Morgunblaðið - 12.09.2015, Side 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
„Að teikna skopmyndir í blöðin er
allt öðruvísi en venjuleg myndlist eða
að myndskreyta bækur. Ég er í stöð-
ugu samtali við samfélagið og maður
fær viðbrögð á hverjum degi sem
gerir það mjög spennandi að vera í
þessu starfi.“
Halldór hlaut hönnunarverðlaun
og viðurkenningar FÍT í flokki
myndskreytinga árin 2002, 2004,
2006, 2008 og aðalverðlaun Félags ís-
lenskra teiknara 2009. Þá fékk hann
bókaverðlaun barnanna 2005 fyrir
Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunn-
arsdóttur og Íslensku barna-
bókaverðlaunun 2006 fyrir Prinsess-
una undurfögru og hugrakka
prinsinn hennar eftir Margréti
Tryggvadóttur. Hann var tilnefndur
til blaðamannaverðlauna fyrir skop-
myndir sínar 2007 og 2010 og heið-
ursverðlauna Myndstefs 2007.
Vill sjá til borgarinnar
„Ég bý við þann lúxus að vinnan
mín samtvinnast áhugamálum
mínum. Ég fylgist mikið með mynd-
list, sérstaklega samtímalist, og fer í
þessi litlu gallerí til að skoða hvað
ungir myndlistarmenn eru að gera.
Ég hef sérstakan áhuga á því þegar
myndasögunni er blandað saman við
samtímalist.
Ég hlusta mikið á tónlist meðan ég
er að vinna og hneigist til að hlusta á
eitthvað sem er mátulega reitt til að
halda mér vakandi en tekur heiminn
ekkert of alvarlega. Ég nota hana til
að halda mér í rétta skapinu í
vinnunni og núna er ég að hlusta á
hljómsveitina Sleaford Mods, sem er
pönkskotið rokk.
Svo er ég þónokkuð fyrir útivist en
vil ekki fara mjög langt og vil helst
sjá til borgarinnar. Gönguferðir í
Esjunni og Heiðmörk eru mín ferða-
lög, en ég fæ heilmikið útivistarkikk
út úr þeim.“
Tvíburasystkinin Halldór og Lára
ætla að halda saman upp á afmælið í
dag. „Hún verður með kokteilboð
seinnipartinn og ég verð með partí
seinna um kvöldið.“
Fjölskylda
Maki: Hlíf Una Bárudóttir, f. 11.5.
1983, nemi í diplómanámi í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur. Foreldrar:
Bára Bryndís Sigmarsdóttir, f. 6.1,
1966, framhaldsskólakennari í
Menntaskólanum í Reykjavík, og
Arnþór Hreggviður Gunnarsson, f.
17.7. 1965, d. 26.10. 2011, bús. í Kaup-
mannahöfn. Fyrri maki: Sigríður
Melrós Ólafsdóttir, f. 18.6. 1965,
safnstjóri Listasafns Einars Jóns-
sonar.
Börn: Baldur Kolbeinn Hall-
dórsson, f. 22.3. 1993, nemi í heim-
speki í Háskóla Íslands. Maki: Ása
Ester Sigurðardóttir, f. 18.6. 1995;
Ólafur Elliði Halldórsson og Steinn
Völundur Halldórsson, tvíburar, f.
24.7. 1998. Þeir eru báðir á tónlist-
arbraut í Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
Systkini: Ragnar Baldursson, f.
30.11. 1955, sendiráðsfulltrúi í Pek-
ing og Reykjavík, Heiður Bald-
ursdóttir, f. 31.5. 1958, d. 1.6. 1993,
rithöfundur og sérkennari í Reykja-
vík, og Lára Baldursdóttir, f. 12.9.
1965, deildarstjóri í Þjónustumiðstöð
Breiðholts.
Foreldrar: Baldur Ragnarsson, f.
25.8. 1930, kennari í íslensku í
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
ljóðskáld og esperantisti, og k.h. Þór-
ey Mjallhvít Halldórsdóttir Kolbeins,
f. 31.8. 1932, kennari í Ísaksskóla og
yfirkennari í Þroskaþjálfaskóla
Íslands.
Úr frændgarði Halldórs Baldurssonar
Halldór
Baldursson
Ólína Jónsdóttir
húsfr. á Hvallátrum
Lára Ágústa Ólafsdóttir
prestsfrú
Halldór Kristján Kolbeins
prestur í Vestmannaeyjum,
Skagafirði og Súgandafirði
Þórey Mjallhvít Halldórs-
dóttir Kolbeins
kennari í Reykjavík
Þórey Bjarnadóttir
prestsfrú
Eyjólfur Kolbeins
prestur á Melstað í Miðfirði, V-Hún.
Kristín Jónína Þorsteinsdóttir
húsfr. á Eskifirði og í Rvík
Marteinn Þór
Viggósson, fv.
prentari í Rvík
Andri Marteinsson
fv. landsliðsmaður
í knattspyrnu
Eyjólfur Kolbeins bóndi og
verslunarm. í Bygggarði og
á Kolbeinsst., Seltjarnarn.
