Morgunblaðið - 17.09.2015, Side 20

Morgunblaðið - 17.09.2015, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2015 ✝ Einar ArnórEyjólfsson flugvirki fæddist 6. júní 1956. Hann lést í Reykjavík 5. sept- ember 2015. Foreldrar hans voru Einhildur Guðrún Einars- dóttir, ljósmóðir, f. 23.9. 1930, og Eyj- ólfur Vilhelm Ágústsson, vélvirki, f. 1.12. 1932, d. 11.7. 1999. Einar var fjórði í röð sex systkina. Þau eru: Róbert Guðmundur, bygg- ingatæknifræðingur, f. 30.8. 1952, maki Laufey Rós Jóhann- esdóttir, Svanhildur, versl- unarmaður, f. 17.10. 1953, El- ísabet, leikskólastjóri, f. 24.5. 1955, maki Gunnar Magnússon, Ágúst Kristján, flugvirki, f. 22.4. 1958, Ásta Kristín, hjúkr- unarfræðingur, f. 12.3. 1960, maki Jeffrey Takehana. helm, f. 25. nóv. 2005, Elín Anna, f. 14.9. 2011, og Bjarki Steinar, f. 14.7. 2014. 3) Elías Bjartur, nemi, f. 19.4. 1992. Maki: Ragnhildur Helga Hannesdóttir, nemi, f. 24.9. 1991. Í vesturbæ Kópavogs ólst Ein- ar upp og stundaði nám í vél- virkjun í Iðnskólanum í Reykja- vík. Flugvirkjun lærði hann í Tulsa í Bandaríkjunum og bjó eftir það um tíma í Seattle. Eftir heimkomu starfaði hann við hlið föður síns við járnsmíði um ára- bil. Sigrún og Einar bjuggu lengst af í Grafarvogi og ólu börn sín upp þar. Þau hjónin ráku heildverslun í nokkur ár. Árið 1997 hóf Einar störf sem flugvirki hjá Icelandair í Kefla- vík. Einar var þúsundþjalasmiður, sérlega handlaginn og greiðvik- inn, vinmargur og hrókur alls fagnaðar. Hann var áhugasamur um ólík viðfangsefni eins og veiði, vélar og tæki, fuglalíf, matargerð og veisluhöld, ýmiss konar smíði og ekki síst tónlist og gamla bíla. Einar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 17. sept- ember 2015, kl. 13. Eftirlifandi eig- inkona Einars er Sigrún Ása Sig- marsdóttir, bóka- safns- og upplýs- ingafræðingur, f. 10. júní 1957. Móðir hennar var Þórdís Jóhannsdóttir, hús- móðir, f. 21.3. 1937, d. 3.1. 1982, og fað- ir er Sigmar Ólafur Maríusson, gull- smiður, f. 8.3. 1935. Börn þeirra Einars og Sigrún- ar eru: 1) Eva Mjöll, flugumferð- arstjóri, f. 13.9. 1981. Maki: Gunnar Skúlason Kaldal, verk- fræðingur, f. 26.11. 1981. Börn þeirra eru Hrafn Ingi, f. 19.2. 2006, Sigmar Kári, f. 1.12. 2010, og Birkir Logi, f. 19.6. 2012. 2) Ásta María, matvæla- og líf- efnafræðingur, f. 14.3. 1983. Maki: Guðmundur Stefán Stein- dórsson, verkfræðingur, f. 18.1. 1980. Börn þeirra eru Arnar Vil- Einar sá ég fyrst þegar ég flutti sem unglingur í Kópavog og kom auga á sætan, hressi- legan strák sem bjó í húsinu á móti. Við mættumst af og til næstu árin en ekki tókst okkur að verða par fyrr en um tvítugt. Glettinn var hann og stríðinn, glaumur og gleði fylgdu honum og sprelllifandi glampi skaust fram í augun þegar stríðnispúk- inn birtist. Svo sannarlega hef- ur hann glatt mig, lyft mér upp úr hversdagslífinu og svo oft fengið mig til að sjá spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Verið besti vinur minn alla tíð þótt á ýmsu hafi gengið, svo örlátur á umhyggju og elskandi faðir barnanna okkar og einstakur afi. Líf mitt var engin lognmolla með Einari. Hans er sárt sakn- að en á erfiðum tíma er hjarta mitt samt fullt þakklætis fyrir það lán að hafa átt hann að. Ég finn, hve sárt ég sakna, hve sorgin hjartað sker. Af sætum svefni að vakna, en sjá þig ekki hér; því svipur þinn á sveimi í svefni birtist mér. Í drauma dularheimi ég dvaldi í nótt hjá þér (K.N.) Sigrún. Elsku pabbi. Það er erfitt að setjast niður og skrifa minning- arorð um þig. Það að missa þig er svo óendanlega erfitt og sárt. Þó kemur mér svo margt til hugar, svo margar góðar minningar, að því verður aldrei komið almennilega til skila í ör- fáum