Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 38

Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 38
36 FÉLAGSBRÉF helzt fyrst í stað. Því að alþing fór að sletta sér fram í málefni þjóðar- innar, og fyrir jólin útdeildi Skiili Guðmundsson í neðri deild stórkost- legum fríðindum til launamanna. en það eru einkum hans sérstöku dá- lætisbörn, Reykvíkingar.*). Hin kaldmjólka desemberbelja át með húð og hári hinar feitu vorbær- ur alþýðunnar, og sleikti allt um kring. En þetta verkfall varð að vísu um leið ein brúðarnótt, heldur harka- leg. Þar af varð mikill burður, sem talaði þegar í móðurlífi og ætlað var mikið langlífi. En svo sem löggjaf- arvald alþingis hafði gleymzt hið fyrra sinn, svo gleymdist nú annað lítilræði, að fleiri en grautkokkarnir tíu höfðu liinn „heilaga rétt“: að kyrkja þjóðlífið, ef þrælatakið næð- ist. Þennan rétt höfðu líka, er að var gáð, hinir borðalögðu menn, hálauna- menn flotans, yfirhetjur hafsins. Og nú var gert verkfall, ekki neitt dóna- verkfall í duggarapeysum, með moldarskóflur, heldur ekta fínt „íhalds“-verkfall í kjól og hvítu, með heiðursmerkjum, eina sallafína verkfallið sem við höfum haft í okkar fátækt. Þar var engin brúðar- flatsæng tilreidd, heldur voru fram- *) Skúli var framsögumaður fjárhags- nefndar Nd. um launafrumvarpið 1955 og hafði varla undan að standa upp við 2. umr., til þess að mæla með launahækkun til afætumanna í Reykjavík, mín og ann- arra. — Höf. réttar borðalagðar hendur með hvít- um hönzkum og lítilli deyfinál; nál- aroddinum var miðað á líftaug þjóð- lífsins. Takið var fast og stillt og skeikaði ekki: líftaugin lamaðist og landstjórnin dó í ótíma. Og enn lærði enginn neitt, hvorki lifandi né dauðir. Og rétt núna höfum við horft fram á þá þjóðarskelfingu, að heil menn- ingarstétt, prentarar, færi norður á síld og niður í slorið, hver og einn, með þá hótun við þjóð sína, að eng- in glæpasaga og engir klámdálkar skuli prentað verða sumarlangt. Svo er fyrir að þakka a® þessum menn- ingarvoða varð afstýrt. En skríður þá ekki Jón skráveifa öldungis óvænt út um kamaraugað austur á Selfossi, með nokkra danska strokkbullupilta sér til fulltingis. Hann hótar okkur því, þurrabúðar- mönnum, að blanda alla mjólkina sauri, nema Grundar-Helga og aðrar burðugar húsfreyjur gangi til sæng- ur með þeim dönsku kumpánum. Skráveifa kvað vera skriðin aftur inn um skarnrennuna, en hótar þó illu, í nafni „heilags réttar“, sem slíkur lýður vitnar til eilíflega. Hinir göfugu Þórsnesingar, fyrstu löggjafar á Islandi og fyrstu lög- stjórnarmenn, þeir áttu sér heilagan vettvang, sem hvergi skyldi saurga. En vondir menn þustu inn í þann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.