Þórey Eyjólfsdóttir
sölum. hjá Flugleiðum
Haraldur
Ólafsson
veðurfræðingur
Þórunn Kolbeins prestsfrú
í Vestm. og Rvík
Snjólaug
Sigurjónsdóttir
kennari í Rvík
Sigurjón Þ. Árnason fv.
bankastj. Landsbankans
Ingveldur
Gíslad. húsfr.
á Patreks-
firði
Gyða
Guðmundsd.
húsfr. á
Akureyri
Guðmundur
Oddur
Magnússon
(Goddur)
professor
við LHÍ
Gísli Kolbeins fv. sóknar-
prestur á Melstað í Miðfirði
Pálína Guðmundsdóttir
húsfr. í Riftúni
Sigurður Bjarnason
bóndi í Riftúni í Ölfusi
Sigríður Sigurðardóttir
húsmóðir á Eskifirði
Ragnar Þorsteinsson
kennari á Eskifirði
Baldur Ragnarsson
menntaskólakennari
í Reykjavík
Þuríður Andrésdóttir
húsfr. á Eskifirði
Þorsteinn Marteinsson
netagerðarm.á Eskifirði
Ólafur Bergsveinsson
útvegsbóndi á Hvallátrum
í Breiðafirði
Gísli Berg-
sveinsson b. í
Rauðseyjum
og víðar á
Breiðaf.
Laugardagur
100 ára
Guðný Jóna
Þorbjörnsdóttir
90 ára
Sigurður Björnsson
85 ára
Guðrún Ísleifsdóttir
Lilja Þórðardóttir
Magnea Sveinbjörg
Árnadóttir
Sólveig Þrándardóttir
80 ára
Bjarni Heiðar Joensen
Elín Jóna Elíasdóttir
Jóhanna Jóhannsdóttir
María Bergmann
75 ára
Guðrún Helga Ágústsdóttir
Sigríður Björgvinsdóttir
Steindór H. Haarde
Þórunn Christiansen
70 ára
Dögg Ólafsdóttir
Elín Guðmundsdóttir
Erling Þór Hermannsson
Guðrún Jóhannsdóttir
Hans W. Ólafsson
Jón Sigurðsson
Magnús Ísfjeld Magnússon
Petra Kristín Jakobsdóttir
Ragnar Bragason
Sigurjón Skúlason
Víóletta Granz
60 ára
Brynja Sigfúsdóttir
Erla Fanney Óskarsdóttir
Guðjón Þór Guðjónsson
Guðmundur Þór Jónsson
Hafdís Magnúsdóttir
Hrefna Unnur Eggertsdóttir
Loritta Maria Lewanczyk
Ólafur Guðmundur
Jóhannesson
50 ára
Auður Dagný Gunnarsdóttir
Birgir Stefán Berndsen
Chalaem Daengmani
Friðgerður M Friðriksdóttir
Guðný Þórunn
Kristmannsdóttir
Halldóra Pálsdóttir
Helga Guðrún
Sigurjónsdóttir
Hrafnhildur Hilmarsdóttir
Jóhanna Berglind Andrésd.
Júlíana Ágústsdóttir
Lára Sigríður Baldursdóttir
Óskar Þór Kristjánsson
Romualdas Voisiatas
Sonja Guðrún Ásbjörnsd.
Sólveig Ólafsdóttir
40 ára
Aðalheiður Atladóttir
Borgar Gunnar Guðmunds-
son
Ellert Örn Erlingsson
Gyða Arnórsdóttir
Gyða Hrund Jóhannesd.
Hörður Þór Sigurðsson
Íris Björg Úlfarsdóttir
Jón Þór Sigmundsson
Margrét Þóra Óladóttir
Þórður Viðar Gunnarsson
Þórunn Erna Clausen
30 ára
Attila Szemes
Ármann Örn Vilbergsson
Fannar Guðmannsson Levy
Haraldur Ingvason
Hildur Anna Karlsdóttir
Ingunn Sara Sigbjörnsd.
Sigríður Dh. Haraldsd.
Sigrún Oddgeirsdóttir
Somjit Nuanboonma
Stefán Vilberg Leifsson
Thelma Þorsteinsdóttir
Unnur Karen Karlsdóttir
Sunnudagur
85 ára
Gísli Jónsson
Pálmi Andrésson
80 ára
Björn Baldursson
Sigurlaug Kristjánsdóttir
Þorbjörg Kjartansdóttir
75 ára
Elísabet Vilborg Jónsdóttir
Elvar Jónsson
Gunnar Gunnarsson
Herbert Valdimarsson
Lovísa Ölversdóttir
Níels Jóhannsson
Pétur Ólafsson
Sirrý Laufdal Jónsdóttir
Þórunn Bragadóttir
70 ára
Áslaug Jóhannesdóttir
Bragi Jónsson
Edda Bergrós Pálsdóttir
Eygló Sörensen
Guðmunda Arnórsdóttir
Kristbjörg Ágústsdóttir
Ólafur Sigurþór Sveinsson
Steinunn Harðardóttir
Súsanna Erla Oddsdóttir
Þórey Erlendsdóttir
60 ára
Aðalsteinn Jón
Símonarson
Elís Másson
Guðgeir Eyjólfsson
Guðjón Þ. Arngrímsson
Halina Ewa Szymanowska
Hjörleifur Þór Ólafsson
Ingibjörg Helga Hraundal
Jóna Sólmundsdóttir
Jón Ívar Guðjónsson
Kristinn Björnsson
Kristinn F.
