Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 6
4
FÉLAGSBRÉF
BÓKMENNTARÁÐ AB eins og það var skipað til síðasta aðalfundar 3. júní síðastl.
Talið frá vinstri: Jóhannes Nordal, Eiríkur Ilreinn Finnbogason (ritstj. Félagsbréfa),
Birgir Kjaran, Eyjólfur Konráð Jónsson (framkvstj. AB), Þorkell Jóhanncsson, Gunn-
ar Gunnarsson, Kristján Albertsson, Tómas Guðmundsson, Kristmann Guðmundsson,
Guðmundur G. Hagalín. Davíð Stefánsson vantar á myndina, en hann á einnig sæti
í ráðinu. — Fjögur fyrstu starfsár Almenna bókafélagsins liefur bókmenntaráð þess
verið skipað sömu mönnum, sem ávallt hafa verið endurkosnir á aðalfundum. Nú
taldi bókmenntaráð æskilegt, að nokkur mannaskipti ættu sér stað í ráðinu. Til þess
að tryggja að svo mætti verða samþykkti það á fundi í vetur, að einhvcrjir tvcir
bókmenntaráðsmanna skyldu víkja sæti, en aðrir kosnir í þeirra stað. — Fyrir síð-
asta aðalfund viku úr bókinenntaráðinu, samkvæmt úrdrætti, þeir Birgir Kjaran
og Kristmann Guðmundsson. í þeirra stað voru kosnir á aðalfundi Höskuldur ólafsson,
lögfræðingur, og Matthías Johannessen, blaðamaður.