Morgunblaðið - 12.09.2015, Qupperneq 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2015
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Söngvari, flugmaður, sagn-fræðingur, skylmingakappi,útvarpsmaður, sjónvarps-
maður, rithöfundur, tungu-
málamaður og alveg örugglega
eitthvað meira til. Bruce Dick-
inson, söngvari bresku þunga-
rokkssveitarinnar Iron Maiden, er
maður eigi einhamur og er oft teflt
fram sem lifandi dæmi um hina
svokölluðu fjölfræðinga („poly-
math“), stétt sem hefur átt undir
högg að sækja á öld sérhæfing-
arinnar. Dickinson er fjölhæfur
skolli, þrautseigur vinnuþjarkur
sem tókst á við erfiðustu áskorun
lífs síns fyrir stuttu – þegar
krabbamein gróf um sig í tungu
hans af öllum stöðum.
Fjölsnærðir
Þrátt fyrir fjölsnærða hæfi-
leika Dickinson er tungan óneit-
anlega það sem hefur komið honum
hvað lengst og fréttin því ískyggi-
legri en ella. Krabbameinið fannst í
reglubundinni læknisheimsókn rétt
fyrir jólin 2014 og fór Dickinson
óðar í tæplega tveggja mánaða
meðferð þar sem lyfjum og geislum
var beitt. Hálfu ári síðar var til-
kynning birt á opinberri síðu Iron
Maiden og hafði meðferðin þá lukk-
ast fullkomlega. Um leið var frá því
sagt að nú myndi Dickinson taka
sér hvíld og sveitin myndi ekki
leggja í tónleikaferðalag fyrr en á
næsta ári (það mun hefjast í febr-
úar). Dickinson hefði lítinn hug á
að hefja störf fyrr en hann væri
kominn bókstaflega á flug (sjá
mynd). Þrátt fyrir þessar raunir
allar var upptökum á nýrri plötu
Iron Maiden, sem kallast The Book
Of Souls, lokið er fréttin mikla
barst og hún kom út nú fyrir stuttu.
Mikilúðlegt
Á síðustu árum hefur Maiden
lagt sig þónokkuð eftir löngum, ep-
ískum lögum fremur en snörpum,
grípandi og melódískum slögurum.
Í raun má segja að hlutfallið hafi
snúist við. Á fyrri plötum var
kannski endað á einu löngu lagi en
nú finnur maður að menn eiginlega
neyðast til að semja eitt stutt lag til
að hafa a.m.k. eitthvað fyrir út-
varpið („stuttu lögin“ eru þó ca
fimm mínútur) en svo er restin
mikilúðlegir ópusar þar sem allt er
undir. Á Book of Souls fara okkar
menn með þetta út í æsar ystu,
Að duga eða drepast
Ljósmynd/John McMurtrie fyrir ironmaiden.com
Ódrepandi Ekkert virðist stöðva Bruce Dickinson, söngvara Iron Maiden.
platan er níutíu mínútur og kemur
út á tvöföldum geisladisk eður þre-
faldri vínylplötu. Síðasta lagið, sem
er eftir Dickinson, er lengsta lag
Maiden frá upphafi, rúmar átján
mínútur (og leikur hann sjálfur á
píanó í innganginum!). Og það er til
marks um fádæma vinsældir þess-
ara glæstu stríðshrossa að allt upp-
lagið af vínylnum sem barst til
lands og elds og ísa seldist upp fyr-
ir hádegi í Smekkleysubúðinni.
Dauðleiki
Platan var tekin upp í Frakk-
landi, í sama hljóðveri og hin prýði-
lega Brave New World (2000) var
unnin en það var fyrsta hljóðvers-
plata Maiden eftir að Dickinson
hafði snúið aftur í hennar raðir.
