Skólavarðan - 01.02.2008, Blaðsíða 12

Skólavarðan - 01.02.2008, Blaðsíða 12
12 FRéTTIR OG TILKYNNINGAR SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 8. ÁRG. 2008 Í tilefni af því að á þessu skólaári eru liðin hundrað ár frá því að lög um fræðslu barna og um kennaraskóla tóku gildi, gefur Kennaraháskóli Íslands út veglegt rit um sögu alþýðufræðslu á Íslandi. Ritið er í tveimur bindum og með ríkulegu myndefni. Ritstjóri er Loftur Guttormsson og aðalhöfundar auk hans eru Helgi Skúli Kjartansson og Jón Torfi Jónasson. Félögum í Kennarasambandi Íslands gefst nú kostur á að eignast þetta glæsilega tveggja binda verk á sérstöku tilboðsverð, kr. 11.900, en fullt verð er 15.900 kr. Jafnframt munu þeir sem taka tilboðinu og þess óska fá nafn sitt skráð á tabula gratulatoria í tilefni af hundrað ára afmæli fyrstu barnafræðslulaganna. Í þessu skyni geta félagsmenn fyllt út og sent eyðublað sem er á vefslóðinni http://srr.khi.is eða hringt í síma 563 3827. Úr kaflanum Fræðsluhefðin: kirkjuleg heimafræðsla Skriftarlærdómur í Borgarfirði um 1870 En piltum var talið nauðsynlegt að læra skrift. Flesta vantaði þó margt til slíkra hluta […] Við skriftarlærdóminn var allt nýtt og notað. Skrifað var á fjalir með krít, á svell og snjóskafla með broddstöfum og með fingri á myglaða fjósrafta og hélaðar rúður ef ekki var annað betra fyrir hendi. Varð það líka að ávana fyrir sumum að vera Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunar- verkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2008-2009. Umsóknir sendist til Verkefna- og náms- styrkjasjóðs FG og SÍ, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík, í síðasta lagi 1. mars 2008. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Kennarasambandsins ki.is og hjá fulltrúa sjóðsins sem veitir nánari upplýsingar. Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ Þetta kemur fram í niðurstöðum hnatt- rænnar könnunar sem Gallup vann fyrir Alþjóða efnahagsráðið en niðurstöður könnunarinnar voru lagðar fram í morgun á Davos fundinum í Sviss. Rúmlega sextíu þúsund manns í sextíu löndum voru spurðir hvaða stefnu þeir teldu að heimsmálin myndu taka á komandi árum með tilliti til efnahags, öryggis og fleiri mála. Meðal annars var spurt eftirfarandi tveggja spurninga: • Hverjum eftirfarandi mannhópa treystirðu best? (Which of the following type of people do you trust?) • Hverjum eftirfarandi mannhópa myndirðu vilja færa meiri völd í þínu landi? (Which of the following types of people would you like to give more power to in your country?) síklórandi og krotandi á allt sem í náðist. Allir vissu að fögur rithönd jók álit ungra manna í augum kvenna og varð það m.a. nokkur hvatning til þess að æfa þessa list. Og betra var hjá sjálfum sér að taka en sinn bróður að biðja ef menn vildu hefja bónorð bréflega. (Kristleifur Þorsteinsson: Borgfirzk æska fyrir sjötíu árum, s. 36–37.) Úr kaflanum Sjálfsprottnir skólar Hví meiri þörf á barnaskólum í þéttbýli en til sveita? Hvers vegna það sé nú enn meiri nauðsyn á barnaskólum í þéttbýlum og fjölmennum sjóþorpum heldur en til sveita verður nokkurn veginn auðsætt þegar menn fyrst og fremst aðgæta að á þessa staði safnast úr ýmsum áttum fjöldi manna og tekur sér þar bólfestu ... svo að með þessum hætti dregst þangað fjöldi af ráðlitlum fátæklingum sem hlaða niður mikilli ómegð og komast í þvílík bágindi og volæði að það eru miklar líkur til að þeir hugsi flestir mest og sumir eingöngu um það hvernig þeir fái sefað hungur sitt og barna sinna, það er því ekki svo ólíklegt að þessir menn muni slá nokkuð slöku við uppfræðingu barna sinna ... (Páll Ingimundarson, Guðmundur Thorgrímsen, Þ. Kolbeinsson: Fáein orð um barnaskóla., s. 88.) Úr kaflanum Félagskerfi skólans Hnausþykkur hafragrautur að morgni – Heimavist Laugarnesskóla Þar byrjaði dagurinn á hnausþykkum hafragraut Tilboðsverð fyrir félaga í Kennarasambandi Íslands Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007 sem leit út og bragðaðist eins og veggfóðurslím og endaði á því að grautnum hafði verið hrært saman við gallsúrt skyr og þetta átti maður að hesthúsa fyrir svefninn svo að meltingarfærin hefðu eitthvað að iðja á nóttunni. (Þráinn Bertelsson, Einhvers konar ég, s. 125.) Úr kaflanum Í skólanum er skemmtilegt Skólalífið öðruvísi en hversdaglífið Skólastjórinn í Bolungarvík, Baldvin Bergsson, ávarpaði nemendur sína með þessum orðum árið 1902: Kæru börn! Gætið að því að skólalífið á að vera öðruvísi en hversdagslífið. Skólalífið á að vera fullkomnara. Skólabörn eiga að vera siðferðisbetri en önnur börn, þau eiga að þekkjast af því að þau kunni að hegða sér vel og hafi lært að breyta eftir skólalífinu. Lært það að vera góð og skemmtileg börn. (Anna Rós Bergsdóttir: Upphaf skólahalds í Bolungarvík) Niðurstöðurnar eru óyggjandi, kennarar eru í fyrsta sæti í báðum tilvikum. Alls nefna (á heimsvísu) 34 prósent kennara sem þann hóp sem þeir treysta best en í öðru sæti eru trúarleiðtogar með 27% svarenda á bak við sig. Í þriðja sæti eru leiðtogar í her/lögreglu með 18% og í því fjórða eru blaðamenn með 16%. Stjórnmálamenn fá einungis tilstyrk 8% svarenda. Um hvaða mannhópum beri að færa aukið vald í samfélaginu svara 28% þátttakenda því svo að það séu kennarar. Fjórðungur (25%) nefna fræðimenn og rithöfunda (intellectuals), þá koma trúarleiðtogar með 21% og í fjórða sæti leiðtogar í her/lögreglu með 17%. Á Íslandi eru svörin enn frekar kennurum í vil. Heil 46% segjast treysta kennurum umfram aðra hópa. Þá eru kennarar einnig í fyrsta sæti í spruningunni um völd en 30% íslenskra svarenda telja að kennarar eigi að komast til aukinna áhrifa í samfélaginu. Næstir á eftir koma fræðimenn og rithöfundar (intellectuals) með 25%. Kennarar eiga að fá meiri völd í samfélaginu og þeim er treyst umfram aðrar stéttir Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna í grunnskólum skólaárið 2008-2009

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.