Félagsbréf - 01.10.1962, Side 48

Félagsbréf - 01.10.1962, Side 48
44 FÉLAGSBRfiF orða hans um tönn eins og hreinum viðhjóði“). Vant er að sjá hvað þessu valdi, en auðsén eru skil innblásins ljóðs og kaldhamraðs í þessu verki; og í öðru lagi athyglisvert að á svip- aðan hátt bilar Hannesi síðan kraftui- inn í öðru ljóði, Fæðingarhátíð naz- ismans. Þar virðist hann hafa allan efnivið í höndum í stórbrotna „menn- ingargagnrýni“ í ljóðformi, viðfangs- efnið er í hæsta máta tímabært og skiljanleg viðleitni Hannesar að fá þvi táknlegt gildi um menningarfeigð Vest- urlanda, — hvað sem svo líður rétt- mæti þessarar skoðunar sem slíkrar. En hér fer enn á sömu leið: þótt í þessu þunga stirðlega kvæði bregði fyrir bitrum og áleitnum myndum lán- ast Hannesi ekki að skapa því sann- færandi formheild, það þrúgast niður í ofstopafulla ringulreið; heildarsýn, heildargerð brestur og hávaði kvæðisins sannfærir sízt um alvöru og einlægni tilfinningarinnar, skoðunarinnar að kvæðisbaki. Hrollvekjan Mr. Dulles á sjúkrabeði er á hinn bóginn vottur þess að Hannesi getur tekizt að tjá tímaborið deiluefni í snjöllu, hnituðu formi. Þar stendur ógn atómaldar í tákni stjórnmálamanns og stjórnmála- maðurinn í gervi köngurlóar — hæfi- leg ógntákn á vorri öld: Allir þræðir koma saman í einn punkt og deyjandi hönd hans kreppist hægt um líf okkar allra. Hér lýtur myndsköpunin innblásinni hugsun skáldsins, og hann þarf ekki að grípa til stóryrða vegna aðvífaridi skoðunar; fyrir vikið tekst kvæðið. Sáma gildir um önnur fáguð smákvæði Hannesar í þessum flokki og þá eink- um Frá fjarlægu sjónarmiði skáld- skapar; en í öðrum „hlutlægari“, út- hverfum ljóðum orkar viðleitni hans meira tvímælis þótt óneitanlega sé hún athyglisverð. Þannig eru Líf meðfæri- legt eins og vindlakveikjarar og í hlindni jarðar haglega hugsuð og unn- in kvæði, bæði byggð um eina megin- líkingu eða mynd eins og reyndar flest ljóð þessa flokks, og höfða til hlutlægra, afmarkaðra viðfangsefna- Hið síðarnefnda (sem maður getur sagt að sé „um húsnæðismál“) er eink- um minnilegt; en eitthvað vantar þó: hugsun og innblástur falla hér ekki jafnljúflega saman og vert væri. Bezt er kannski Þjóðlíf, vert gaumgæfni fyrir hina „öfugu“ myndbyggingu sína, vor í teikni skelfingar; hér láta hugsun og skynjun betur hvort að öðru en víðast hvar annars staðar, skáldsýnin er öguð, en hún er ekki bara upptimbruð. Sem sagt: vandi og viðleitni Hann- esar Sigfússonar í Viðtölum og ein- tölum eru verð allrar gaumgæfni; ng þótt þessi ljóð auki honum ekki nýjan hróður eru þau virðingarverðar til* raunir að skapa sér nýjan ljóðstíl, beina Ijóðinu út á við. Áður og á öðrurn stað hefur Hannes beint gagnrýni samtímaskáldum sínum og boðað

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.