Félagsbréf - 01.10.1960, Síða 27

Félagsbréf - 01.10.1960, Síða 27
félagsbréf 25 samkoma vor, umræður sem þessar og að menn skiptist á skoðunum, einmitt það veitir oss ljósið. Af þessum ástæðum er það mér sérstök ánægja, að ég fæ tækifæri á þessari ráðstefnu til að vinna í þeirri nefnd, sem fjallar um vandainál þjóðfélagslegra menningarframfara og menningarhefða. Þessi vandamál heinast að kjarna hinnar innri hættu, sem ógnar iðnþróuðum löndum, eink- um þeim, sem, — eins og föðurland mitt, — hafa náð stórkostlegum af- köstum við vöruframleiðslu. Flestir þeirra, sem tekið hafa þátt í þessum umræðum, hafa gert sér Ijósa erfiðleika þessa vandamáls og eru orðnir sér meðvitandi um hættuna, sem liggur í hinni ýktu einföldun og ruglingskga samblandi á kostum og göllum, góðu og illu, von og ótta, sem múgmenning nútíma iðnþjóðfélags hefur í för með sér. Ég hika við, meira að segja við að reyna að draga saman áhrif þessara síðustu daga eða að segja meira en mína persónulegu skoðun á því, hvert lokaályktanirnar niunu beinast. En ég vildi þó sérstaklega benda á nokkrar líkur, sem hafa knúið mig til umhugsunar. Það er auðvelt að mikla þá neikvæðu drætti í hinni svokölluðu múg- nienningu. Ég hef fyrst og fremst í huga þann æsing, sem miklum fjölda manna er í té látinn af dagblöðum, kvikmyndahúsum, sjónvarpi og „comic books“. Mig grunar, að margir meðal vor geri of mikið úr áhrifavaldi þessara hluta, — þ.e. hæfni þeirra til að breyta hugsunarhætti og hegðan ^iianna. Án efa er það ekki ömurleiki þessara hluta, sem kemur svo á óvart 1 Ameríku, heldur miklu fremur meinleysið og oft á tíðum barnaskapur- n>n, sem liggur til grundvallar þeim. En jafnaugljóst mál er það, að spurningin, hvernig hægl er að vaka yfir áhuga almennings á þessum blutum, er undirrót flókinna og hættulegra vandamála er varða eðlilegan framgang lýðræðisins. Af þessum ástæðum getum vér, eins og svo margir meðbræður vorir, verið þeirrar skoðunar, að vandamál þessi beri að taka til meðferðar með þolinmæði og góðvild og án ofmikilla áhyggna. En það eru ekki allir, sem sja hættuna, og umræðurnar hér hafa ekki haft róandi áhrif á mig: nefni- ^ega sú hætta, að múgmenning með sínum jafnandi og normalísérandi áhrifum standi í vegi fyrir annarri tegund menningar og spilli henni smátt °g smátt — menningar, sem er af öðrum mælikvarða, undir öðrum áhrif- nm, og af öðrum rótum runnin. Með öðrum orðum: hættan af nútíma múg- nienningu liggur síður í því, hvað hún hefur að bjóða, heldur en hinu,

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.