Félagsbréf - 01.10.1962, Blaðsíða 23

Félagsbréf - 01.10.1962, Blaðsíða 23
FÉLAGSBRÉF 19 Hann er ekki saklaus, sagði trúboðinn og skalf af geðshræringu. Hann braut kassann og enginn annar. Heyrirðu! sagði bílstjórinn. Ég gæti brotið þennan helvítis kassa frammi fyrir öllum heiminum. Sveinn, farðu og brjóttu hann! Nei, sagði konan. Vertu ekki alltaf að hrekkja og hvefsa. Syndir feðranna koma niður á börnunum, sagði trúboðinn. Við Harmagedon hildarleikinn? spurði bílstjórinn hæðnislega. Vertu ekkert að hæðast að því. Guð mun eyða jörðinni og öllum ranglát- um, sagði trúboðinn lágt og með áherzlu. Maður getur svosem búizt við öllu í þessum heimi, — eftir öll þessi stríð og ósköp -—- og vonzku mannanna. En í hreinskilni sagt, heldurðu að verði heimsendir? spurði konan. Ég hef spáð því. Trúboðinn var drjúgur í röddinni. Bílstjórinn hló og sötraði kaffið úr bollanum. Hann sagði: Spá og spá. Allir geta spáð út í loftið. Það er bara fuglaspá. Við þessa athugasemd sína skellihló hann og barði í borðið. Ég vil að komi heimsendir, vegna þess að ég hef spáð því. Mitt trúarfélag hefur spáð því sama. Slíkt skal reynast sannleikur. Bílstjórinn hló nú svo að kaffið frussaðist út úr honum yfir borðið. Konan horfði stöðugt á trúboðann. Unglingurinn horfði einnig á hann með galopnum augum og gleymdi að bryðja molann. Konan seildist eftir tusku og þurrkaði kaffisletturnar af borðinu. Hún sagði við unglinginn: Bryddu molann svo hann hrökki ekki ofan í þig. Jæja, sagði bílstjórinn og jafnaði sig. Hann sneri sér að konunni og mælti. Ég man ekki betur en þú segðir að trúarfélag hans væri ekki til lengur, eftir að þú fannst þennan fræga pening. Það veit ég ekkert um, svaraði konan. Ég skil ósköp vel að fólk vilji láta spádóma sína koma fram. Það er bæði mannlegt og skiljanlegt. Ég á samt erfitt með að sætta mig við algeran heimsendi. 0, hann verður, sagði trúboðinn. Engum verður hlíft. Ég nenni ekki þessari vitleysu, sagði bílstjórinn allt í einu og reis upp frá borðinu. Þú hefur ekki einu sinni frið til að drekka kaffið þitt, sagði konan. Hvað liggur þér á út í þetta hundaveður? Ætlar þú að keyra bíl sláturfélagsins? spurði bílstjórinn. Það er eins gott að koma því í sláturhúsið áður en Harmagedon hildarleikurinn skellur á. Um leið var hann rokinn út og hafði skellt á eftir sér hurðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.