Félagsbréf - 01.10.1962, Page 50

Félagsbréf - 01.10.1962, Page 50
46 FÉLAGSBRÉF bezlu ljóðunum í Sprekum á eldinn sýnir hann enn fram á frumlega sívök- ula skáldgáfu sína, alvarlegan listræn- an vilja að efla og endurnýja ljóðmál sitt, finna list sinni stöðu hér og nú. Einhver kann að segja að sá aukni skáldlegi þroski sem þessi Ijóð votta sé eðlileg afleiðing af auknum póli- tískum „þroska“ skáldsins; og má svo vera, en það er þá einkamál Hannesar Sigfússonar: það eru ljóð hans sem skipta máli, ekki skoðanir, og gott ljóð stendur ævinlega utar og ofar hverri pólitískri kreddu. Hannes Sigfússon hefur um flesta hluti sérstöðu með íslenzkum nútíma- skáldum; og hann er sá sem einna lengst hefur. haldið í Ijóðbyltingunni, freistað endurnýjunar ljóðlistarinnar ytra og innra í senn af meiri smekkvísi og djörfung en flestir aðrir. (Ásamt honum ber að nefna Sigfús Daðason; það er gott dæmi þess hversu fjölbreyti- leg nútímaljóðlist okkar er og fjarri því að mynda „skóla“ hve gerólík- ur er skáldskapur þessara beggja til- raunamanna og samherja, og að hinu leyti hve lítil bein áhrif þeirra beggja hafa orðið á skáldskap yngri manna.) Ljóðmál yngstu skáldanna flestra er að sínu leyti miklu ljósara og einfald- ara að allri gerð, þeim er hin ytri formbylting sjálfgefin, en að öðru leyti virðist margur úr þessum hópi býsna óráðinn um stöðu og eðli listar sinn ar. Formvandi þessara ungu skálda er allur annar en eldri kynslóðar „formbyltingarskáldanna“: óþarft er að gera „uppreisn“ með brauki og bramli gegn „hefð“ sem raunverulega er oltin úr sessi. Vandi þessara skálda verður að efla ljóði sínu, hinu frjálsa nútímaljóði á íslenzku, nýtt og sjálf- stætt form; ný ljóðskynjun þarf nýtt og ferskt ljóðmál, og sjálf skynjunin getur bundizt af hefð ekki síður en hið ytra form ljóðsins. Einar Bragi er af formbyltingarkyn- slóðinni, en raunar nær byltingin býsna skammt í ljóðum hans, eins og glögg- lega birtist af Hreintjörnum, úrvali ljóða hans frá síðasta áratug. Einar hlítir hefðinni í mörgum eldri ljóðum sínum, yrkir slétt, ljóst og „fallega“ að góðum og gömlum sið, áður en hann tekur til að efla sér nútímalegra form. Og í seinni ljóðunum beitir hann gjarna stuðlasetningu, og fer það vel; hin formþrengri ljóð hans eru að jafn- aði betri en prósaljóðin. Yngri ljóð Einars Braga eru mörg falleg í ná- kvæmlega sama skilningi og hin eldri og formbundnu, en óneitanlega er skynjun þeirra fersklegri og umsvifa- lausari skírskotun þeirra — þegar bezt tekst til. En beztu ljóð hans eru öll af einum toga, uppistaða þeirra allra lífsást, hógvær kærleikur til moldar, konu, barns: Eg elska konuna nakta með næturgala í augum, nývaknaða angandi lilju laugaSa hvitri morgunsól,

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.