Morgunblaðið - 12.09.2015, Síða 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
Aðventkirkjan í Reykjavík | Í dag, laugardag:
Biblíufræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Barna- og
unglingastarf.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Í dag,
laugardag: Guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending
frá Reykjavíkursöfnuði.
Aðventsöfnuðurinn á Akureyri | Í dag, laug-
ardag: Biblíurannsókn kl. 11. Guðsþjónusta kl.
12. Barnastarf.
Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum | Í dag,
laugardag: Biblíufræðsla kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 12. Ræðumaður er Stefán Rafn Stefánsson.
Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Í dag, laug-
ardag: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður er Eric Guðmundsson. Barna-
og unglingastarf.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Í dag, laug-
ardag: Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Erling
Snorrason. Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og
brauð eftir samkomu.
AKRANESKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Hefjum starfsárið með leiksýningu í safn-
aðarheimilinu. Hafdís og Klemmi og leynd-
ardómar háaloftsins.
AKUREYRARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Prestar eru sr. Sunna Dóra Möller,
sr. Hildur Eir Bolladóttir og sr. Svavar Alfreð
Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Tekið
verður við samskotum til aðstoðar flóttafólki.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Nýtt sunnudagaskólaefni, brúðuleikhús
og mikill söngur. Prestar sr. Petrína Mjöll
Jóhannesdóttir og sr. Þór Hauksson. Undirleik
annast Kjartan Jósefsson Ognibene. Kaffi, djús
og ávextir að lokinni guðsþjónustu.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11, brúð-
ur, söngvar, sögur og bænir. Linda Jóhanns-
dóttir djákni leiðir samverustund sunnudaga-
skólans ásamt Jarþrúði Árnadóttur og Sigfúsi
Jónassyni guðfræðinemum. Séra Sigurður Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari við messuna.
Sönginn leiða félagar úr Kammerkór Áskirkju.
Organisti er Magnús Ragnarsson. Strax að
messu lokinni verður haldinn kynningarfundur
um fermingarstarf vetrarins. Heitt á könnunni í
safnaðarheimilinu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syng-
ur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Með-
hjálpari er Sigurður Þórisson og prestur sr. Kjart-
an Jónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir
stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing á eftir.
Sjá nánar á astjarnarkirkja.is
BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Fermingarbörn næsta vors og foreldrar sér-
staklega boðin velkomin, sr. Hans Guðberg og
Margrét djákni þjóna fyrir altari. Álftanesskórinn
leiðir lofgjörðina undir stjórn Bjarts Loga org-
anista.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í
Brekkuskógum 1. Umsjón með stundinni hafa
Fjóla, Sigrún Ósk og Jón Örn.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti er Steinunn Árnadóttir. Prestur er Þorbjörn
Hlynur Árnason. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl.
13.45.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Fyrsti
sunnudagaskóli vetrarins kl. 11. Rannveig Ið-
unn og Páll organisti leiða stundina.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11
í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Steinunnar
Þorbergsdóttir Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli
Jónasson. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti
er Örn Magnússon. Tekið við gjöfum til styrktar
flóttafólki. Kirkjukaffi í safnaðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11.
Gospelkór Árbæjar- og Bústaðakirkju undir
stjórn Helgu Vilborgar. Félagar úr kór Bústaða-
kirkju undir stjórn Jónasar Þóris. Kynning á nýju
starfsfólki kirkjunnar. Þessi fjölskyldumessa
markar upphaf vetrarstarfsins.
ORÐ DAGSINS:
Enginn getur þjónað
tveimur herrum.
(Matt. 6)
Í lok sumarleyfis ber-
ast fréttir af því að
stjórnvöld vilji velta upp
nýjum flötum á hval-
veiðistefnu Íslendinga;
kanna hvort ekki eigi að
veiða minna af stór-
hvelum en meira af
smáhvelum. Útlend-
ingar hafi áhyggjur af
framgangi Íslendinga í
hvalveiðum. Jón Gunnarsson, formað-
ur Atvinnuveganefndar þingsins, er
kallaður í fjölmiðla og sem endranær
ver hann hvalveiðipólitík Íslendinga af
röggsemi. Bendir á að við séum í full-
um rétti. Skilur ekki alveg hvað sé hér
á ferðinni. Fréttamaðurinn segir það
kristaltært: Draga eigi verulega úr
hvalveiðum til að friða hina áhyggju-
fullu. Er líklegt að það takist? Stutta
svarið er nei.
Það er kominn tími til að stjórnvöld
fari að greina þetta mál
og skýra afstöðu sína á
alþjóðavettvangi í stað
þess að gæla við hug-
myndir af þessu tagi.
