Félagsbréf - 01.10.1965, Side 15

Félagsbréf - 01.10.1965, Side 15
veitt bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1964. Hún hefur komið út víða utn lönd og hvarvetna þótt bókmenntaviðhurður. Bókin fjallar um tvær litlar vinkonur, ellefu ára gamlar, Siss og Unn. Önnur þeirra deyr í uppliafi bókarinnar, en síðan fjallar skáldið um hughrifin, sem skapast af hinni undarlegu vináttu þeirra. 1 bókinni litast höfundurinn um í völundarhúsi einmanaleikans og fjallar um sálarlíf barnanna af miklum inni leik og innsæi. Klakahöllinn er 208 blaðsíður, prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum eftir brezka rithöfundinn John le Carré, öðru nafni David Cornwell, var maí-bók Almenna hókafélagsins. Áður en hún kom fyrst út hafði höfundurinn skrifað nokkrar bækur, en Njósnarinn sem kom inn úr kuldanum aflaði honum þegar í stað mikillar frægðar, er hún kom út fyrir tveimur árum. Eftir það var hókin nietsölubók mánuðum saman, bæði austan liafs og vestan og hefur nú verið gefin út á a.m.k. 14 tungumálum. Hefur hún hvarvetna hlotið mjög góða dóma °g þykir ein snjallasta og skemmtilegasta skáldsaga, sem skrifuð hefur verið uin njósnir í seinni tíð. Söguefnið er njósnir og gagnnjósnir stórveldanna á dögum kalda stríðsins og lýsing á sálarlífi þeirra, sem við þær fást. Gerist sagan aðal- lega í London og Vestur- og Austur-Berlín. Sögusviðinu kynntist höfundurinn, þegar hann var starfsmaður brezka utanríkisráðuneytisins. Páll Skúlason þýddi söguna, sem er 222 blaðsíður að stærð, prentuð í Prentsmiðju Jóns Helgasonar hf., en bundin í Sveinabókbandinu. Kanada eftir Brian Moore Tólfta bókin í bókaflokknum Lönd og þjóðir fjallar um Kanada, — eitt víð- lenda.sta ríki heims, þar sem húsett er fleira fólk af íslenzkum ættum en í nokkru bðru landi og sennilega fleira en í öllum öðrum löndum utan fslands samanlagt. f^ókin lýsir Kanada í máli og mvndum og bregður ljósi yfir kanadískt þjóðlíf °g sögu fyrr og nú frá ýmsum hliðum. Höfundurinn, Brian Moore, fæddist á Irlandi, en fluttist þaðan til Kanada 1948 og dvaldist þar síðan um ellefu ára skeið, áður en hann fluttist til Bandaríkjanna. Var hann þá blaðamaður í Mont- real, ferðaðist mikið um landið og ritaði margar greinar um Kanada fyrir blöð °g tímarit, en hann er einnig kunnur skáldsagnahöfundur. Egill Jónasson Star- félagsbréf 7

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.