Morgunblaðið - 12.09.2015, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í ár eru liðin 30 ár frá því Fílharm-
ónían í Lundúnum, Philharmonia
Orchestra, hélt merkilega tónleika
undir stjórn Vladimirs Ashkenazy í
Royal Festival Hall í Lundúnum.
Tónleikarnir voru haldnir að frum-
kvæði framkvæmdastjóra hljóm-
sveitarinnar, Archie Newman, og
rann allur ágóði af miðasölu til bygg-
ingar tónlistarhúss í Reykjavík.
Newman vildi fá Vladimir Ashkenazy
til að stjórna hljómsveitinni og bað
sendiherra Íslands í Lundúnum, Ein-
ar Benediktsson, um að hafa milli-
göngu þar um. Ashkenazy var til í
slaginn og kom aðeins einn tónleika-
dagur til greina þennan vetur, 26.
febrúar árið 1985. Vildi svo til að
þann dag áttu Ashkenazy og eig-
inkona hans brúðkaupsafmæli. Brá
hann af venju að vinna ekki þann dag
þar sem hann vildi allt fyrir Ísland
gera, eins og kemur fram í grein Ein-
ars sem birt var 20. maí árið 2011 í
Vísi. 16 dögum fyrr, 4. maí, stjórnaði
Ashkenazy Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands á opnunartónleikum í Hörpu.
Voru þá 26 ár liðin frá tónleikunum í
Lundúnum.
Fílharmónían hélt tónleika í Laug-
ardalshöll á Listahátíð í Reykjavík
árið 1984 og eftir ferðina þótti ljóst að
gott tónleikahús vantaði á Íslandi.
Var því blásið til tónleikanna í Royal
Festival Hall sem vöktu mikla athygli
bæði í Bretlandi og hér á landi, fjöl-
miðlar fjölluðu ítarlega um þá og þá
ekki síst vegna þess að meðal gesta á
tónleikunum var Vigdís Finn-
bogadóttir, þáverandi forseti Íslands,
Karl Bretaprins, verndari hljómsveit-
arinnar og eiginkona hans, Díana
prinsessa. Í frétt um tónleikana í
Morgunblaðinu degi síðar kom fram
að á tónleikunum hefðu safnast á milli
600 og 800 þúsund krónur sem sam-
svarar um 4,4 - 5,9 milljónum króna í
dag. Hljómsveitin átti því mikilvægan
þátt í byggingu tónlistarhúss.
Aðkallandi að fá tónlistarhús
Fílharmónían var fyrst breskra
sinfóníuhljómsveita til að halda tón-
leika hér á landi, hljómsveit sem á vef
Hörpu er sögð þjóðarhljómsveit
Breta. Hún snýr nú aftur til Íslands
og heldur tónleika í Eldborgarsal
Hörpu, 18. og 19. október nk. Á tón-
leikunum mun tékkneski stjórnand-
inn Jakub Hruša stjórna tveimur vin-
sælum tékkneskum verkum: Forleik
að óperunni Selda brúðurin eftir
Smetana og sjöundu Sinfóníu Dvo-
ráks. Rússneski píanistinn Danil
Trifonov mun enda tónleikana með
öðrum píanókonserti Rachmaninovs.
„Þeir luku upp vitundinni fyrir því
hve aðkallandi það væri að fá tónlist-
arhús,“ segir Vigdís Finnbogadóttir,
spurð að því hvort tónleikarnir í
Lundúnum hafi haft mikil áhrif á
báráttuna fyrir byggingu tónlistar-
húss. Hún segir að fólk sem sótti tón-
leika áður en Harpa var opnuð hafi
gert sér vel grein fyrir því að það
væri ekki nógu góður hljómburður í
Háskólabíói eða Laugardalshöll.
„Eftir því sem tónlist hefur vaxið ás-
megin í landinu þá auðvitað varð
meira aðkallandi að fá gott tónlistar-
hús sem við höfum núna fengið og
með þeim betri í veröldinni,“ segir
Vigdís.
– Það er í raun ótrúlegt að hugsa
til þess að hljómsveit á borð við þessa
hafi þurft að leika í Laugardalshöll.
„Já. Ashkenazy var náttúrlega og
er svo mikill Íslendingur, mikill vinur
okkar og þau hjón og með metnað
fyrir tónlist hérna heima. Ég geri ráð
fyrir að hann hafi verið sá sem stóð
fyrir því að hljómsveitin kom hingað.
Og hvert átti að fara?“ segir Vigdís.
Það hafi ekki verið aðrir kostir í stöð-
unni en Háskólabíó og Laugardals-
höll og höllin hafi væntanlega orðið
fyrir valinu þar sem hún rúmar fleiri
gesti.
– Þetta var mikill velvilji í garð Ís-
lendinga sem hljómsveitin sýndi, að
halda þessa tónleika. Hvers vegna
heldur þú að þeim hafi verið svona
umhugað um íslenskt tónlistarlíf?