orðum. Þú kenndir mér að synda, skíða, elda, keyra og taka handbremsubeygjur. Þú kenndir mér að bíða ekki eftir því sem ég vildi, heldur ganga á eftir því og láta hlutina gerast. Þú kenndir mér að meta hrein- skilni og sýna náungakærleik. Þú lagðir mikið upp úr því að við börnin þín myndum ferðast og sjá heiminn. Þú sagðir mér svo oft að ég væri stelpan þín og ég gæti allt sem ég vildi. Það kostaði mig þó nokkrar slysó- ferðir þegar ég var lítil en þetta sjálfstraust sem þú gafst mér mun endast mér út lífið. Þú varst aldrei feiminn við að segja mér að þú elskaðir mig og hvað þú varst stoltur af mér. Fyrir það er ég gríðarlega þakklát núna. Þú varst einstak- lega góður afi og hittir barna- börnin oft í viku. Þú kenndir þeim ýmislegt sem ég var mis- ánægð með, en börnin elskuðu þessar stundir og að fá að gera prakkarastrik með þér. Ég sé svo mikið af þér í börnunum mínum. Þú varst alltaf svo dug- legur að koma í heimsókn, iðu- lega á matartíma svo ég er vön að elda alltaf fyrir einn auka. Mikið á ég eftir að sakna þess. Þú varst svo stór hluti af okkar daglega lífi, hjálpaðir til við öll verkefni, að ég veit hreinlega ekki hvernig ég á að halda heimili án þín. Ég er þér svo þakklát fyrir alla hjálpina, traustið, ástina sem þú sýndir mér og allan tímann með þér. Nú tökum við börnin við að segja brandarana og sögurnar þínar, þó að við komumst hvergi nærri með tærnar þar sem þú hafðir hælana. Við höld- um gleðinni á lofti fyrir þig, pabbi, takk fyrir allt. Ástarkveðja, þín dóttir, Ásta María Einarsdóttir. Elsku pabbi, ég sakna þín svo mikið. Þú skilur eftir þig stórt skarð en efst í huga mér er þakklæti. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér og allt sem þú gerðir fyrir mig. Takk fyrir að hafa alltaf óbilandi trú á mér. Takk fyrir að vera alltaf til staðar og vera alltaf mættur á núll einni í hvert einasta skipti sem ég þurfti á þér að halda. Takk fyrir að berjast eins hetjulega og þú gerðir við þennan sjúkdóm, elsku pabbi. Ég er þakklát fyrir að hafa alist upp á heimili þar sem þið mamma unnuð saman að því að byggja upp okkar líf. Fyrir að hafa haft þig sem fyrirmynd, mann sem alltaf kom fram við mig eins og prinsessu og kenndi mér að ég ætti bara það besta skilið. Mann sem sagði okkur alltaf hversu stoltur hann væri af okkur systkinunum og hvað hann elskaði okkur mikið. Þú kenndir meira að segja börnunum mínum það og ég mun gera mitt besta til að ala þau upp á sama ástríka og skilningsríka hátt og þið óluð okkur upp. Á mínu æskuheimili voru all- ir velkomnir, alltaf líf og fjör og í þínum huga voru allir jafnir. Stéttaskipting þjóðfélagsins var ekki til og greiðasemin átti sér engin takmörk. Þú fórst þínar eigin leiðir. Ég, reglupésinn, dáðist oft að því og hafði gott af því þegar þú hvattir mig til þess að brjóta örfáar reglur. Þú varst einstakur og ég get full- yrt það að það er enginn eins og þú. Ég gleymi aldrei þegar þú hittir barnabörnin þín í fyrsta skipti. Þau voru ljósið í lífi þínu og þú elskaðir þau svo mikið. Gafst þeim nebbakoss og sagðir „afi elskar þig“ og það vissu þau og fundu eins og við hin. Ein af mínum uppáhalds- minningum um þig var þegar Hrafn Ingi var lítill og var að drekka mjólk úr glasi með röri. Þú kenndir honum að blása í rörið svo glasið fylltist af loft- bólum og svo flæddu þær út um allt. Þið sátuð heillengi við borðið, hann blés í rörið og svo hlóguð þið ykkur báðir mátt- lausa. Aftur og aftur og aftur. Seinna, þegar Hrafn Ingi var orðinn stóri bróðir, kenndi hann Sigmari Kára að gera það sama. Þeir hlógu og ég sagði honum að nú væri hann að kenna litla bróður sínum ósiði. „Já, og afi Einar á að kenna honum það,“ sagði hann þá. Missir barnabarnanna er mikill. Þau eru búin að missa afa sinn, óþekktarangann og stríðnispúk- ann sem elskaði þau svo mikið. Þann sem hvatti þau til að vera með læti og hlæja og gaf sér alltaf tíma fyrir þau. Ég trúi ekki að þú munir ekki birtast aftur á helgar- morgnum með bakarísbrauð, læri og melónu. Ekki kitla mig og börnin mín þangað til við getum ekki hlegið meir, segja fleiri brandara, tala við mig í símann eins og við gerðum nán- ast á hverjum degi né koma við beint eftir vinnu af því þig lang- aði bara aðeins að sjá okkur. En við munum eftir öllum góðu stundunum. Öllum prakkara- strikunum, veislunum, látunum og æðibunuganginum. Allri gleðinni og ástinni sem skein frá þér. Ég sé þig í hvert skipti sem ég sé stríðnisglampann í augunum á strákunum mínum og glottið sem færist yfir and- litið á þeim þegar þeir búa sig undir að stríða mér. Takk elsku pabbi. Ég sakna þín stanslaust, elska þig enda- laust. Eva Mjöll. Pabbi var ávallt glettinn og grínaðist gjarnan í vinum jafnt sem ókunnugum. Í hans huga var varla til staður né stund sem útheimti ekki brandara eða tvo, hvort sem efni þeirra var viðeigandi eður ei, og skipti þá litlu úr hvaða lögum samfélags- ins viðmælendur hans voru. Hann gerði aldrei greinarmun á stöðu fólks. Enginn var of hátt settur, eða of lágt, til að gerast vinur pabba – og fólk var iðu- lega komið í vinatölu eftir lítið meira en fyrsta samtal. Æðstu gæði lífsins voru, að hans mati, fjölskylda og vinir – sambönd sem ala af sér hamingju og samhug – og var hann ævinlega þakklátur fyrir hve vel var komið fyrir honum og hans fólki. Þegar hann kom til barna sinna og barnabarna með bakk- elsi úr bakaríinu snemma morg- uns voru líkur á að hann væri einnig búinn að lesa blöðin, gera við bíl, hringja í vini og fjölskyldu, mæta í bakaríið áður en það var opnað og keyra fram hjá húsum dætra sinna til að athuga hvort einhver væri vaknaður. Hann var iðinn og framtakssamur og skeytti sjaldnast um formleg ferli eða hamlandi reglur og höft heldur fór að hlutunum eftir eigin höfði. Vegir hans lágu oft á skjön við vegi samfélagsins en hann kippti sér lítið upp við það enda fannst honum sínar leiðir virka betur. Pabbi kenndi mér að ganga eftir því sem ég þrái. Þegar ég var barn lét hann mig segja hvað mig langaði í. Ekki var þar með sagt að ég fengi það sem hugurinn girntist en ef ég vissi það ekki sjálfur eða þorði ekki að segja það upphátt voru líkurnar frekar litlar. Það sækir enginn annar í það sem hjarta manns þráir fyrir mann. Það verður maður að gera sjálfur. Ég dáðist alla tíð að framfærn- inni og hispursleysinu sem skinu úr sérhverri gjörð. Hann kenndi mér að standa á eigin fótum, annast fjölskyldumeð- limi, tala við ókunnuga og koma hlutunum í verk. Missirinn er ótrúlegur og ég sé ekki fram á dag þar sem söknuðurinn mun ekki segja til sín. Elías Bjartur Einarsson. Einar var ávallt góður barna- börnum sínum og skemmtilegri afa er vart hægt að hugsa sér. Þeim þótti mjög vænt um afa sinn. Hann kom oft við heima og þurfti ekki að finna ástæðu til þess, enda var heimilislegt og gott að hafa hann nærri. Það var alltaf stutt í grín og glens hjá Einari og skipti staður og stund þar litlu máli. Einar hafði ást á tónlist og þá helst amer- ískri sveitatónlist sem var spil- uð óspart, helst í stórum og há- værum hátölurum. Það var aldrei leiðinlegt ná- lægt Einari, hann hafði alltaf eitthvað fyrir stafni og þar var bíladellan í forgrunni. Þegar ég kynntist Evu man ég hvað mér fannst skrítið hvað hann átti marga bíla. Bílaflotinn hefur stöðugt tekið breytingum síðan og Einar var alltaf að stússa eitthvað í kringum hann. Hann var líka alltaf tilbúinn