Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 54

Félagsbréf - 01.10.1962, Síða 54
50 FÉLAGSBRÉF um heimi, efla það nýrri kynngi og halda þó um leið lifandi og frjósöm- um tengslum við það líf sem lifað er umhverfis þá, við arf málfars og bók- menningar. Sérstaða Þorsteins er að þessi vandi er ljóði hans nákomnari en öðrum skáldum; hróður hans hve alvarleg og djarfleg er viðleitni hans að sigra vandann, að efla ljóð sitt á grundvelli hans. Staðfastari einfaldleiki, ríkari ná- kvæmni í ljóðmáli, nákvæmari ögun málfars og mynda, þessi virðast megin- einkenni á ljóðstíl Þorsteins í Lifandi manna landi umfram fyrri ljóð hans. Honum hefur ekki orðið freisting að halda fram hinum hnitaða myndstíl beztu ljóðanna í Tannfé; hér er að- eins eitt af því tagi (Vegferð) og raunar perla sinnar tegundar. Hann freistast ekki heldur að skarta máli sínu, halda jrví fram til sýnis (eins og bar við í fyrri ljóðum hans) : orð- færi hans er hér fágaðra og nákomn- ara sjálfu ljóðinu. Allt vottar þetta styrk Þorsteins. En hinn íhuguli, innhverfi tónn þessara ljóða er-kunn- uglegur: Slaðu óhikað öskuna úr pípunni þinni og ef þú átt vanda til þess skaltu segja guðlaun fyrir kaffið og síðan álít ég hyggilegast að þú farir að kreika segir jafnvel við sjálfan þig: skyldi ég nú verða krafinn um dómgreind — það kynni að vera þér hollt; (Gesturinn) og þessi tónn er hér hófsamari, hugs- aðri og ríkari að skírskotun en fyrr. Viðhorf skáldsins einkennast ekki sízt af varfærni („skyldi ég nú verða kraf- inn um dómgreind?“) og vafa, staða skálds og manns er tvísýn og vandráð- in á þeirri öld sem þessi ljóð heyra; en engu að síður er ljóst að tíðinda er von, sú von eða óvon vakir að baki margra þessara ljóða og birtist í loka- kafla bókarinnar (Birta) í tóni ein- skærrar bjartsýni. Þó virðist jákvæð feginsleg kveðandi a.m.k. að svo komnu ekki eiginlegust Þorsteini; ljóð hans eru fyllst, einlægust og heilleg- ust í fyrri hlutum bókarinnar (Veg- ferð; Að bíða eftir fregn) þar sem „flest er vafanum háð“. En einnig að baki þessara ljóða vakir alvarleg, hóf- stillt bjartsýni; það viðhorf virðist höfundi einlægast og nákomnast: þannig er eitt víst; alltaf kemur eitt og eitt gott andlit a'ð hnýsast í ljósið. (1961) Þorsteinn frá Hamri er engan veg- inn fullmótaður eða fullráðinn höfund- ur, enda fráleitt að krefjast þess; en allur skáldskapur hans ber vitni ríkri ljóðgáfu og ekki síður afdráttarlausn listrænni samvizkusemi. „Burt — að nema tímann og drekka fjarskann“: þannig lýkur fyrsta ljóði bókarinnar; og þessi skáldstefna ásamt vinnu- hrögðum Þorsteins lýsir bezt stöðu hans. Hann er sízt taglhnýtingur

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.