Morgunblaðið - 12.09.2015, Page 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
KK bandið heldur tónleika í kvöld
kl. 22 með Eyþóri Gunnarssyni
hljómborðsleikara. Á tónleikunum
verða flutt lög úr lagasafni KK auk
lagasmíða annara, m.a. lög af plöt-
unum Lucky One, Bein leið, Hótel
Föroyar og Paradís og gömul blús-
lög eftir Robert Johnson, Jimmy
Reed, J.J. Cale o.fl
KK bandið og Ey-
þór á Rosenberg
KK Leikur og syngur á Café Rosenberg.
Rýmisþræðir, sýning á verkum
Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur,
verður opnuð í Listasafninu á
Akureyri, Ketil-
húsi, í dag kl. 15.
„Þræðir
tengja Ragn-
heiði Björk við
lífið, upprunann
og uppsprett-
una. Þeir eru í
senn efniviður-
inn og viðfangs-
efnið í list-
sköpun hennar
og mynda uppi-
stöðu, ívaf og þannig verkin sjálf.
Þráðurinn er eins og blýantur og
vefnaður eins og teikning úr þráð-
um. Meðan á sýningunni stendur
mun Ragnheiður reglulega vinna
við vefnað í vefstöðum og mynd-
vefnaðarstól,“ segir um sýninguna
í tilkynningu.
Eftir brautskráningu frá textíl-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1984 stundaði Ragnheiður
meistaranám í textíl við John F.
Kennedy University frá 1984-85,
lauk uppeldis- og kennslufræði frá
KHÍ 1990 og M.Ed.-námi frá Há-
skólanum á Akureyri árið 2009.
Samhliða störfum sem textíllista-
maður hefur hún verið kennari í
Verkmenntaskólanum á Akureyri
í 27 ár og er jafnframt formaður
Félags íslenskra vefnaðarkennara.
Ragnheiður var bæjarlistamaður á
Akureyri 2014- 15.
Sýningin stendur til 25. október
og er opin þriðjudaga til sunnu-
daga kl. 12-17.
Rýmisþræðir Ragnheiðar í Ketilhúsi
Þræðir Verk af sýningunni Rýmisþræðir sem opnuð verður í dag.
Ragnheiður Björk
Þórsdóttir
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Þjóðleikhúsið frumsýnir í sam-
vinnu við Vesturport og Royal
Shakespeare Company verkið Í
hjarta Hróa hattar á stóra sviði
leikhússins kvöld.
Lára Jóhanna Jónsdóttir fer
með annað aðahlutverka sýning-
arinnar, en hún leikur hina hug-
rökku Maríönnu, sem Hrói höttur
fellur að sjálfsögðu fyrir eins og
allir vita sem þekkja ævintýri Hróa
hattar, eða er það ekki?
„Þetta er falleg saga og þetta er
ástarsaga en líka ævintýri fullt af
bardögum og miklum hraða og
spennu inni á milli en þetta er ekki
klassísk Hróa hattar saga. Við
byrjum t.d. að kynnast Hróa hetti
sem útlaga og hrotta. Hann hefur
lokað sig af og gert hjarta sitt að
virki. Hann leyfir engum að hafa
áhrif á sig og hjálpar engum, hann
er bara glæpamaður,“ segir Lára
Jóhanna en fullvissar svo aðdáanda
hins klassíska Hróa hattar um að
enginn sé alslæmur og sé að hafa
áhrif á hrottann Hróa.
„Síðan kynnist hann
hertogadótturinni Maríönnu, sem
er alin upp við allsnægtir en þolir
það ekki. Hún hefur ofboðslega
sterka réttlætiskennd og ólgandi
hjarta og ákveður að fara út í skóg
til að bjóða Hróa hetti birginn og
verður þannig áhrifavaldur í lífi
hans.“
Hér er því á ferð önnur saga en
sú sem flestir þekkja af Hróa hetti
en alveg ofboðslega skemmtileg að
sögn Láru Jóhönnu og falleg.
Hættulega flott leikmynd
Leikmyndin er ekki síður áhuga-
verð en verkið sjálft, en Lára Jó-
hanna segir hana vera mjög
skemmtilega en um leið örlítið
hættulega.
„Leikmyndin er níu metra há
gervigrasbrekka og fyrsta daginn
fengum við öll að prófa að renna
okkur niður hana og það skulfu
margir á beinunum í fyrstu ferð.
Við erum aðeins búin að venjast
þessu síðan en það er líka verið að
klifra í köðlum, fara niður um gólf-
ið og fljúga í flugkerfinu og þess
vegna er þetta örlítið hættulegt.
