ur á fáum árum orðið blómstrandi atvinnugrein sem minnir á þræla- sölu fyrri alda. Flest bendir til að þetta sé aðeins upphafið að holskeflu sem ríða muni yfir vestanverða Evrópu af auknum þunga næstu árin. Athyglisvert er að Bandaríkin sem hvað mesta ábyrgð bera á upplausninni, taka að- eins við örfáum af þeim sýrlensku flóttamönn- um sem leita vestur um haf. Evrópusambandið í uppnámi Ólík viðbrögð við flóttamannastraumn- um í ríkjum Evrópusambandsins bætast nú við háværa bresti sem fyr- ir voru, síðast vegna Grikklands á efnahagslegum vonarvöl. Frjálst flæði fólks innan ESB var einn af marglofuðum hornsteinum fjórfrels- isins, en á móti skyldi koma hert og örugg landamæravarsla út á við. Schengen-kerfið um afnám landa- mæraeftirlits sem Ísland var vélað inn í um síðustu aldamót og Dyfl- inarreglugerðin um hælisleitendur áttu að vera meginstoðir til að tryggja framkvæmd þessa fyr- irkomulags. Nú er Schengenkerfið í uppnámi og alls óvíst um framtíð þess og Þýskaland hefur sagt sig frá Dyflinarreglugerðinni þegar sýr- lenskir hælisleitendur eiga í hlut. Þótt þýsk stjórnvöld baði sig nú í sviðsljósi fjölmiðla fyrir meinta mildi í garð flóttamanna, saka margir þar- lendis Merkel kanslara um sýnd- armennsku og að hagsmunir þýsks vinnumarkaðar ráði för á kostnað viðleitni til einingar þarlendis og innan ESB. Hætt er líka við því að glansmyndin fölni þegar farið verður að vísa fjölda nýkominna flótta- manna til baka, en aðeins fáar vikur eru liðnar síðan þýska stjórnin með samþykki Bundestag herti á ákvæð- um um hælisumsækjendur. Arðrán og efnahagsleg misskipting Flutningar fjölda fólks landshorna og landa á milli eru ekki nýir af nál- inni, sumpart vegna rýrnandi land- kosta og harðinda sem og væntinga um betra líf annars staðar. Fjölda- flutningar fólks frá Norðurlöndum til Vesturheims á seinnihluta 19. ald- ar eru þar nærtækt dæmi. Ytri að- stæður mannkyns eru nú hins vegar gerbreyttar, íbúafjöldi jarðar hefur fjórfaldast á síðustu 100 árum, þurrð auðlinda eins og ferskvatns blasir við samhliða loftslagsbreytingum, og efnahagsleg misskipting fer ört vax- andi, einnig innbyrðis í þróuðum ríkjum. Ef miklir og örir fólksflutn- ingar bætast við slíkar aðstæður er hætt við að það leiði til vaxandi spennu að viðbættum árekstrum af menningarlegum eða trúarlegum toga. Hér blasir því við gífurlegur vandi sem kallar á grundvallarbreyt- ingar í samskiptum innan þjóðríkja og milli heimshluta. Mannúðarstefna er fögur hugsjón og nærtæk öllu heilbrigðu fólki. En hætt er við að hún endist skammt ef að þrengir efnahagslega og gefa þarf upp á nýtt í velferðarkerfi sem þegar berst í bökkum. Minnast má í því sambandi niðurlags kvæðis eftir Örn Arnarson um refinn: „En það, sem ei verður etið,/aldrei lagavernd fær./Svo langt kemst mannúð manna/sem mat- arvonin nær.“ Ísland svari hófstilltum kröfum Brýnt er að íslensk stjórnvöld fylgist sem best með því sem er að gerast alþjóðlega í málefnum flótta- manna og marki sér stefnu sem taki mið af aðstæðum hérlendis. Nú þeg- ar liggur fyrir mikilvæg og um margt farsæl reynsla af komu inn- flytjenda hingað og aðlögun þeirra. Íslensk stjórnvöld hafa hingað til ekki tekið við flóttamönnum nema þeim sé búin besta aðstaða, sem hlýtur að setja ákveðin takmörk um fjölda þeirra. Fyrirliggjandi endur- skoðun á lögum um útlendinga í samvinnu innanríkisráðurneytis og þverpólitískrar þingmannanefndar er jákvætt og tímabært skref. Öllum má vera ljóst að Ísland leikur ekki stórt hlutverk í að leysa þann al- þjóðlega vanda sem við blasir vegna aðstreymis flóttamanna norður á bóginn. Spurningar um árlegan tölu- legan fjölda sem tekið verði við hér- lendis geta verið misvísandi og beint athygli frá kjarna máls, sem er að vanda til verka til lengri tíma litið. Liður í framlagi Íslands ætti líka að vera að auka stig af stigi framlag okkar til þróunaraðstoðar þannig að það nái sem fyrst viðmiði Sameinuðu þjóðanna um 0,7% af árlegri þjóð- arframleiðslu. Efnahagslegur jöfn- uður og sjálfbært umhverfi er jafn- framt það markmið sem vænlegast er til árangurs fyrir almannaheill og á því sviði hafa Íslendingar sem aðr- ir verk að vinna. Eftir Hjörleif Guttormsson » Flest bendir til að þetta sé aðeins upp- hafið að holskeflu sem ríða muni yfir vest- anverða Evrópu af auknum þunga næstu árin. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Flóttamannastraumurinn – baksvið og horfur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.