Hvalveiðipólitíkin
snýst ekki um hvali. Hún
snýst um þá stefnu sem
þjóðir heims hafa sam-
mælst um að fylgja varð-
andi nýtingu lifandi auð-
linda hafsins. Mótun
þeirrar stefnu var bæði
löng og ströng og þyrn-
um stráð. Á síðustu áratugum hefur
hins vegar tekist að leggja meginlín-
urnar á alþjóðavettvangi – bæði póli-
tískt sem og í vísindasamfélaginu.
Seint á 19. öld upphófst gegndarlaus
og stjórnlaus veiði á hvölum. Það er
saga um ofveiði sem við þekkjum vel.
Eftir seinni heimsstyrjöldina sáu menn
að ýmsu þurfti að breyta í samskiptum
þjóða. Nýlendustefnan hafði gengið sér
til húðar og styrjaldir með öllum sínum
hörmungum sem tæki til að leysa úr
ágreiningi lágu ljósar fyrir. Þess vegna
voru Sameinuðu þjóðirnar stofnaðar
sem og Alþjóðabankinn, Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn og urmull af öðrum
stofnunum til þess styðja þjóðir til
framfara og að leiða ágreiningsmál
þeirra til lykta með siðuðum hætti.
Alþjóðahvalveiðiráðið var sett á lagg-
irnar 1946 til að stýra hvalveiðum og
hafin var vinna við Alþjóðahafrétt-
arsaminginn (UNCLOS). Frá byrjun
voru Íslendingar í framvarðarsveitinni
við að móta reglurnar.
Þegar farið var að ræða framkvæmd
og útfærslur innan þessara al-
þjóðastofnana varð ljóst að vísindaleg
nálgun væri í raun sá eini grunnur sem
þjóðir heims gætu sameinast um: Að
afla gagna um vandamálin, greina þau
vísindalega og draga rökréttar álykt-
anir af þeim í anda upplýsingarinnar.
Nýtingu lifandi auðlinda eins og fiska
og sjávarspendýra ætti að stýra þannig
að ekki hlytist af ofveiði. Hins vegar
varð leiðtogum þessarar alþjóða-
samvinnu ljóst að aldrei myndi nást sátt
um það hvaða lífverur mætti nýta. Til
dæmis myndu hindúar aldrei sam-
þykkja neyslu á heilögum kúm, múslím-
ar ekki á óhreinu svínakjöti, gyðingar
ekki á fiskum án hreisturs. Þannig var
ljóst að enginn friður gæti orðið um
neitt annað en það að nýting mætti ekki
stofna dýrastofnum í hættu. Þetta var
skýrt og framkvæmanlegt og í anda
upplýsingarinnar sem tók við af kredd-
um og ofstæki hinna ýmsu ,,æðstu-
presta“ allra landa sem lagt höfðu lín-
urnar í gegnum aldirnar. Þessi nálgun
var síðan staðfest á stóra Ríó-fundinum
um sjálfbæra þróun árið 1992: Þeim
þjóðum sem stunduðu sannanlega sjálf-
bæra nýtingu á dýrastofnum myndu
standa allar dyr opnar á markaðstorgi
heimsins. Þetta var í raun ,,loforðið frá
Ríó“.
Sjálfskipaðir æðstuprestar nútímans
í umhverfismálum eru margir. Sumir
berjast gegn því að villtir dýrastofnar
séu nýttir til matar. Aðrir að einungis
verði leyfð sportveiði með staðbundinni
neyslu afurða. Almennt beita þessir að-
ilar ekki fyrir sig trúarkreddum. Í orði
kveðnu samþykkja þeir ,,hina vís-
indalegu aðferð“, en draga einstakar
vísindaniðurstöður í efa. Eða að var-
færnisviðmiðin séu ekki nægjanlega vel
ígrunduð. Þá er siðfræðin æ meira köll-
uð til við að undirbyggja kreddurnar og
rangtúlkanirnar. Til dæmis er hart deilt
á Íslendinga fyrir að ákveða að leyfa
veiðar á 154 langreyðum úr stofni sem
vísindamenn hafa ítrekað staðfest að
telji 50.000 dýr í norðurhöfum og þar af
um 20.000 í grennd við Ísland. Hins
vegar er stofn af langreyðum í suður-
höfum í slæmu ástandi og veiðar úr
honum því réttilega bannaðar. Þrátt
fyrir það að enginn samgangur sé á
milli þessara stofna, eins og ítrekað
hefur verið bent á af færustu vís-
indamönnum, þá ákveða stjórnvöld
margra landa að túlka það svo að um
einn stofn sé að ræða. Þess vegna séu
langreyðar einfaldlega í hættu og því
þurfi að refsa Íslandi. Þess má geta að
sama röksemd er núna höfð uppi um
tegundina þorskur, Gadus morhua: Að
almennt og á heildina litið séu þorsk-
stofnar heimsins í slæmu ástandi.
