Félagsbréf - 01.10.1962, Side 15

Félagsbréf - 01.10.1962, Side 15
FÉLAGSBRÉF 11 sjálfu sér, og það er Halldóri flestum mönnum ljósara. Hann sagði fyrir tólf árum (í ræðu á listamannaþingi'), „að jafnvel fjandsamlegustu á- rásir óvinveittra aðila séu listamönnum hollari en hól og lofdýrð. Allar þær staðhæfíngar sem gera listamanninn ánægðan og segja að nú sé hann búinn að ná markinu, eru vondar. Hann er aldrei búinn að ná markinu, einginn listamaður er búinn að ná markinu.“ Halldór liefur líka oftast með einhverjum hætti leitað á ný mið með hverju verki, um menn og atburði, stað eða tíma, stíl og svip. Hann hefur jafnvel nýlega farið að glíma við eitt hið erfiðasta listform, sem hann hafði lítt gefið sig að áður — hefur til þess þrek og þor að setjast svo að segja á skólabekk á skáldaþingi, ekki til þess að apa eftir öðrum, lieldur til þess að þreyta afl sitt á breyttum vettvangi í leit að nýjum skáídskaparháttum. Hann hefur aldrei valið sér auðveldasta eða áhættuminnsta úrræðið. Og hann getur nú, þrátt fyrir alla ögun, orðið öfgafyllri og ærslafengnari en áður, þegar hann lítur leiksviðið ferskri sjón fullorðinsaugna. Hér eru engin stirðnuð skylduverk. Það, sem brot- ið kann að vera gegn listinni, er fremur í ætt við æskubrek en elliglöp. Þannig stendur Halldór á sextugu. Meðan svo er, þarf varla að óttast, að þrjóti það innra vaxtarmagn, sem eitt getur skapað miklar bók- menntir. Eg kann ekki að flytja Halldóri Laxness betri óskir á þessum af- mælisdegi en þær, að hjá honum megi sem lengst etja kappi nýjunga- girnin og hefðin, djörfung og sjálfsagi, sköpunaraflið og íþróttahugur- tnn. Af þeim skautum megi framvegis sem hingað til kvikna list hans, bókmenntirnar — skáldskapurinn, „þessi andi (sem) var kvikan í lífi þjóðarinnar gegnum alla söguna, og það er hann sem hefur gert þetta fátæka eyland hér vestur í hafinu að stórþjóð og heimsveldi og ósigr- andi jaðri heimsins. Streingirnir fimm á hörpu skáldsins, það voru streingir gleðinnar, sorgarinnar, ástarinnar, hetjuskaparins og dauðans. Olafur Kárason Ljósvíkíngur. ... lét síðan fíngurgóma sína snerta fimm streingi hörpunnar í nafni allra fátækra alþýðuskálda sem uppi hafa verið á íslandi, og þakkaði skáldinu fyrir að hann skyldi liafa komið til sín akandi í gullinni reið. . . . yfir himinsundin.“

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.