Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 35

Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 35
F É L A G S B R É F 33 næmu sárindi fyrir minning hans, eins og ástvinir gera. Þegar stríði hans var lokið og dauðinn fór að, í framandi landi, var það ein hans síðasta ráðstöfun að fela þjóð sinni einnig það, sem hann átti af jarð- neskum auði. Hann hafði ekki safn- að fjársjóðum á jörðu, en þó gaf hann landi sínu jarðeignir á Islandi, sem hann átti enn af föðurarfi sín- um, og það lausafé, sem fyrir hendi var. Þessi „gjöf Jóns SigurSssonar“, eins og sjóðurinn heitir enn að lög- um, var sá hluti fjárlaga okkar þá, að hann mætti eftir sama mælikvarða vera nú í ár nær þrjár milljónir króna. En þessi gjöf Jóns Sigurðssonar, jarðnesk aleiga hans, hefur fyrir tím- anna rás og aðgerðir okkar sjálfra orðið svo vesöl og rýr, að ár eftir ár er birt í sjálfum alþingistíðind- um skýrsla, undirrituð af rektor há- skólans, að enginn íslendingur hef- ur um hríð viljað lúta svo lágt að 'þiggja heiðursverðlaun Jóns Sigurðs- sonar fyrir ritgerð um sögulegt eða gagnlegt íslenzkt efni. Og hví ætti svo að vera? Fermingartelpa sem fer í fiskhús um eina helgi, hún ber marg- falt úr býtum, þó svo hún viti ekki staf um forsetann. Jón Sigurðsson var, eins og Jobs- f>ók segir, maður réttlátur fyrir guði °g fyrir samvizku sinni. Alla sína lífsbaráttu reisti hann á bjargi rétt- lætis og sannleika, og því trausti til mannanna, að hver sá sem veit hið rétta, hann muni og gera það sem rétt er. Hann skreytti aldrei verk sín né ætlanir með faguryrðum. Hann beitti rökum, sönnum og sterkum og órækum. Hann skrifaði til nauðsynj- ar og nytsemdar, aldrei til skrauts. Það er raunar einsdæmi, að mað- ur yrði slíkur ástmögur þessarar skáldþjóðar, og hafa ekki til að bera einnig hina fegurri hlið málsnilldar: skáldgáfuna. En Jón Sigurðsson hef- ur enga vísu ort, svo að neinn viti, ekki kviðling, ekki vísuhending. Snorri, hinn voldugi stjórnmálamað- ur og forseti þessa lands á sinni tíð, hann gerði skáldum handbók, ó- gleymanlegu heilli. Hann kvað Hátta- lykil, og segir í 100. vísunni um sjálfan sig: „hróðurs örverður, skal ei maður heitinn vera, ef svo fær alla háttu ort!“ Svipuð orð eftir Jón Sigurðsson eru hvergi til. Snorri var mesti listamaður Norð- urlanda um alla tíð, og hinn mesti heimslífsmeistari um leið, sem við höfum átt. Og stjórnmál landsins urðu honum líka munaður og nautn- arauki. Hann braut skip sitt af því að hann átti miður geð saman við hinn sigrandi mann í Noregi, hinn járnharða, gagnvitra stjórnmála- mann, konunginn. Snorri kaus eftir skaplyndi sínu liinn göfuga eðal- mann, Skúla hertoga, listrænan tví-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.