Félagsbréf - 01.12.1960, Page 81

Félagsbréf - 01.12.1960, Page 81
FÉLAGSBRÉF 79 þursa til þess að flytja ólöglegan smygl- varning inneftir til Reykjavíkur. Gengur einfeldni hans gagnvart þessu fólki svo langt, aS lesandanum þykir brátt nóg um og missir alla þolinmæSi gagnvart söguhetj- unni. Veruleikagildi sögunnar fer meS öSrum orSum meira og minna út um þúf- ur og engu líkara en höfundurinn vilji iáta mann trúa því, aS hór hafi ekki veriS til maurapúkar, okrarar, braskarar og samvizkulaus illmenni fyrr en erlendur her fluttist hingaS til lands. Stíll sögu þessarar er mjög einfaldur í sniSum, nokkuS krappur og stuttaralegur. Hvergi bregSur fyrir brosi eSa kímni, og ekki er laust viS, aS höfundurinn sé hálf luntalegur og napur út í tilveruna, og aS sumu leyti á sagan aS vera þjóSfélags- adeila, sem þó missir marks, og ekki er hægt aS kvarta yfir því, aS Helga Jón skorti atvinnu og há laun hjá höfundi, þegar suSur kemur. Tilgangur Helga Jóns meS því aS flytja suSur úr litla sjávarþorpinu var sá aS vinna sér inn mikla peninga og eignast íbúS, svo aS hann geti tekiS barn þaS, sem hann átti meS ekkjunni GuSnýju, suSur til sín og kvongast, líklegast Siggu litlu, sem þá fengi einnig tækifæri til þess aS læra dans, eins og hún hefur þráS. Hann heldur því aftur til þorpsins aS sækja drenginn og stíga í vænginn viS Siggu, en GuSný bara hlær aS honum og segir, aS sig muni nú ekki mikiS um aS bæta á sig einum króanum enn, en Sigga veifar bonum glaSlega og gengur niSur- lút á brott frá honum. Þannig endar þá þessi stutta saga um manninn, sem steig ofan á höndina á sér, og getur maSur varla varist þeirri hugsun, aS hún fái tæplega risiS undir hinu langa og orS- margra nafni, sem höfundurinn hefur valiS henni. Þór'Sur Einarsson.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.