Félagsbréf - 01.12.1960, Blaðsíða 58
56
FÉLAGSBRÉF
2.—3. ágúst Á[ rni] Johnsen51 settur sem býefógeti í Reykjavík og hér-
aðsdómari í Gullbringu- og Kjósarsýslu, með .... launum. Kom Lambert-
sen52 til Eyrarbakka.
4.—5. ágúst fréttist að 2 skip hefðu komið fyrir vestan, það annað til
kaupmanns Thorl(acíus) og hitt. .. ,53
6. ágúst hélt Mester Phelps ball í Klump54 allir selskapsbúnir ásamt
nálægum fyrirmönnum, var þar spisning og vel veitt.
8. ágúst sigldi það fyrrséðna Fregottskip55 inná Hafnarfjörð þá það í
millitíð hafði farið austur til Eyrarbakka, hvaraf kom ei hingað.
9. ágúst nokkrir officerar hvarvið Jörgensen af einhverri huldri orsök,
nema af grunsemi vera skyldi, lét á sér heyra óánægju yfir fólki hér, helzt
dönskum, með Kabalers omsnakken.56 Þá fekk Lambertsen skriflegt forboð
að víkja ei úr staðnum hér fyrren að austan komin væru Dokument hans
öll er skipinu meðkomu.
10. ágúst var það forboð upphafið og hann þar uppí rygti búinn.
12. ágúst var Símonsson stefndur af býfógeta fyrir launung á gneifans
korða og Geheinge, sem frá honum var tekið eftir Kriusts57 frásögn þar
um, að leynd þar væri. Hann var fríkenndur af réttinum fyrir víðara. Þann
dag fór Jörgensen til heimsóknar við stríðsskipsverjana í Hafnarfirði.
13. ágúst fór biskup og Jörgensen til að skoða skólann og gaf hans
Excellence Directioninni ordrur að gjöra Besigtelse yfir skólann.
14. ágúst kom orlogsskipið The Talbot, sem captainn Alexander Jones
er hæstráðandi á hingað, úr Hafnarfirði. Sama dags aftann, hélt Jörgensen
ball skipverjum hinum helztu og hér útvöldum persónum, er bezt voru
hæfir til að dansa.
15. ágúst eitt höndlunarskip frá Norður Ameríku að nafni Newtune &
Flovidence58 kom hér, hvörju á móti fór enska skipið Lettemarken, þó ei
lengra en útfyrir Örfarsey og þar var það að slaga þartil þetta kom svo
langt og svo og það fekk prajet59 það eftir það áður hafði skotið kring
skoti, en fyrst gekk hátur frá Lettemarken60 með kaptain og fleirum h
strax sem skipið var komið svo langt sem lóðsar eru vanir að vitja þeirra.