Þeir sem eru á röngum stað á
röngum tíma geta fengið kaðal í
hausinn eða sverð eða svipu.“
Enginn hefur þrátt fyrir allan
hasarinn slasað sig alvarlega á æf-
ingum en eitthvað verið um minni-
háttar meiðsli.
„Við höfum sloppið mjög vel, það
eru smá skurðir hér og þar en ekk-
ert alvarlegt. Reyndar tognaði einn
leikari í liðbandi en hann verður
orðinn góður fyrir frumsýningu.“
Sagan sjálf er hættuleg og
spennandi og Lára Jóhanna segir
verkið hreinlega vera í takt við
það.
„Við erum öll rennandi sveitt
eftir sýningu enda er mikil keyrsla
í þessu. Adrenalínið fer því alveg í
botn en síðan er þetta líka róleg og
falleg ástarsaga.“
Sýningin farið um allan heim
Það er glæsilegur leikhópur sem
kemur saman í þessari æv-
intýrasýningu í Þjóðleikhúsinu.
Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld,
sem hlaut nýverið Íslensku tónlist-
arverðlaunin, hefur samið nýja tón-
list fyrir sýninguna ásamt félögum
sínum og flytur hana ásamt hljóm-
sveit á sviðinu. Verkið sjálft hefur
farið um allan heim og er Ísland
sjötta landið sem setur verkið á
fjalirnar. Lára Jóhanna segist þó
ekki finna fyrir neinni pressu að
túlka hlutverk sitt með sama hætti
og annars staðar þar sem það hef-
ur verið sett upp.
„Ég tek bara leikstjórn Gísla og
Selmu en að sjálfsögðu reyni ég að
koma með mínar áherslur líka
enda get ég ekki leikið hlutverkið
öðruvísi en út frá sjálfri mér,“ seg-
ir Lára Jóhanna, en það eru þau
Gísli Örn Garðarsson og Selma
Björnsdóttir sem fara með leik-
stjórn verksins.
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Hraði Mikill hraði er í verkinu Í hjarta Hróa hattar sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leikarar sveifla
sér um í köðlum, fara niður um gólfið og svífa um sviðið en segja líka fallega ástarsögu Maríönnu og Hróa hattar.
Hrottinn Hrói höttur
í fallegri ástarsögu
Þjóðleikhúsið frumsýnir Í hjarta Hróa hattar í kvöld
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 12/9 kl. 19:00 3.k. Fim 24/9 kl. 19:00 7.k. Sun 4/10 kl. 19:00 11.k
Sun 13/9 kl. 19:00 4.k. Fös 25/9 kl. 19:00 8.k. Fös 9/10 kl. 19:00 12.k
Fös 18/9 kl. 19:00 5.k. Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k
Sun 20/9 kl. 19:00 6.k. Lau 3/10 kl. 19:00 10.k
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Lau 19/9 kl. 20:00 3.k. Lau 26/9 kl. 20:00 5.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k.
Mið 23/9 kl. 20:00 4.k. Fim 1/10 kl. 20:00 aukas.
Aðeins þessar sýningar!
At (Nýja sviðið)
Fös 18/9 kl. 20:00 1.k. Fim 24/9 kl. 20:00 4.k. Lau 3/10 kl. 20:00 7.k.
Sun 20/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 5.k. Sun 4/10 kl. 20:00 8.k.
Mið 23/9 kl. 20:00 3.k. Mið 30/9 kl. 20:00 6.k.
Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 20/9 kl. 13:00 1.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k.
Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Sun 11/10 kl. 13:00 5.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k.
Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k.
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 19/9 kl. 20:00 2 k. Lau 10/10 kl. 20:00 4.k.
Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k.
Kenneth Máni stelur senunni
Mávurinn (Stóra sviðið)
Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k.
Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k.
Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k.
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Lau 12/9 kl. 20:00 1.k. Sun 20/9 kl. 20:00 3.k. Sun 27/9 kl. 20:00 5.k.
Fös 18/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 4.k.
Aðeins þessar sýningar!
Sókrates (Litla sviðið)
Fim 1/10 kl. 20:00 1.k. Fim 8/10 kl. 20:00 5.k. Fim 22/10 kl. 20:00 9.k
Fös 2/10 kl. 20:00 2 k. Fös 9/10 kl. 20:00 6.k. Lau 31/10 kl. 20:00 10.k
Lau 3/10 kl. 20:00 3.k. Sun 11/10 kl. 20:00 7.k.
Sun 4/10 kl. 20:00 4.k. Mið 21/10 kl. 20:00 8.k.
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k.
Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k.
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 12/9 kl. 19:30 Frums. Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn
Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn
Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn
Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn
Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn
Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn
Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Lau 12/9 kl. 19:30 4.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 10.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn
Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn
Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn
Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn
Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Mið 16/9 kl. 19:30 3.sýn Sun 20/9 kl. 19:30 4.sýn
DAVID FARR
HARÐINDIN