Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 35

Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 35
FÉLAGSBRÉF 31 dómbær um dagsins vanda í draumsins veröld — og hljóti að launum örfárra oflof og óþökk hjá lýðsins mergð. Að því glögglega greindu, að Guð er án skyldna á móti, yfirlýsa aðiljar báðir sig ásátta um þessa gerð. En oftar er það að vera útvalinn — að vera útvalinn til þjáningar. Kross- inn verður tákn þjáningarinnar, sem heldur áfram að vera við lýði, og á krossinum á lausnarinn að hanga alla tíð, jörðin er í sífellu hausaskeljastað- ur. Dauðinn býr yfir frelsuninni. Dul- hyggja Gullbergs byggist þó ekki eingöngu á kristnum hugmyndum; hann var vel kunnugur nýplatonskum ritum, svo og austurlenzkri speki úr Baggavad Ghita: hið eina er ódauð- legt og óendanlegt, augað sér aðeins form þess breytast. Það býr í sumum kvæðum Gullbergs óendanleikakennd í ætt við þetta, en stundum tekur við- skilnaðurinn á sig persónulegt form eins og í kvæðinu um fatageymslu- manninn, sem tekur á móti yfirhöfn- unum: skilningarvitunum, sem hann setur í sitt hvert hólfið, meðan sálin sökkvir sér í andagt og bíður þess að verða leidd í bláhvelfdan salinn, þar sem við eigum loksins að mæta Guði. Kvæðið heitir Hanryckning, og hafði skáldið á því hvað mestar mætur af verkum sínum. En oftast er það þó fæðing Jesú og píslarsaga sem verður skáldinu að yrkisefni. Kvæðinu Aftansöngur lýkur Hjalmar Gullbcrg svo í íslenzkum búningi Magnúsar Ás- geirssonar: Sá æðri er legi og löndum og lífi, er anda dregur, við himinskaut í höndum vort hnattkorn 'vegur. Ilans IiöfuS leikur ljómi um af leifturstjarna glóð. En á hans gómum er gróm og blóð.... En það undarlega er, að þessi hlýi og einlægi tónn er ekki algengur í ljóðum skáldsins. Stíllinn er mótaður af tvísæi þess. Iðulega notar Gullberg kristnar táknmyndir í kveðskap, sem ekki verður kallaður annað en verald- legur, og iðulega notar skáldið verald-

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.