Félagsbréf - 01.10.1960, Qupperneq 14

Félagsbréf - 01.10.1960, Qupperneq 14
12 FÉLAGSBRÉF markverðast við þýðingu hans, að í íslenzkunni finnur maður ekki ofbragð af því sem innilegt er. Knut Hamsun átti harðan skóla og tvísýnan. Það er með sanni sagt, að öll æska hans, allt til þess er hann vann sinn snögga sigur 29 ára gamall, væri hörð og mjög gleðisnauð. Björirson var hans fyrsti meistari, sögur hans. Hann réðst ekki í kvæðagerðina. Fáir vita að hann var þó eitt glæsi- legasta ljóðskáld norrænna þjóða, og er órækast vitni um það hinn stór- brotni óður hans til Björnsons, síns ástkæra æskumeistara. Hamsun var frá Lóm í Guðbrandsdal, en fluttist ungur með foreldrum sínum norður á Hálogaland. Móðir hans var af gamalli og forðum mikilhæfri bændaætt, faðir hans var dugandi maður, en þau voru fátæk. Það er sagt, að ásköpuð kurtéisi ættar og heimilis hafi fylgt hinum unga snillingi út í lífið. Skóla- göngu hlaut hann enga, hraktist til Ameríku, tvivegis, kom þaðan til Kaup* mannahafnar vorið' 1888, birti kafla úr Sulti næsta vetur, undir dulnefni. Það voru Danir sem báru fram hinn nýja höfund. Frægð hans varð um- svifalaus. Árið 1890 kom bókin, meistaraverk stíls og forms, umdeild að efni og orðbragði. — 1894 kom Pan, óumdeilt afrek í stílsnilld og skáld- flugi. — 1911 fluttist Hamsun norður á Hálogaland, því að honum lédcu landmunir til æskustöðva sinna og hinnar háleysku heiðríkju. — 1917 fluttist hann suður á Vestfold; það ár gaf hann út Gróður jarðar. En er hann sá fram á vaxandi tekjur keypti hann sér stórjörð, Nörholm á Ögðum, til þess að staðfesta í verki þá kenningu, að hinn óskrifandi og! lítt læsi einyrki ísak í Landbrotum, lurkurinn, sem trúir á gróðurmoldina, trúir á vinnuna, einfeldnina og manndyggðina, trúir á guð sinn — hann kunni hina réttustu leið. — 1920 hlaut hann Nóbelsverðlaunin, þá 61 árs. Mér er það mjög minnisstætt, að Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi sagði þá við mig: Þeir nefna Gróður jarðar, til þess að breiða yfir sína eigm skömm, að hafa ekki veitt honum Nóbelsverðlaunin fyrr! — Þetta var sjon- armið þeirrar kynslóðar á Norðurlöndum, sem heitast dáði skáldið. —• í*0 hefur það orðið einmæli síðan í fjóra áratugi, að Gróður jarðar beri alger* lega af bókum Hamsuns að varanlegum boðskap og innfjálgu gildi. Hmn magnaði boðskapur meistarans um líftaugina milli manneskjunnar og gróð- urmoldarinnar hefur gagntekið allar þjóðir, sem bókina hafa fengið. Höfundur dregur að mikinn fjölda fólks, dugandi menn og lausingjalvð. Breða kjaftaskúminn, Barbo sem gerir sér að íþrótt að drepa börn sin i fæðingunni, ýmsan embættislýð, kjaftatífur og kramara. Kvenmaðurinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.