Félagsbréf - 01.12.1960, Page 77

Félagsbréf - 01.12.1960, Page 77
félagsbréf 75 'unpu hans, svo að hann varð að hjarg- ast við misjafnlega góða latínu eða túlk. Auðvitað er fléttað inn í dagbókina ymsu um náttúru landsins, sem þeir fó- lagar voru að kanna, en yfirgnæfandi er það, sem skiptir raunar meira máli fyrir nútímalesandann, nefnilega margvíslegar upplýsingar um einstaka menn og lands- -siði, séð með glöggu gestsauga dr. Hol- lands. Þeir félagar dvöldu alllengi í Revkjavík og nágrenni, og kynnist les- andi dagbókarinnar ýmsu um embættis- niannastéttina þar, sem þeir höfðu mest niök við, veizlum, dansleikjum, kirkjuat- höfnum, sjúkravitjunum og fleiru. Þá segir frá ferðunt þeirra um Borgarfjörð °g Snæfellsnes og loks um Suðurland austur að Hlíðarenda I Fljótshlíð. Þeir félagar áðu ætlð á kirkjustöðum og gisiu 'iðast I kirkjunum, sem munu hafa verið helittu hyggingarnar, þó að það gæti jafn- 'el hrngðið til beggja vona, en nálega alls staðar var þeim tekið með þeirri gest- nisni. sem fátækt fólk gat frekast sýnt. Höfundi dagbókarinnar eru ljósar binar niiklu mótsetningar, gott eðlisfar þjóðav- tnnar annars vegar og á binn bóginn getuleysi hennar, og afstaða hans til þjóð- arinnar *er í hvívetna vinsamleg, en les- andanum hlýtur að renna til rifja það astand, sem ríkti I landinu á þessum tíma, þó að stundum sé það í frásögninni nán- ast grátbroslegt, til dæmis þegar höfðingj arnir ríða fákum sínunt við eitt ístað. En þrátt fyrir allt finnur dr. Holland gull i nrörpu fátæku breysi, líf, sem reynt er að hefja til virðingar við fádæma erfiðar °g niðurlægjandi kringumstæður. Ekki hefur þó dr. Holland getað eða viljað skilja suma beztu menn fslands, sem uppi voru á þessum tíma, þrátt fyrir skarpskyggni sína. A þetta einkum við um feðgana, Ólaf og Magnús Stephensen. 1 lýsingunni á þeim dregur dr. Holland svo mjög fram raupsemi þeirra og hé- gómaskap, einkum Magnúsar, að hinir miklu kostir hverfa unt of í skuggann, þó að hann komizt ekki hjá að geta mtk- illar rausnarsemi þeirra feðga og afburða- gáfna og menntunar Magnúsar. Utgef- andi bendir raunar á i formála, að Magnús liafi líklega verið affluttur við þá félaga áður en þeir gátu mótað sér sjálfstæða skoðun á honurn. Þrátt fyrir allt hefur ísland tekið dr. Holland sterkum tökum, og það lýsir sér i því meðal annars, að hann tekst hingað ferð á hendur í elli sinni eftir langa og starfarika ævi til að endurnýja forn kynni, og er stuttur kafli um þá ferð prentaður aftan við dagbókina hans. Steindór Steindórsson yfirkennari hefur þýtt dagbókina og séð um útgáfu henn- ar. Er þýðing hans hin læsilegasta. Hann skrifar og ítarlegan formála um hina skozku leiðangursmenn og skýringar við ýmsa staði dagbókarinnar, sem auka gildi hennar. Þá er bókin einnig skreytt ágæt- um teikningum eftir þá félaga. Hefur Steindór lagt mikla alúð við þetta verk, enda er árangurinn sá, að bókin er mjög læsileg og aðgengileg almennum lesanda og veitir margvíslegar upplýsingar um menn og málefni á íslandi fyrir 150 árum. Andrés Björnsson.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.