Félagsbréf - 01.10.1965, Side 16
dal þýddi bókina um Kanada. Hún er 160 blaðsíður að stærð'. Lesmál bókar-
innar var sett í PrentsmiSjunni Odda lif., en aS öðru leyti var bókin unnin f
Veróna á Ítalíu. Kanada var bók mánaðarins í júní.
Raddir vorsins þagna eftir Rachel Carson
var júlí-bók AB. Höfundurinn, Rachel Carson, sem lézt í fyrra, var þekkt
víða um heim fyrir bækur sínar um náttúrufræðileg efni, en hún hafði stundað
háskólanám í dýrafræði og efnafræði, og þær greinar ásamt ritstörfum voru helztu
áhugamál hennar. Raddir vorsins þagna var síðasta bók hennar og vakti mikla
athygli, þegar hún kom út, en segja má, að hún fjalli að mestu um náttúruvernd
og veki til umhugsunar um hana. Bókina helgaði höfundurinn Albert Schweitzer,.
en þar vekur Carson athygli á hættunni, sem öllu lífi á jörðinni stafar af notkun
ýmiss konar eiturefna, t.d. skordýraeiturs, og bendir á, að menningarframfarir
tuttugustu aldarinnar hafi ekki aðeins gert okkur lífið hagkvæmara og heilsu-
betra, heldur einnig skapað okkur nýjar hættur og óþekktar, sem ráðast þurfí
gegn af mikilli einbeitni og gæta sín á. Prófessor Níels Dungal hefur ritað mn-
gangsorð að bókinni, og formáli hennar er eftir hinn heimskunna, brezka nátt-
úrufræðing, Julian Huxley. Bókina þýddi Gísli Ólafsson. Hún er 219 blaðsíður
að stærð, prentuð í Prentsmiðju Jóns Helgasonar hf., en bundin í Sveinabók-
bandinu.
12 konur eftir Svövu Jakobsdóttur
Þetta smásagnasafn er fyrsta bók Svövu, en áður hafa birzt smásögur eftir
hana í blöðum og tímaritum. Hún hefur stundað bókmenntanám í Bandaiíkj
unum og Svíþjóð.
Eins og nafn bókarinnar ber með sér, fjalla sögurnar, sem eru tólf að tóhu
um jafnmargar nútímakonur og vandamál þeirra og í sumum tilvikum bania
þeirra og spegla hugarheim þeirra og líf við ýmsar aðstæður. Sögurnar gerast
ekki allar í sama umhverfi, en þótt þær séu ekki efnislega samstæðar, mvnda
þær þó eins konar heild og hafa þá sérstöðu að vera skrifaðar af konu um kon
ur. Með 12 konum hefur Svava Jakobsdóttir sýnt ótvíræða rithöfundarhæfib ika
og skipað sér í hóp efnilegustu skáldkvenna okkar.
12 konur er 88 blaösíður að stærð, prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnai
fjarðar.
8 FÉLAGSBRÉF