Skólavarðan - 01.05.2013, Blaðsíða 28
26 SKÓLaVarðan 1. tbl 2013
og öll níu atriðin munu nú fá smærri
útgáfu verðlaunagrips Nótunnar. Áður
fengu einungis þau atriði verðlauna
grip sem öðluðust þátttökurétt á loka
tónleikum Nótunnar.
að FjöLga nÓtum
„ég horfði á söngvakeppni Samfés,
félagasamtaka félagsmiðstöðva á Ís
landi, í sjónvarpinu fyrir stuttu,“ sagði
Sigrún. „Það var frábært að sjá hvað
krakkarnir gera sjálfir og vinna alger
lega í anda nýrrar menntastefnu. Þarna
voru dæmi um ungmenni að skila
af sér listrænni afurð sem þau höfðu
unnið út frá hugmynd, þróað hana og
þroskað og náð að gera hana að sjón
varpsefni. Það er ekki lítill skóli“. Hún
bætti við að sér hefði dottið í hug að
færa mætti út mörk skólastiga, eins og
skólastefna KÍ gerir ráð fyrir, með því að
nota fyrirkomulag Nótunnar og opna
fyrir aukið samstarf. Hún sagðist sjá
fyrir sér að leikskólinn og grunnskólinn
gætu komið sér upp sínum „Nótum“.
Leiknótan og Grunnnótan gætu unnið
saman þvert á skólastigin og haldið
glæsilega viðburði í anda Nótunnar.
Þannig mætti opna fyrir samstarfs
möguleika og leggja farveg fyrir nýjar
tengingar og nútímalegar leiðir til að
mennta ungmenni.
Texti: Guðlaug Guðmundsdóttir.
Myndir: Jón Svavarsson.
Handleiðsla er líkleg til að stuðla að vellíðan í starfi. Hún
er fyrirbyggjandi þáttur varðandi starfsþreytu, skerpir
markmiðssetningu og eflir samskiptahæfni. Nýttu þér
rétt þinn til handleiðslu, sbr. 3. gr. í úthlutunarreglum
sjúkrasjóðs frá 1.des 2005.
Guðrún H. Sederholm
MSW fræðslu – og skólafélagsráðgjafi,
námsráðgjafi og kennari.
Lundur 92, 200 Kópavogur / S: 5544873 / Gsm: 8645628
gsed@simnet.is
uppskeruhátíðu pskeruhátíð
Málmblásarasveit úr Lúðrasveit Æskunnar frumflutti „NótutóN“ lúðrakall Nótunnar við upphaf viðburða.
Tryggvi M. Baldvinsson samdi verkið fyrir Nótuna.