Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 30

Félagsbréf - 01.08.1959, Blaðsíða 30
28 FKLAGSBRÉF betur, nálgast og verður lífræn, holdgast. Með útrétta hönd geng ég skref fram, á móti Brynhildi, sem í töfrandi hugarsýn er klædd ljósum sumar- kjól, föl og með tárvotan vanga. Svo held ég af stað niður að vatninu. Þegar ég kem að víkinni, þar seni báturinn minn liggur, koma andahjón syndandi fram úr sefgrasinu með ungana sína hálfvaxna. Líklega er þessi vík ekki heimkynni þeirra, því allur hópurinn hefur sig til flugs með kvaki, og flýgur yfir nesið og hverfur. Ég vil ekki rjúfa kyrrðina, og set því mótorinn ekki í gang, heldur ræ hægt og letilega út á vatnið. Ég veit ekki, hve lengi ég hefi róið, en mér finnst það æði langt, svo ég legg inn árarnar og halla mér fram á öldustokkinn. Sumartungl á skafheiðum himni, aðeins svipur hjá haust- og vetrarmána. Gjálfrið í litlu bárunum er svo svæfandi og angurvært, og fram í huga minn kemur minning um atburð, sem kom fyrir mig einmitt úti á vatninu. 5. VlÐ VORUM tvö á hátnum mínum, og á vatninu var kaldi. Unnusta mín vildi sigla, og við höfðum full segl uppi, en ég var ókunnugur hátnum; hafði nýlega eignazt hann. Miðja vegu milli Tvíhólma og lands kom snörp vindhviða, sem kastaði bátnum á hliðina, og við féllum bæði í vatnið. Báturinn rétti sig, en hálf fylltist. Unnustu minni skaut u])j) rétt við hlið mér, og ég greip til hennar, en hún var orðin stíf og köld. Geigvænleg hugsun gagntók mig. Máttvana líkami stúlkunnar tók þungt í. Og nú fann ég, að stúlkan dró mig niður. Ég lá þannig í vatninu, að öxlin og höfuðið voru u])p úr, en vangi minn nam við vatnsskorpuna. Andartak starði ég á h'fvana líkamann, en um leið og ég náði taki a öldustokki bátsins, missti ég tökin á stúlkunni, og horfði á eftir henni hverfa í djúpið. 6. Skyndilega leggst þoka yfir vatnið, ljósgrá, úrþvöl og svöl. Báturinn vaggar mjúklega, og ég hrekk upp af þessum döpru minningum við fugla' kvak og vængjatak. Éramundan er ljósgrátt þokuhafið, og ég er villtur; veit ekki í hvora áttina ég á að halda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.