Skólavarðan - 01.02.2008, Side 11

Skólavarðan - 01.02.2008, Side 11
Kí þING OG AÐALFUNdIR 11 SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 8. ÁRG. 2008 eru þeir sem hyggjast sitja fundinn beðnir um að tilkynna það á netfangið throstur@ki.is.Sem kunnugt er hefur þegar verið kosið til stjórnar FL. Björg Bjarnadóttir var sjálfkjörin formaður. Úrslit í rafrænni kosningu voru sem hér segir. Kosning til varaformanns: Á kjörskrá voru 1979. Atkvæði greiddu 936 eða 47,3% og auðir seðlar voru 20 eða 2,26% Ingibjörg Kristleifsdóttir hlaut 507 atkvæði og Marta Dögg Sigurðardóttir 409 atkvæði. Kosning til stjórnar: Á kjörskrá voru 1979. Atkvæði greiddu 936 eða 47,3% og auðir seðlar voru 71 eða 7,6%. Aðalmenn í stjórn eru Björk Óttarsdóttir, Arnar Yngvason og Hrafnhildur Karlsdóttir. Varamenn voru kjörnir Inga Líndal Finnbogadóttir, Jóna Rósa Stefánsdóttir og Margrét Rúnarsdóttir. Aðalfundur Félags grunnskólakennara verður haldinn á Grand Hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 13. mars og föstudaginn 14. mars. Mikil vinna hefur farið fram í félaginu undanfarnar vikur í tengslum við kjarasamninga og þegar þetta er ritað er fyrsti fundur samningsaðila í augsýn, líklega haldinn 20. febrúar. Fyrir nokkrum vikum fór samninganefndin í tveggja daga vinnuferð þar sem rætt var um helstu atriði sem við teljum að þurfi að vera í samningsmarkmiðum okkar fyrir næstu viðræður. Nú er verið að kynna samningsmarkmiðin meðal kennara um land allt. Nýverið skilaði vinnuhópur grunnskólakennara, skólastjóra og Sambands íslenskra sveitarfélaga af sér vinnu við mótun sameiginlegrar framtíðarsýnar í skólamálum til ársins 2020. Nú fer afrakstur þessarar vinnu í umfjöllun hjá þeim sem að samkomulaginu stóðu og í framhaldi af því verða helstu niðurstöður birtar. Hópurinn sem vinnur að greiningu kjarasamningsins hefur lokið við að setja saman sérstakan launagagnagrunn til að auðveldara verði að sjá hver raunveruleg laun grunnskólakennara eru. Einnig kemur þessi grunnur til með að nýtast við að meta kostnað við breytingar á kjarasamningnum þegar þar að kemur. Aðilar hafa unnið að því að skilgreina og skoða viðmiðunarhópa kennara og skólastjórnenda. Þessari vinnu lauk í janúar. keg Nánar verður sagt frá undirbúningi fjórða þings og niðurstöðum aðalfunda í næsta tölublaði Skólavörðunnar auk þess sem aðildarfélög senda upplýsingar til sinna félagsmanna og fréttir eru birtar á www.ki.is Hvað brennur á þér? Í tilefni af þinginu sem í vændum er fórum við á stúfana og spurðum nokkra kennara hvað brynni heitast á þeim um þessar mundir. Þetta brennur á mér: „Hvað ætlast sveitarfélög fyrir með fimm ára börnin? Hefur það verið ígrundað hvernig námsumhverfi hentar ungum börnum best? Þetta brennur á mér af því að það eru uppi áform um að flytja fimm ára börnin inn í grunnskólann. Á hvaða forsendum yrði það gert?“ Ásmundur Örnólfsson leikskólakennari Þetta brennur á mér: „Að kennarar eru að hrökklast úr starfi í stórum stíl og leiðbeinendur hrúgast inn. Það er mikill skortur á fagfólki og gríðarlegt álag á þeim sem eru að starfa í grunnskólunum. Ég gæti útlistað þennan vanda í löngu máli en ég held að allir viti hvað við er átt. Ástandið er mjög slæmt.“ Kristín Jónsdóttir grunnskólakennari Þetta brennur á mér: „Það eru kjörin og álagið. Það virðist einhvern veginn vera svo að í hvert sinn sem samið er þá eykst álagið. Mér finnst ég finna fyrir því að fólk sé að hugsa um að fara. Það er fyrst og fremst þetta sem brennur á mér. Ég hef líka kennt í grunnskóla og það sem hefur verið að gerast þar lengi er að færast inn í framhaldsskólana. Menn eru múraðir inn í einhverja vinnutöflu.“ Katrín Gunnarsdóttir framhaldsskólakennari Þetta brennur á mér: „Launamálin! Hvenær rennur sá tími upp að við kennarar stöndum stolt og áhyggjulaus, vitandi vits að samfélagið viðurkennir að við erum að gera góða hluti og sú viðurkenning endurspeglast í launum? Mér finnst starf kennarans vera hetjuskapur, og mér verður alveg eins hugsað til grunnskólakennara í þessu samhengi. Ég trúi ekki öðru en að kennarastarfið verði fyrr en síðar launað í réttu hlutfalli við hvað það er mikilvægt.“ Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarskólakennari

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.