Hér er að sjálfsögðu ekkert nýtt á
ferðinni. Menn hafa haft og munu hafa
ýmsar skoðanir á öllum hlutum. Áfram
munu einstaklingar hafa sig í frammi
sem telja sig vita hvað öðrum er fyrir
bestu eða jafnvel hvað plánetunni er
fyrir bestu. Einstök þjóðríki geta kom-
ist að samkomulagi um friðun ein-
stakra dýrategunda, óháð líffræðilegri
stöðu þeirra, sem við höfum að sjálf-
sögðu mörg dæmi um hér á landi. Hins
vegar er enginn grundvöllur fyrir slíkri
friðun á alþjóðavettvangi. Og verður
sennilega ekki í þúsund ár. Eina leiðin
til að koma slíku á er með ofbeldi eða
nauðung af einhverju tagi. Það er því
hart að þurfa að horfa upp á það að
verið sé að eyðileggja þann grunn sem
lagður hefur verið með ærinni fyr-
irhöfn áratugum saman. Að sjálfskip-
aðir sérvitringar geti fengið réttbær
stjórnvöld ýmissa landa til þess að
víkja frá þessum meginreglum, reglum
sem virða rétt þjóða og einstaklinga til
að njóta þess sem náttúran hefur upp á
að bjóða enda séu almennu kröfurnar
um sjálfbærni og ábyrga nýtingu upp-
fylltar.
Það er hart að þurfa að sitja undir
því að fulltrúar stjórnvalda í ríkjum
sem við teljum okkur vinveitt, saki
okkur um að gera lítið úr alþjóðasamn-
ingum og í reynd að stunda veiðar á
dýrastofnum í útrýmingarhættu. Allt
byggt á hreinum útúrsnúningi og röng-
um upplýsingum eins og ítrekað hefur
verið sýnt fram á.
Það er kominn tími til að ráðamenn
þjóðarinnar taki þessi mál fyrir og veki
á þeim athygli á alþjóðavettvangi.
Skýri málstað Íslendinga þannig að
eftir verði tekið. Þetta er grafalvarlegt
mál, og ekkert lítilvægara en nýleg at-
laga ýmissa hópa að málfrelsi í lýð-
frjálsum ríkjum. Íslendingar hafa góð-
an málstað að verja: Að staðið verði við
þær meginreglur og samninga sem al-
þjóðasamfélagið hefur þegar sam-
þykkt. Að lönd komist ekki upp með
það að svíkja þau loforð sem þau hafa
undirgengist með undirritun alþjóða-
samninga og láta undan sérlunduðum
þrýstihópum.
Verði ekki vikið frá þessari
óheillaþróun mun ofbeldið í sínum
ýmsu myndum taka völdin í stað virkr-
ar alþjóðasamvinnu. Æðstuprestarnir
komast á ný upp á dekk.
Réttur Íslands til að nýta lifandi
auðlindir sínar með sjálfbærum hætti
er í húfi.
Gerir Ísland rétt með því að veiða hvali?
Eftir Grím
Valdimarsson » Það er kominn tími
til að ráðamenn
þjóðarinnar taki þessi
mál fyrir og veki á þeim
athygli á alþjóðavett-
vangi.
Grimur Valdimarsson
Höfundur er ráðgjafi og fyrrverandi
forstjóri fiskiðnaðarsviðs Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO).
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
AUDI A6 2,0 TDI nýskráður 03/2013, ekinn 48 Þ.km, 2,0 diesel, sjálfskiptur. 19” felgur og ný dekk, leður og alcantaraáklæði, Bluetooth,
Navigation, Stopp/start, Aux tengi, eyðsla aðeins 6L/100km innanbæjar. Lægra verð til leigubílsstjóra . Verð 7.890.000 kr. Raðnr. 254090
Fasteignasala Reykjaness auglýsir til sölu þriggja herbergja
íbúð, 101m2, á þessum eftirsótta stað í Reykjavík. Íbúðin er
á annarri hæð í þriggja íbúða fjölbýli að Grenimel 13. Í risi
hefur verið innréttað lítið herbergi. Um er að ræða 2 svefn-
herbergi með innbyggðum skápum, eldhús, stórt hol, salerni
og stofa, inn af stofu er borðstofa sem auðveldlega má
breyta í þriðja herbergið, þaðan er gengið út á suðursvalir.
Parket og flísar á gólfum, innihurðir og innréttingar mjög vel
með farnar. Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús, þar
er einnig lítil geymsla sem tilheyra íbúðinni. Upphitað eink-
abílastæði fylgir íbúðinni. Mjög vel með farin eign á besta
stað í borginni, steinsnar frá Háskólabíó og Þjóðminjasafni.
Verð kr. 48.000.000
Opið hús þriðjudaginn, 15. september frá kl. 18.00 - 19.00
Reynir Þorsteinsson
lögg.fasteigna & skipasali.
Víkurbraut 27, Grindavík
Sími 533 4455
www.netver.is
Grenimelur 13