Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 55

Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 55
FÉLAGSBRÉF 53 GuSmundur L. FriSfinnssan: Hinumegin við heiminn. Skáldsaga. ísafoldarprentsmiSja 1958. ú skoðun þfikkist og þykir fín, að skáld geti tæplega nokkur orðið annar en sá, sem ekki snertir á öðru verki en að handleika pennaskaft. En íslenzkt lista- mannseðli er áleitið og neitar oft að lúta svo fáránlegum kurteisisreglum. Ljóst dæmi þess er þrjú skáld á miðjum aldri, sem allir bera Guðmundarnafn og búa búi sínu í afskekktum sveitum. Einn situr frammi í Hvítársíðu og er nú eitt bezta og list- fengasta ljóðskáld Islendinga, auk þess sem bann hefur ritað góða skáldsögu; ann- ar býr vestur í Onundarfirði og er ljóð- skáld gott; og þriðji Guðmundurinn á heima langt frammi í Skagafjarðardölum og hefur nú á sjötta tug aldarinnar hafizt upp á bekk betri skáldsagnahöfunda okk- ar. Þeir nafnarnir og þremenningarnir eru skemmtileg og áþreifanleg sönnun um það, að búseta í höfuðstaðnum, kaffihúsasetur og pílagrímsgöngur til Parísar eru ekki óhjákvæmileg skilyrði þess að vera góð- skáld og listamaður á Islandi. Skáldið á Egilsá íór varlega af stað á rithöfundarbrautinni og þreifaði gætilega fyrir sér. Ilann byrjaði á barnabókum, áð- ur en hann hætti sér út á refilstigu hinnar lengri skáldsögu. Á undanförnum fjórurn árum hefur hann gefið út þrjár skáldsögur. Sá ferill er með eðlilegum hætti: sú síð- asta er bezt. „Hinumegin við heiminn" er saga um tslenzkan Hamlet, Börk Arason, sem dagar uppi sem nátttröll fyrir dagsbrún nýja timans og koðnar niður á koti sínu, enda þótt margt togi hann þaðan. Tryggð og skyldutilfinning halda honum föstum, lika fremur óljósar hugsjónir um viðhald byggð- arinnar, en þó vafalítið fremur andúð hans sjálfs á því að taka eindregna og snögga afstöðu. Lfann „beygir hjá“ eins og Pétur Gautur, og á úrslitastundum er hann ekki viss um það fremur en Hamlet Shake- speares „... . Whether, its nobler in the mind to suffer/ The slings and arrows of outrageous fortune,/ Or to take arms against a sea of troubles,/ And by opposing end them.“ Þannig fer honum í ástamál- unum, hann fær ekki hert upp hugann og gripið gæfu sína, þegar hún býðst. I sögunni er lýst átökum milli nýja og gamla tímans, breytingunni í byggð lands- ins og atvinnuháttum þjóðarinnar, sem á síðari áratugum hafa gert meginhluta Is- lendinga að borga- og þéttbýlismönnum. Hinn fljóttekni gróði við sjávarsíðuna freistar röskra bændasona, aðrir tregðast við og vilja ekki yfirgefa byggðir og bú. I skáldsögu Guðmundar Friðfinnssonar taka þessi þjóðfélagsátök á sig mjög per- sónulegan blæ. Börkur Arason er, þrátt fyrir allt, ekki þjóðfélagslegur samnefn- ari þess hluta iþjóðarinnar, sem eftir verð- ur í sveitunum. Eðlisfar hans ræður hér mestu um, en ekki hugsjónir. Ilann er hlédrægur og innhverfur. Strax í fyrsta kafla gera þessar tvær lífsstefnur upp sak- i sínar. Óróamaðurinn Skæringur hefur yfirgefið óðal sitt og honum hefur græðzt fé í borginni. Hann segir: ,,....Ur því að lífið er kraftur, getur það ekki annað en fallið fram, leitað nýrra farvega og meiri ávaxtar. Allt erfiði, þjáning og sárs- auki, sem menn verða að þola er fullborg- að með því að fá að lifa endalaust þessu dásamlega, fjölbreytta lífi, og fullnægjan fellst í því að beizla allan þennan kraft umhverfis okkur, meira að segja loftið.1' Börkur lýsir hins vegar afstöðu sinni til lifsins með þessum orðum: ,,....Ég hef aðeins uppskorið eitt, ró þess er bíður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.