Sigurharðarson
50 ára
Anna Björk
Ragnarsdóttir
Baldur Baldursson
Brynjar Ingimarsson
Brynjar Þór Friðriksson
Elzbieta Gr. Karpowicz
Ívar Björnsson
Kristín Karlsdóttir
Linda Björk Lýðsdóttir
Sólveig Ása Eiríksdóttir
Viggó Dýrfjörð Birgisson
40 ára
Dagur Gunnarsson
Davíð Atli Jones
Ewa Janiszewska
Fjölnir Freyr Sverrisson
Gísli Páll Friðbertsson
Hans Alan Tómasson
Hrafnhildur Þorleifsdóttir
Hulda Klara Ingólfsdóttir
Ingiríður Blöndal
Jón Grétar Ólafsson
Jón Óskar Friðriksson
Júlía Ingibjörg Geirsdóttir
Pétur Ingi Ragnarsson
Ragnheiður Ósk Traustad.
30 ára
Aðalgeir Ásvaldsson
Anna Lilja Kjartansdóttir
Arnaud Siad
Birgir Hrafn Sigurðsson
Eyrún Sif Kristjánsdóttir
Gerður Guðmundsdóttir
Gunnar Sigvaldason
Gunnar Símon Salvarsson
Idalirys Cuesta Rodriguez
Jens Kristinn Elíasson
John Russell Hutton
Jóhanna Björg Jóhannsd.
Jóhann Gunnar Einarsson
María Björg Gunnarsdóttir
Róbert Páll Lárusson
Sigríður María Sigurðard.
Til hamingju með daginn
Sigríður Zoëga hefur varið doktors-
ritgerð sína í hjúkrunarfræði við Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
„Gæða verkjameðferð á sjúkrahúsi.“
(„Quality Pain Management in the
Hospital Setting.“)
Verkir eru algengir á sjúkrahúsum
og ófullnægjandi verkjameðferð hefur
neikvæð áhrif á líðan og bata sjúk-
linga. Tilgangur rannsóknarinnar var
að skoða, skilgreina og meta gæði
verkjameðferðar á sjúkrahúsum. Verk-
efnið byggist á þremur rannsóknum. Í
þeirri fyrstu var hugtakagreining not-
uð til að skilgreina hugtakið gæða
verkjameðferð. Í annarri rannsókninni
voru próffræðilegir eiginleikar endur-
skoðaðs spurningalista bandaríska
verkjafræðafélagsins (APS-POQ-R)
kannaðir. Í þeirri þriðju, sem var með
stundaralgengissniði, var annars veg-
ar innihald verkjameðferðar og hins
vegar árangur verkjameðferðar met-
inn hjá sjúklingum á 23 legudeildum
Landspítala. Gæða verkjameðferð
byggir á stofnanatengdum þáttum,
meðferðarferlinu og árangri með-
ferðar hjá sjúklingum. Gæða verkja-
meðferð tekur mið af óskum og þörf-
um sjúklinga, er örugg, skilvirk,
árangursrík,
veitt á rétt-
um tíma og
byggir á
jafnræði. Ís-
lensk útgáfa
APS-POQ-R
reyndist
áreiðanleg
og réttmæt
til að meta
árangur
verkja-
meðferðar á íslenskum sjúkrahúsum.
Tíðni verkja reyndist 83% og 35%
sjúklinga höfðu upplifað mikla verki
undanfarinn sólarhring þegar spurt
var. Verkjameðferðin var að mörgu
leyti í samræmi við leiðbeiningar um
meðferð verkja. Þó fengu margir sjúk-
lingar ekki verkjalyf í samræmi við
styrk verkja og skráningu og mati
verkja var ábótavant. Ánægja sjúk-
linga og þátttaka í ákvarðanatöku
tengdust betri árangri meðferðar.
Virkja þarf þátttöku sjúklinga í ákvarð-
anatöku, meta verki markvisst með
kvörðum og nýta þau meðferðar-
úrræði sem eru til staðar til að bæta
gæði verkjameðferðar á sjúkrahúsum.
Sigríður Zoëga er fædd árið 1973 og lauk BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla
Íslands árið 2002, viðbótardiplóma í krabbameinshjúkrun árið 2006 og MS prófi
í hjúkrunarfræði frá sama skóla tveimur árum síðar. Sigríður, sem hóf dokt-
orsnám við HÍ árið 2011, er sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala og lektor við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Hún er gift Sigurði Eyþórssyni.
Doktor
Sigríður Zoëga Nýr Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði
STOFNAÐ 1956
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
Sproti 405
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir