Félagsbréf - 01.12.1960, Side 43

Félagsbréf - 01.12.1960, Side 43
Nokkrar vísur eftir Kristján Ólason Karl Kristjánsson, alþingismaSur, flutti í fyrravetur í útvarpinu þátt af lausavís- um eftir Kristján Ólason, skrifstofustjóra á Húsavík. ÁSur en K.K. hóf lestur vísnanna, gerSi hann svohljóSandi grein fyrir höfundinum: „Kristján Ólason er 65 ára. Hann cr náfrændi Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds. BáSir eru þeir komnir út af Hallbjarnar- staSa-Sveini GuSmundssyni, sem var merk- ur maSur og skáldmæltur vel. Kristján Fjallaskáld var 2. maSur frá Sveini, en Kristján Ólason 4. maSur. Náfrændi Kristjáns Ólasonar af sömu ætt var hinn heimsfrægd rithöfundur Jón Sveinsson, sem Nonna-bækurnar eru eftir. Kristján Ólason hefir ort mikiS af lausavísum, en orSiS þaS á í því sambandi líkt og mörgum aS skrifa þær ekki niSur til aS forSa þeim frá gleymsku. Fáum hefir hann líka sagt vísur sínar, því hann er tnaSur dulur. Þær heimtast þess vegna illa, þó aS eftir sé leitaS. Smalaminnig mannsins, sem íluttist á mölina. Aldrei máist minni úr morgunglaði kórínn. Eða hversu eftir skúr angaði viðarmórinn. Eftirmœli um hinn skjótráða. Þó að hann sé fallinn frá, fólkið ber í minni viðbrögð snögg og oftast á undan hugsuninni. Einstaka vísa hefir samt sloppiS frá honum, eins og fugl úr búri, flogiS viSa. Kristján er afar vandvirkur á kveSskap sinn, fágar liann, velur orS af nákvæmni og hnitmiSar líkingar. Tekst honum oft aS segja meira í einni ferskeytlu en ýmsum öSrum í löngu kvæSi. Skáldskapur hans svarar til verka listfengs gullsmiSs en ekki stórvirks múrarameistara. Og af þessu leiSir, aS vísur hans verSur aS skoSa meS nákvæmni eins og gripi í búS gull- smiSsins. Kristján er einn þeirra manna, sem sannar þaS, aS hin alþýSlega íþrótt lausa- vísnagerSin, er til svo mikils hæf, aS ein lítil ferskeytla getur, ef vel er á haldið, speglaS stóran heim mannlegra tilfinninga, skilnings og lífssanninda." Hér á eftir fara svo nokkrar vísur eftir Kristján Ólason. Hefir Karl Kristjánsson útvegað þær til birtingar í Félagsbréfum. Sláttumaður. Heldur urðu hey þín smá hér í þessu lífi, þrátt fyrir afbragðs lipran ljá í lyga- og bragðaþýfi. Hinir efnalausu. Aðdáun og undrun hafa aukið hjá mér jafnt og þétt, þeir, sem aldrei eru í vafa og alltaf vita, hvað er rétt.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.