Upptökuferlið í þetta sinnið var
losaralegt og mikið af tónlistinni
var samið á staðnum en sveitin hef-
ur venjulega eytt nokkrum vikum í
að semja áður en haldið er í hljóð-
ver. Steve Harris, hinn eiginlegi
leiðtogi sveitarinnar, hefur þá iðu-
lega átt eitthvað í flestum lögum en
í þetta sinnið sömdu flestir jöfnum
höndum þar sem Harris var frá í
talsverðan tíma vegna dauðsfalla í
fjölskyldunni. Pælingar um lífið og
endanleika þess skjóta nokkuð
reglulega upp kolli í textunum og
Harris segir slíkt einfaldlega koma
með aldrinum. Eftir því sem þeir
eldist, sæki slíkar hugsanir fastar
að. Það virðist þó eins og ansi
margt þurfi að koma til eigi
Járnfrúin að falla örend.
Iron Maiden gefur út sextándu breiðskífuna, The Book of Souls Bruce
Dickinson, söngvari sveitarinnar, barðist við krabbamein – og hafði betur
Járnfrúarvélin Þotan sem Dickinson flýgur er með merki Iron Maiden og
mynd af Eddie the Head sem járnfrúarmenn kalla rótara sveitarinnar.
» Síðasta lagið, semer eftir Dickinson,
er lengsta lag Maiden
frá upphafi, rúmar
átján mínútur (og leik-
ur hann sjálfur á píanó
í innganginum!).
Sýningin Blaðamaður með mynda-
vél verður opnuð á Veggnum í
Myndasal Þjóðminjasafnsins í dag.
Á henni verður sýnt úrval ljós-
mynda Vilborgar Harðardóttur
sem var blaðamaður Þjóðviljans á
árunum 1963-81. Á þeim tíma höfðu
ljósmyndarar ekki sérstaka stöðu í
íslenskri blaðamannastétt og því
var það í höndum blaðamanna að
mynda umfjöllunarefni sitt, segir í
tilkynningu. Vilborg fór víða og
myndir hennar varpa ljósi á tíð-
aranda, störf fólks og viðburði en
myndirnar á sýningunni eru frá ár-
unum 1963-75.
Sýningarhöfundur er Sigurlaug
Jóna Hannesdóttir.
Blaðamaður
með myndavél
Samvinna Hluti einnar myndanna.
Hljómsveitin Milljónamæringarnir
leikur fyrir dansi í Gamla bíói í
kvöld og hefst gleðin eina mínútu í
miðnætti. „Loks gefst einstakt
tækifæri til að upplifa ekta Milla-
ball í nýuppgerðu Gamla Bíó með
glæsilegum ballsal og nýopnaðri
Petersen-svítu, sem er glæsilegur
bar uppi á þaki Gamla bíós, eða svo-
kallað rooftop lounge,“ segir um
tónleikana á midi.is. Söngvararnir
sem sungið hafa með sveitinni hvað
mest í áranna rás, þeir Bogomil
Font, Bjarni Ara og Raggi Bjarna,
syngja á tónleikunum.
Bogomil Sigtryggur Baldursson.
Haustdansleikur
með Millunum
Þjónustuauglýsingar
Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í
síma 569 1100 eða á
augl@mbl.is
MAZE RUNNER 6,9
NO ESCAPE 3:45,5,8,10:15
STRAIGHTOUTTACOMPTON 10:20
THE GIFT 8
ABSOLUTELY ANYTHING 6
SKÓSVEINARNIR 2D 1:50, 3:50
FRUMMAÐURINN 2D 1:45
INSIDE OUT 2D 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:50 TILBOÐ KL 1:45
Menntaskólinn
við Hamrahlíð
www.mh.is
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin 17. september
kl. 17:00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í eftirtöldum tungumálum: albönsku, arabísku,
bosnísku, búlgörsku, filipísku (tagalog), flæmsku, hollensku, japönsku, ítölsku, kínversku,
króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, taílensku, tékknesku,
ungversku og víetnömsku.
Placement tests (for Secondary School credit) in the following languages will be held on
September 17th at 5 pm. Placement tests in Albanian, Arabian, Bosnian, Czech, Chinese,
Croatian, Dutch, Filipino (tagalog), Flemish, Hungarian, Italian, Japanese, Lithuanian,
Portugese, Polish, Russian, Serbian, Thai and Vietnamese.
Frekari upplýsingar - More information www.mh.is
Rektor
STÖÐUPRÓF - PLACEMENT TESTS 17. 9. 2015