Félagsbréf - 01.03.1961, Síða 27
félagsbréf
17
Engel Eund og dr. Ferdinand Rauter
III.
Ef þið skylduð einhvern tíma koma inn í Reykjavíkur Apótek, á horn-
mu á Austurstræti og Pósthússtræti, skuluð þið líta á vegginn, þar sem er
skrá yfir eigendur þessa apóteks frá upphafi. Um langan tíma voru þeir
allir danskir. Þeir keyptu apótekið og komu hingað,. græddu talsvert fé,
seldu apótekið, fóru aftur til Danmerkur og keyptu þar annað o.s.frv.
Þeir voru hér gestir, og fáir muna nú eftir neinum þeirra.
Einn af þessum gestum hét Michael Lund og var hér á árunum 1899 til
1911. Hann var ungur maður, þegar hann kom hingað og er enn á lífi í
Danmörku. Hann þótti góður lyfsali og góður maður. Þau hjónin eignuð-
ust hér marga vini, en flestir þeirra eru nú úr sögunni og yngri kynslóð-
lrnar hafa varla heyrt þau nefnd. Samt urðu merkilegar afleiðingar af
tlvöl þeirra í Reykjavík. Systir frú Lund, fröken Georgia Hoff-Hansen,
trúlofaðist ungum íslenzkum stúdent, Sveini Björnssyni, og það atvikaðist