Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 33

Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 33
SVEINN EINAPSSON' Helgríma og lystigarður Um smnska skáldið H/almar Gullberg. I. Miðjarðarhafið. Uppspretta æskunnar. Vagga Venusar, gröf Saffóar. Úti við eyjar blár gnæfa rústir Poseidonhofs- ins. Nú er ekki lengur fagnað eða syrgt við fórnarstall sjávarguðsins. Níu sólviðraðar marmarasúlur standa til minningar um sögu hans. í slíku umhverfi hittum við oft fyr- ir sænska skáldið Hjalmar Gullberg. Rústir finnur þú hvarvetna í heimin- um, en engin er þessari lík að fegurð. Og steinninn fær mál, súlnaröðin verð- ur að hörpu, sem leikur hið eilífa lag hafsins. En skáldinu er ekki nóg að hlýða á hljóm liðinnar eilífðar: Megi þitt verk, frá morgni að kveldi mannlifs í vanda um farnað sinn, ljóma við himin liðins tíma löngu eftir þig og guðdóm þinn! Skáldið sem svo kveður er fagur- keri, og hann er húmanisti. Það er menntamaður sem kveður, lærður vel í grísku og goðafræði, hinn klassiski menningararlur er honum lifandi verðmæti. Hann efast ekki um, að vist hans hérla er tímabundin og jafnvel guðinn kann að vera forgengilegur, kjarni menningar og listar fyrri tíma blífur endurskapaður í andans verk- um síðari tíma. — Þetta er ekki Hjalm- ar Gullberg allur, langt í frá, en hér eru kennileiti í skáldheimi hans. Það er sennilega fróðlegt fyrir sál- fræðinga, sem fjalla um áhrif erfða og umhverfis, að rannsaka feril og mótun Gullbergs. Hann er fæddur í Malmö á annan dag hvítasunnu 1898. Faðirinn var fésýslumaður, móðirin sögð tónelsk; afi hennar var Jóhann Magnússon bóndi, sem smíðaði 23 orgel handa Vaxjö-hreppi. Um þennan langafa sinn yrkir Gullberg síðar: Don sum bygger en orgel át Gud láter sin gárd förfalla. I frammande stift fann dcn mángkunnige bondens áttlingar sin utkomst. Av hans orgelverk finns nágra i beháll efter hundra ár. Ett spelar i mig. Örlög höguðu því svo, að Hjalmar Gullberg ólst ekki upp hjá foreldrum sínum: honum er komið í fóstur hjá verkamannsfjölskyldu, og það er þeirra nafn, Gullberg, sem hann ber.

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.