„Þau voru búin að reyna þetta á
eigin skinni, að spila hér, tóku eftir
því að tónleikarnir voru svo vel sóttir
og gerðu sér grein fyrir því að Ís-
lendingar hefðu mikinn tónlistar-
áhuga. Það gekk fram af þeim að við
ættum ekki betra hús en þetta til að
spila í. Fólk með tónlistareyra, eins
og þetta fólk auðvitað allt er, skynjar
strax að tónlistin kemst ekki til skila í
húsi eins og Laugardalshöll,“ segir
Vigdís og bætir við að Ashkenazy
hafi haft sín sambönd. „Þetta byrjar
allt með samtölum, síðan er farið að
huga að hugsjónum og svo koma
ákvarðanir. Það var afskaplega
glæsilega að þessu staðið.“ Vigdís sat
á tónleikunum í stúku með Karli
Bretaprins og Díönu prinsessu. Hún
segir Díönu hafa verið gullfallega og
elskulega og að Karl hafi sagt henni
frá því að hann léki á selló. Hann hafi
á þessum tíma verið í breska sjóhern-
um og hún spurt hann að því hvernig
hann færi að því að leika á selló í
hernum. „Þá sagði hann: „Ég spila
uppi á dekki“. Hann er voða sætur og
indæll maður,“ rifjar Vigdís upp. „Við
sómdum okkur vel þarna í stúkunni
og það var mikið fagnað og litið úr
salnum upp til okkar. Þau, sér-
staklega Díana, voru mikið að spek-
úlera hvort þau þekktu einhvern niðri
í salnum.“
Margt smátt gerir eitt stórt
– Hvernig voru tónleikarnir?
„Þeir voru glæsilegir og fullt hús,
alveg upp í rjáfur. Þjóðsöngurinn var
leikinn og Sigríður Erlendsdóttir
sagnfræðingur var með mér og við
höfum oft minnst þess hvernig það
var að vera með þessu fólki og horfa
niður í salinn. Allir voru að horfa á
þau [Karl og Díönu, innsk.blm.] og
okkur í leiðinni. Þetta var ógleym-
anlegt. Einar Benediktsson var
sendiherra þá og var með okkur,“
segir Vigdís og bætir því við að henni
hafi fundist meira gaman að því að
verið væri að halda tónleikana en að
hitta þetta fína fólk. „Mér fannst það
kjarninn. Það var alveg magnað að
sjá Ashkenazy stýra hljómsveit sem
var að gefa tónleikana til íslensks tón-
listarhúss. Mér fannst það magnað og
ógleymanleg stund.“
– Tókstu mikinn þátt í baráttunni
fyrir byggingu tónlistarhúss?
„Ég var náttúrlega einn af vinum
tónlistarhúss, hef greitt reglulega á
hverju ári í gegnum árin og margt
smátt gerir eitt stórt,“ segir Vigdís.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftirminnilegt „Það var alveg magnað að sjá Ashkenazy stýra hljómsveit sem var að gefa tónleikana til íslensks
tónlistarhúss,“ segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, um tónleika Fílharmóníunnar í Lundúnum.
„Ógleymanleg stund“
Elskuleg Ljósmynd sem fylgdi frétt á baksíðu Morgunblaðsins, degi eftir
tónleikana í Lundúnum, 27. febrúar 1985. Vigdís heilsar Díönu og Karli í
Royal Festival Hall. Vigdís segir hjónin hafa verið elskuleg.
Philharmonia Orchestra leikur í Hörpu 30 árum eftir að hún hélt tónleika til styrktar byggingu tón-
listarhúss í Reykjavík Vigdís Finnbogadóttir sat tónleikana og rifjar upp í samtali við Morgunblaðið
Söfn • Setur • Sýningar
Laugardagur 12. september kl. 15: Opnun sýningarinnar Blaðamaður með
myndavél. Ljósmyndir Vilborgar Harðardóttur á Veggnum
Sunnudagur 13. september kl. 14: Leiðsögn á ensku um sýninguna
Bláklædda konan
Þriðjudaginn 15. september kl. 12: Hádegisfyrirlestur Þjóðminjasafnsins
Kristín Svava Tómasdóttir: Hvað er svona merkilegt við það?
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal
Fólkið í bænum á Veggnum
Weaving DNA á Torginu
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús
Listasafn Reykjanesbæjar
Andlit bæjarins, 300 ljósmyndir
Hughrif náttúrunnar, finnskur textíll
7 kjólar eftir Örnu Atladóttur hönnuð
3. september – 8. nóvember
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Þyrping verður að þorpi
Kirkjan mín, kirkjan þín,
kirkjan okkar allra.
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
LISTASAFN ÍSLANDS
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7.2015 - 11.9.2016
VALIN PORTRETT Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS
– FRÁ SVEITUNGUM TIL SJÁLFSKOTA 21.7. - 18.10. 2015
NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP
Opnar 18.9. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 20. september 2015
Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Heimurinn án okkar
Björg Þorsteinsdóttir,
Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Finnur Jónsson
Gerður Helgadóttir,
Marta María Jónsdóttir
Ragnar Már Nikulásson,
Steina,
Vilhjálmur Þorberg Bergsson
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is,
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist,
plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Veitingahúsi Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið daglega frá kl. 10-17.
SAFNAHÚSIÐ
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið daglega frá 10-17
GEYMILEGIR HLUTIR
Að safna í söguna
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is