Morgunblaðið - 17.09.2015, Side 6

Morgunblaðið - 17.09.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 Sunna Sæmundsdóttir Björn Jóhann Björnsson Gengið var í gær frá fyrri áfanga fjár- mögnunar á sólarkísilverksmiðju Sili- cor Materials á Grundartanga. Búið er að tryggja fjármögnun upp á 14 milljarða króna en þar af hafa ís- lenskir fjárfestar skráð sig fyrir sex milljörðum. Afganginn, um 60%, leggja erlendir fjárfestar til. Reiknað er með að síðari áfangi fjármögnunar klárist um mitt næsta ár en heildarfjárfesting Silicor vegna verkefnisins á Grundartanga er um 120 milljarðar króna. Gert er ráð fyr- ir að lánsfjármögnun undir forystu Þróunarbanka KfW standi að baki um 60% heildarkostnaðar. Verktakinn flytur til landsins Félagið Sunnuvellir heldur utan um íslensku fjárfestinguna en félagið er í eigu Festu lífeyrissjóðs, Íslands- banka, Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Sam- einaða lífeyrissjóðsins og Sjóvár. Centra fyrirtækjaráðgjöf hafði um- sjón með fjármögnun verksmiðjunn- ar fyrir hönd Silicor og ráðgjafi Sunnuvalla er Summa rekstrarfélag hf. Silicor undirritaði nýverið samning við danska verktakafyrirtækið MT Højgaard um byggingu verksmiðj- unnar. Mun fyrirtækið flytja svæðis- skrifstofu sína frá Þórshöfn í Fær- eyjum til Reykjavíkur, en skrifstofan hefur til þessa séð um verkefni á Færeyjum, Íslandi og Grænlandi. Vélbúnað fyrir verksmiðjuna mun þýska fyrirtækið SMS Siemag sjá um, en það á einnig hlut að vélbúnaði í kísilveri PCC á Bakka. Vonir standa til að framleiðsla Sili- cor geti hafist árið 2018. Þar munu starfa um 450 manns. Orkuþörf verk- smiðjunnar er um 85MW og er áætl- að að árlegt útflutningsverðmæti af- urða verði á bilinu 50-60 milljarðar króna. Hráefnið til framleiðslunnar mun að stórum hluta koma frá verksmiðju Alcoa í Reyð- arfirði. Munu hráefnis- kaupin nema 75-85 millj- ónum dollara á ári, jafnvirði 9-10 milljarða króna. Undirbúningur að byggingu verksmiðj- unnar hefur staðið í tvö ár. Fram- kvæmdir eiga að hefjast á næsta ári en í vetur hefja Faxaflóahafnir framkvæmdir við höfnina og lóðina, en verksmiðjan rís skammt frá Norðuráli, á Katanesi. Einkaleyfi á framleiðslunni Sólarkísill er hreinsaður kísill, m.a. til nota í örgjörva í tölvum, en Silicor mun einbeita sér að framleiðslu kísils í sólarrafhlöður. Silicor Materials hefur þróað eigin framleiðsluaðferð og fengið einka- leyfi á henni. Framleiðslan felst í því að hreinsa 99,5% kísil með því að minnka magn bórs, fosfórs og ýmissa málma í kísilnum. Með því fæst hreinn kísill. Bráðið ál er síðan notað sem eins konar hreinsilögur á kísilinn til að fjarlæga óhreinindi. Þau bind- ast nefnilega frekar áli en kísil. Þessi blanda áls og kísils lækkar bræðslu- mark málmblendisins, sem þýðir að minni orku þarf til sjálfrar bræðsl- unnar. Nýjungin sem fyrirtækið hefur einkaleyfi á er sú að kísilmálmur er leystur upp í bræddu áli. Hægt er að segja að álið virki eins og svampur og eftir standi kísill sem nýtist fyrir sól- arhlöð. Þetta er ólíkt því sem hefur tíðkast. Verksmiðjan er ekki háð mati á umhverfisáhrifum, samkvæmt niður- stöðu Skipulagsstofnunar frá 2013. Lífeyrissjóðir í sólarkísil  Fyrri áfangi fjármögnunar sólarkísilvers á Grundartanga tryggður  Íslenskir fagfjárfestar með sex milljarða af 14  Heildarfjárfesting upp á 120 milljarða króna Ljósmynd/Anton Brink Fjármögnun Theresa Jester, forstjóri Silicor Materials, kynnir áformin á Grundartanga fyrir sveitarstjórnarmönnum og ráðherrum í Hvalfirði í gær. Sveitarstjórn Skútustaða- hrepps hefur öðru sinni frestað af- greiðslu á um- sókn Landsvirkj- unar um framkvæmdaleyfi vegna tveggja borholna á Kröflusvæðinu. Deilur eru á milli Landsvirkjunar og Landeigenda Reykjahlíðar ehf. (LR) um nýtingarrétt á svæðinu. Vefengja landeigendur að heimild sé fyrir þessum framkvæmdum án frekara samþykkis þeirra. