Félagsbréf - 01.12.1960, Page 22

Félagsbréf - 01.12.1960, Page 22
20 FÉLAGSBRÉF „Hann er ekki í frakka,“ sagði sú gamla. „Hvernig í ósköpunum hefir hann komizt hingað niður eftir aleinn?“ „Ég er engu nær,“ sagði lögreglan. Ég fékk ekkert upp úr honum annað en það, að bróðir hans væri í Memphis og hann vildi komast þangað upp eftir.“ „Það er rétt,“ sagði ég. „Ég þarf að komast til Memphis í dag.“ „Auðvitað þarftu þess,“ sagði sú gamla. „Ertu viss um, að þú getir haft upp á bróður þínum, þegar þú kemur til Memphis?“ „Ætli það ekki,“ sagði ég. „Ég á ekki nema einn bróður og ég hefi þekkt hann allt mitt líf. Ætli ég þekki hann ekki aftur, þegar ég sé hann.“ Sú gamla horfði á mig. „Einhvern veginn er hann ekki eins og hann ætti heima í Memphis.“ „Það er eins víst hann eigi ekki heima þar,“ sagði lögreglan. „Það er ómögulegt að vita samt. Hann gæti átt heima hvar sem er frakkalaus og í frakka. Nú á dögum flækjast unglingarnir um allar trissur, strákar og stelpur líka, nærri því að segja áður en þau eru farin að ganga með. Hann gæti hafa verið í Missouri eða Texas hvortheldur í gær, hvað mig snertir. En hann virðist vera gallharður á því, að bróðir hans sé í Memphis. Ég get ekki betur gert en senda hann þangað upp eftir og láta hann gá fyrir sig sjálfan.“ „Nei,“ sagði sú gamla. Sú unga settist hjá mér á bekkinn og opnaði handtösku og tók upp úr henni sjálfblekung og blöð. „Ég þarf enga skýrslu,“ sagði ég. „Ég vil bara komast til Memphis. Ég þarf að komast þangað í dag.“ „Þarna sérðu,“ sagði lögreglan. Hann sagði það eins og honum væri ánægja að því. „Þetta sagði ég þér.“ „Þér megið telja yður sleppa vel, Mrs Habersham,“ sagði vagnmiða- maðurinn. „Ég held ekki að hann sé með byssu á sér, en hnífinn opnar hann nógu djö. .. ., ég meina nógu fljótt fyrir hvern sem er.“ En sú gamla stóð bara kyrr og horfði á mig. „Það er nú svo,“ sagði hún. „Það er nú svo. Ég veit eiginlega ekki hvað gera skal.“ „Það veit ég,“ sagði vagnamaðurinn. „Ég ætla að gefa honum farmiða úr eigin vasa, sem varúðarráðstöfun fyrir hönd ferðafélagsins til að koma í veg fyrir blóðsút'hellingar og óeirðir. Og þegar Mr. Foote segir bæjar-

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.