að hjálpa þeim sem honum þótti vænt um og var mikill reddari. Einn strákanna okkar sagði einu sinni að afi Einar gæti lagað allt sem væri með dekk. Bíla, flugvélar, hjól eða leikfanga- trukka, hann gat lagað það. En hann gat reyndar lagað margt fleira, hvort sem það var með dekk eða ekki. Einar tengdapabbi minn kenndi mér svo margt þau ár sem ég þekkti hann, hvort sem það var um bíla, flugvélar, tón- list, sósugerð eða lambalærisát. Ég sakna hans og það gerum við öll sem þekktum hann en við munum alltaf muna gleði- stundirnar sem við áttum með honum. Gunnar Skúlason Kaldal. Kæri vinur og tengdasonur. Undir lækkandi september- sól hvarfst þú á braut. Við söknum þín öll. Þú varst ein- stakur afi. Litlu barnabörnin þín sex hafa misst mikið. Ég sé þig fyrir mér með þau yngstu í fanginu og hin á sveimi kring- um afa sinn, sem alltaf hafði tíma fyrir þau. Einstakt var hve hjálpsamur þú varst, lipur og greiðugur við fjölskyldu og vini. Þú hélst bílaflotanum gangandi. Síðan voru ýmsar útveganir og akstur til og frá flugvelli. Oft tókst þú að þér aðdrætti og matargerð þegar fjölskyldan kom saman og kallaði ég þig kjötsúpukónginn. Bílar og flug- vélar voru stór hluti af lífi þínu og förum við ekki nánar út í það. Ég votta elskulegri móður þinni mína dýpstu samúð svo og Sigrúnu, dóttur minni, og öllum ættingjum. Sigmar Ó. Maríusson. Elsku Einar. Við hittumst fyrst fyrir rétt tæpum 13 árum þegar við Ásta vorum að kynn- ast. Mér var það alveg ljóst frá fyrsta degi að þú varst mikill karakter sem fór oft á tíðum óhefðbundnar leiðir að hlutun- um. Ég hafði alla tíð alveg ein- staklega gaman af þér. Svo skemmtilegur og fjörugur og alltaf klár með brandara við öll tilefni sem voru látnir flakka sama hversu líklegir þeir voru til að hitta í mark hjá áheyr- endunum. Hjálpsemi var þér í blóð borin og höfum við Ásta fengið að njóta hennar ríkulega öll þessi ár. Orðið þúsundþjala- smiður hefur sennilega sjaldan átt eins vel við og í þínu tilviki. Hvort sem það voru bílarnir, heimilistækin eða þakrennur þá einhvern veginn gastu alltaf reddað okkur og öðrum í stór- fjölskyldunni. Það var líka svo gaman að fylgjast með því hvað þú varst mikið í essinu þínu í þessum reddingum. Geislaði af þér stuðið. Bílarnir maður. Ég held að það sé óhætt að segja að þú hafir verið með stórkostlega bíladellu. Það er algerlega séns- laust fyrir mig að muna hvað þú áttir marga bíla á þessum 13 árum sem við höfum þekkst en nokkrir eru samt eftirminnileg- ir, jafnvel fyrir mig sem hef engan áhuga á bílum. Ég man marga bíltúrana okkar tveggja þar sem þú hélst misstutta fyr- irlestra um vélarstærðir og þuldir upp flesta íhluti bílsins á meðan við hlustuðum á kántr- íslagara á verulegum hljóðstyrk af kassettu. Bílatalið fór nú allt- af inn um annað og út um hitt hjá mér en þessir bíltúrar voru samt alltaf skemmtilegir og eft- irminnilegir þegar ég hugsa til baka. Það er erfitt að hugsa sér veislur hérna á heimilinu þar sem þú ert ekki með okkur. Þú varst svo mikill veislukall. Allt- af til í að elda ótrúlega góðar súpur eða grilla einhverja snilld. Ég á margar góðar minningar um þig með hattinn að grilla, stundum á fleiri en einu grilli í einu. Jafnvel að reyta af þér brandarana á með- an. Allt í gangi. Við vorum svo heppin að þú varst rosalega duglegur að koma í heimsókn til okkar og borðaðir oft með okkur kvöld- mat. Fyrir þetta er ég ofboðs- lega þakklátur því fyrir vikið kynntust börnin okkar Ástu þér svo vel og búa að því í dag. Þú varst svo mikill fjölskyldumað- ur og ofboðslega góður afi. Því verður ekki lýst öðruvísi en sem rosalegu höggi að missa þig svona snögglega og allt of snemma frá okkur, Einar. Við