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sendi sveitar- félaginu bréf nýverið þar sem árétt- uð er sú skoðun fyrirtækisins að heimild til borunar sé fyrir hendi á tilteknum stað við Kröfluvirkjun og vitnar þar í hæstaréttardóm frá 2009. Fram kemur í fundargerð sveitarstjórnar að skipulagsnefnd, að fengnu áliti Skipulagsstofnunar og lögfræðiáliti, telur að heimild sé til borunar á athafnasvæði Lands- virkjunar fyrir holunni K-42. Hins vegar leiki vafi á, samkvæmt túlkun Skipulagsstofnunar, að borun á holu K-41 hafi fengið umfjöllun í ferli um- hverfismats og þá hvenær. Í ljósi þessa ágreinings ákvað sveitarstjórnin að „bjóða aukinn tíma fyrir málsaðila til að koma mál- inu á hreint þannig að sveitar- stjórnin geti tekið vel upplýsta ákvörðun um veitingu fram- kvæmdaleyfis“, eins og segir í fund- argerð Skútustaðahrepps. Vonast eftir sátt Ólafur H. Jónsson, verkefnisstjóri LR, vísar til sama hæstaréttardóms, máli sínu til stuðnings. Þar komi fram að Landsvirkjun verði að gera samkomulag við landeigendur áður en til framkvæmda komi. Bendir Ólafur á að Landsvirkjun hafi gert slíkt samkomulag við landeigendur Voga vegna virkjunar í Bjarnarflagi. „Það er til hagsbóta fyrir alla aðila að ná sátt í þessu og hefur ekki staðið á okkur í því sambandi,“ segir Ólafur og vonast til þess að samkomulag ná- ist við Landsvirkjun. Sveitarstjórnin verði jafnframt upplýst nánar og landeigendur séu að taka saman gögn í því skyni. bjb@mbl.is Deilt um borholur í Kröflu Ólafur H. Jónsson  Sveitarfélagið frestar afgreiðslu Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Hér er allt komið á fleygiferð og undirbúningi miðar vel áfram. Fyrirtækin eru að koma sér fyrir með skrifstofur í bænum og við Bakka er jarðvinna hafin og búið að reisa vinnubúðir. Þetta er strax farið að hafa mikil áhrif á bæjar- lífið,“ segir Snæbjörn Sigurðsson, verkefnis- stjóri Norðurþings, vegna framkvæmda á Bakka, en opnunarhátíð fer fram í dag vegna upphafs framkvæmda á kísilverksmiðju PCC. Á fréttavefnum 640.is kemur fram að dag- skráin hefjist kl. 11 á Fosshótelinu á Húsavík og standi til kl. 13. Þar flytja ávörp m.a. þau Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra, Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Kristján Þór Magnús- son, bæjarstjóri Norðurþings, Hörður Arnar- son, forstjóri Landsvirkjunar, Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Einnig verða erindi frá fulltrúum PCC Bakki Silicon og verktaka framkvæmdanna. Að þessari dagskrá lokinni, sem eingöngu er opin boðsgestum, fer fram athöfn á Bakka þar sem klippt verður á borða á iðnaðarsvæð- inu. Sú athöfn er opin almenningi, að því er fram kemur á fréttavefnum www.640.is. Að sögn Snæbjörns styttist í að fram- kvæmdir hefjist við dýpkun Húsavíkurhafnar. Einnig við jarðgangagerð og vegtengingu frá bænum að iðnaðarsvæðinu. Vinna við orkuöfl- un á Þeistareykjum er einnig hafin. Í vikunni voru opnuð tilboð í Bakkaveg; milli Húsavíkur og Bakka, og reyndist norskt fyrirtæki eiga lægsta tilboðið upp á 2,8 millj- arða króna, eða rétt yfir áætluðum verktaka- kostnaði. Fjögur tilboð bárust í verkið, sem á að vera lokið í ágúst árið 2017. Vonir eru bundnar við að jarðvinna geti haldið áfram í vetur, enda segir Snæbjörn að yfirleitt sé snjólétt á Bakka. Yfir 200 bein og óbein störf Þegar mest lætur er talið að ríflega 700 manns starfi á verktíma á Bakka og við tengd- ar framkvæmdir. Þegar kísilver PCC hefur tekið til starfa er reiknað með um 120 störfum þar en Snæbjörn segir að til viðbótar verði um 100 afleidd störf á Húsavík og nágrenni. Spurður hvort nægt framboð á skrifstofu- og íbúðarhúsnæði sé til staðar segir hann Norð- urþing vera að skipuleggja ný hverfi. „Eitt hverfi er tilbúið til byggingar og verið er að leggja drög að fleirum til að skipu- leggja og hafa tilbúin þegar fram í sækir,“ seg- ir Snæbjörn að endingu. Framkvæmdir á fleygiferð á Bakka  Opnunarhátíð á Húsavík í dag vegna kísilvers PCC á Bakka  Ráðherrar mæta og klippa á borða  Jarðvinna í gangi  Framkvæmdir við höfn og jarðgöng framundan  Yfir 700 störf á verktíma Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Bakki Vinnubúðir eru komnar upp á Bakka við Húsavík vegna byggingar kísilvers PCC. „Þetta er mikilvægur áfangi og við erum ánægð með þann áhuga á verkefninu sem fjár- festar hafa sýnt. Þessi áfangi kemur í kjölfar þess að við gerð- um samninga um byggingu verk- smiðjunnar og kaup á vélbúnaði hennar,“ segir Theresa Jester, forstjóri og stjórnarformaður Silicor Materials. Hún segir fyrir- tækið stefna að því að verða leiðandi í framleiðslu á kísli fyrir sólarrafhlöður. „Með þá sterku bakhjarla sem við höfum munum við ná því marki. Með umhverfis- vænni og hagkvæmri framleiðslutækni viljum við gera fleiri heimilum og fyrirtækjum kleift að nýta sólarorku, í stað hefðbundinna orku- gjafa, á viðráðan- legu verði.“ Mikilvægur áfangi FORSTJÓRI SILICOR Theresa Jester

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.