Skólavarðan - 01.05.2013, Blaðsíða 35
Námsgagnastofnun • Víkurhvarf 3 • 203 Kópavogur • Sími 5350400
www.nams.is
„Heil og sæl“ – Þemahefti
Heftið fjallar um heilbrigði og heilbrigða lífshætti.
Heftið er einkum ætlað unglingastigi. Því er ætlað
að hvetja til heilbrigðra lífshátta og hvernig fólk,
með eigin ákvörðunum, hefur áhrif á eigið líf. Þó svo
að heilbrigði sé í forgrunni tengist efnið öllum
grunnþáttum menntunar og námsgreinum á borð
við lífsleikni, heimilisfræði, náttúrufræði og íþróttir.
Næring
og lífs
hættir
Kennslu
bók í h
eimilisfr
æði fyr
ir elstu
bekki g
runnskó
la. Í bó
kinni er
fjallað
um nær
ingarfræ
ði, matv
ælafræð
i, um-
hverfism
ál og fle
ira teng
t heimil
ishaldi.
Verkefn
i fylgja h
verjum
kafla.
Fjallkonan – Fræðslumynd
Leifar af skartklæddrar konu frá víkingaöld fundust á víðavangi árið 2004. Hver var
þessi kona? Hvert var hún að fara og af hverju var hún ein á ferð á fjöllum? Reynt
er að svara þessum spurningum í myndinni. Þá er fundurinn settur í samhengi við
sambærilegan fund í Noregi.
Skilaboð móttekin
Í bókinni er fjallað um tungumál, myndmál og notkun á
táknum í fjölmiðlum og auglýsingum. Þetta er óvenjuleg
kennslubók í íslensku um málefni sem varðar daglegt líf
allra Íslendinga því fjölmiðlar eru áhrifarík fyrirbæri sem
eru fyrirferðarmikil í nútímanum og snúast fyrst og fremst
um að miðla upplýsingum. En ekki er allt sem sýnist.