söknum þín öll alveg svakalega mikið. Það er mikið til í því sem KK og Maggi Eiríks segja í text- anum „kirkjugarðar heimsins geyma ómissandi fólk“. Takk fyrir allt Einar. Þinn tengdasonur, Guðmundur Stefán Steindórsson. Elsku Einar. Ég hef hugsað svo oft til þín síðustu daga. Þú gerðir svo ótrúlega margt fyrir svo ótrúlega marga. Ég vildi óska að ég hefði getað gert meira fyrir þig. Hvert sem ég lít sé ég hluti sem minna á þig; kók, rauður winston, flugvélar, kjötkraftur, lambakjöt. Listinn virðist óendanlegur. Við sem vorum svo heppin að kynnast þér munum aldrei gleyma þér. Krefjandi ævi nú lýkur eftir sitjum við. Minningin sálina strýkur vonandi finnur þú frið. Með saknaðarkveðju, Áslaug Sigmarsdóttir. Einar, tengdafaðir Gunnars sonar okkar, er látinn langt um aldur fram. Við kynntumst hon- um fyrst þegar Gunnar fór að venja komur sínar til Evu sinn- ar í Krosshömrum, þau þá að- eins 18 ára gömul. Eitt af fyrstu skiptunum sem við ókum Gunnari heim til Evu sáum við Einar úti á stétt, líklega eitt- hvað að bjástra við bílana sína. Hann gekk beint til okkar og bauð okkur inn í kaffi eins og við værum gamlir kunningjar. Einkennandi fyrir Einar, opinn og alúðlegur. Þar sem við sát- um í eldhúsinu og spjölluðum við þau Einar og Sigrúnu urð- um við vör við að unga parið var að sniglast um, greinilega eitthvað stressuð og forvitin um hvað foreldrarnir væru að tala. Þá kallaði Einar til þeirra að við værum að undirbúa brúð- kaupið. Alltaf stutt í glens og stríðni hjá honum. Þegar barnabörnin sex fædd- ust eitt af öðru kom í ljós hvað hann var yndislegur og skemmtilegur afi. Alltaf til í að bregða á leik og gera eitthvað skemmtilegt með þeim. Einar var vel liðtækur í eld- húsinu, eiginlega meistarakokk- ur. Kjötsúpan hans er víðfræg og varð til þess að háöldruð móðir Skúla, sem alla ævi hafði borðað eins og lítill fugl, fékk matarást á Einari. Hann átti það til að senda henni kjötsúpu á dvalarheimilið þar sem hún bjó síðustu árin og talaði hún oft um það hvað „pabbi hennar Evu“ væri góður við sig. Hann var jafn natinn við unga sem aldna. Við eigum margar góðar minningar um Einar og minn- umst hans með hlýhug og þakk- læti. Fjölskyldu hans allri send- um við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Skúli og Ingibjörg (Inga). Litlir guttar hittast í 7 ára bekk Kársnesskóla 1963, hik- andi, og óvissir um allt sem var framundan. Fljótlega náðum við Einar saman og hefur okkar vinátta haldist alla tíð. Við vor- um saman í bekk og nánir vinir og næstum daglega var ég heima hjá Einari og Ágústi á Borgarholtsbrautinni. Við vor- um samstiga í grunnskóla, gagnfræðaskóla og framhalds- námi upp úr 1977 í Bandaríkj- unum. Alls konar ævintýrum lentum við í á ótroðnum ferðaslóðum, 1975-77, og oftast var Ágúst, bróðir Einars, með í ferðum, og vorum við eins og tríó. Einar var alltaf ákveðinn og framtakssamur í öllu sem bar að höndum og fljótur að finna lausnir á því sem að steðjaði. Oft lentum við í einhverjum grallaraskap eins og gengur, án þess að nokkrum yrði að tjóni. Endalaust væri hægt að rifja upp ævintýri okkar, en þau geymast vel í huga mínum og okkar sem urðum þér samferða. Það er mikill missir að þér, Einar minn, og elsku Sigrún, Einhildur og Ágúst, við minn- umst Einars með þakklæti og vottum öllum börnum, systkin- um og fjölskyldu einlæga sam- úð okkar. Ég er viss um að Ein- ari líður vel núna. Björn Karlsson, Svanhildur Þórarinsdóttir. Einar Arnór Eyjólfsson HINSTA KVEÐJA Með sorg og söknuði kveðjum við ástkæran son, bróður, mág og frænda. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Einhildur og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.