Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 28

Félagsbréf - 01.03.1961, Blaðsíða 28
18 FÉLAGSBRÉF svo, að hún varð fyrsta forsetafrú íslands. Og árið eftir að þau apótekara- hjónin settust að í gamla timburhúsinu, sem þá var Reykjavíkur Apótek og stendur enn við Austurvöll á horni Thorvaldsensstrætis og Kirkjustrætis, fæddist þeim dóttir, sem var skírð Engel og kölluð Gagga og ég hef verið að segja ykkur frá. Þó að þau apótekarahjónin lærðu bæði talsvert í islenzku, var þetta vitanlega danskt heimili. Þar var töluð danska, alltaf gert ráð fyrir að fara aftur til Danmerkur og Gagga var látin ganga í Landakotsskólann, þar sem mestallt var kennt á dönsku. Hún lærði samt íslenzku, af íslenzkum stúlkum, sem voru í húsinu, og af krökkum á sínu reki. Þau Henrik bróðir hennar, sem var tveimur árum yngri en hún og kallaður Dengsi, töluðu alltaf ís- lenzku sín á milli. Litlu stúlkunni í Apótekinu þótti ákaflega gaman að vera á íslandi, en henni hefði sjálfsagt þótt gaman að lifa, hvar sem hún hefði verið. Hún var stundum á sumrin á Eyrarbakka, kom einu sinni til Þingvalla, en sá annars ekkert af landinu nema það, sem sést úr Reykjavík og er reyndar ekki svo lítið. Og hún vissi í rauninni ekki um, hvað hún var að eignast, og því 'síður, hvað var að eignast hana, fyrr en hún var komin burtu. Þá urðu endurminningarnar frá Reykjavík henni mjög dýrmætar, bæði stórar og smáar, um Esjuna og öll fjöllin, um lambið, sem þau Dengsi höfðu fengið til að leika sér við eitt sumar, iþangað til það var allt í einu orðið svo stórt, að þau réðu ekkert við það, — um íslenzka matinn, sem henni hafði þótt svo góður, að hún gat ekki gleymt því, um stúlkurnar, sem höfðu verið á beimilinu, leiksystkinin og margt fleira. Þau Dengsi héldu áfram að tala íslenzku í Danmörku, meðan þau voru saman heima, og þau voru kölluð þar íslenzkir krakkar, eins og þau höfðu verið kölluð danskir krakkar í Reykjavík. Þau vildu ekki gleyma. En þegar þau stækk- uðu, var erfitt fyrir þau að finna orð fyrir hugsanir sínar, af því að þau kunnu ekki nema barnamál og höfðu engar íslenzkar bækur. Svo fór Dengsi að gleyma íslenzkunni, eftir að Gagga fór að heiman til að ganga í skóla, enda var hann yngri og kunni minna, þegar hann fór héðan. En þau syst- kinin hafa alltaf verið dálítið feimin að tala dönsku hvort við annað. Gagga gekk í menntaskóla og varð stúdent 19 ára gömul. Þá fékk hún að fara heim til Islands í kynnisför til móðursystur sinnar. Skipið fór norður fyrir land. Það kom upp að norðausturströndinni í svartaþoku. Gagga stóð uppi á þilfari og mændi í áttina til lands, en sá' ekkert. „Hvaða hljóð var þetta?“ spurði hún einn samferðamanninn. „Það er kýr að baula
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.