Félagsbréf - 01.10.1965, Page 13

Félagsbréf - 01.10.1965, Page 13
AB - fréttir I síðasta Félagsbréfi var getið síðustu útgáfubóka ársins 1964, sem þá voru ýmist komnar út eða væntanlegar næstu mánuði. Allmargar bækur hafa bætzt við síðan, og verður sagt frá þeim hér á eftir. Þær hafa allar verið gefnar út á þessu ári. I næsta Félagsbréfi verður ýtarlegar getið þeirra útgáfubóka Al- tnentia bókafélagsins, sem út konia fyrir áramót. Mannþing eftir Indriða G. Þorsteinsson Mannþing er þriðja smásagnasafn Indriða G. Þorsteinssonar. I bókinni eru ellefu sögur, skrifaðar á síðustu árum, en átta ár eru nú síðan höfundurinn sendi frá sér annað smásagnasafn sitt. Indriði er tvímælalaust í hópi beztu smásagna- itöfunda okkar, en skáldsögur hans, 79 af stöðinni og Land og synir, vöktu á sínum tíma tnikla athygli og hlutu jafnt lof lesenda og gagnrýnenda. Þegar síðarnefnda sagan kom út í hitteðfyrra, þótti hún almennt ein merkasta skáld- saga íslenzk frá síðari árum. Indriði G. Þorsteinsson er tæplega fertugur að aldri, en verk hans hafa þegar skipað honum í fremstu röð sagnahöfunda okkar, °g má því vænta þess, að marga fýsi að kynna sér síðustu smásögur hans. Mann- þing var janúar-bók Almenna bókafélagsins í ár. Hún er 131 blaðsíða að stærð, prentuð í Víkingsprenti og bundin í Félagsbókbandinu. Kina eftir Loren Fessler Bókin um Kína eftir Loren Fessler er ellefta bókin í bókaflokknum Lönd og IJjóðir. Fjórar fyrstu bækurnar úr þessum vinsæla bókaflokki eru þegar upp- seldar og sumar hinna á þrotum. Eins og fyrri bækurnar um lönd og þjóðir, sem Almenna bókafélagið hefur gefið út, lýsir Kína hinu mikla ríki að fornu og nýju og er prýdd fjölmörgum myndum og uppdráttum. Fjallar bókin að hálfu FÉLAGSBRÉF 5

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.