Félagsbréf - 01.10.1965, Page 23

Félagsbréf - 01.10.1965, Page 23
fræðslu, sem væri með því sniði, að um leið og hún auðveldaði ungu fólki að skilja og nytfæra sér tæknilegar framfarir, væri hún vörn gegn því, að það fleygði sér í fang hlindrar efnis- hyggju og múgmennsku og mæti að engu þjóðlegar menningarerfðir. Sá fyrsti af þessum skólum var stofn- aður í Danmörku 1844, en fyrst upp úr miðri öldinni kom skriður á þessa fræðslustarfsemi, og hún náði síðan meiri og meiri vinsældum, ekki aðeins með Dönum, heldur líka Norðmönn- um og Svíum. Þá kom það og brátt á daginn víða um lönd, að forustu- mönnum verkalýðshreyfingarinnar þótti f>era nauðsyn til, að unga fólkið inn- an vébanda hennar fengi aðra og víð- tækari fræðslu um menningar- og þjóðfélagsmál en veitt var í skólum ríkisins, og svo var þá hafin mjög Vlrk fræðslustarfsemi á vegum samtak- anna, þar sem megináherzla var lögð a að leiðbeina nemendunum til sjálfs- bjargar um öflun þekkingar og þroska. II. Upphaf og þróun almenningsbókasafna. Fyrir áhrif upplýsingarstefnunnar 'oru þegar á 18. öld stofnuð félög crlendis, sem unnu að því að koma llPP bókasöfnum handa almenningi, en Sú starfsemi var dreifð, og félögin j°gnuðust út af. En nokkru fyrir miðja 19. öld var tekið að stofna til almenn- lngsbókasafna í Bandaríkjunum, og í ýmsum ríkjum þar vestra var stofnað til margra slíkra safna og komið á þau góðri og hagkvæmri skipan, og síðan urðu almenningsbókasöfn með hverjum áratugnum sem leið veiga- meiri og róttækari þáttur í allri menn- ingarlegri, félagslegri og tæknilegri framvindu í þessu mikla þjóðfélagi sjálfsbjargar og einstaklingsframtaks. Bæir, borgir, ýmis samtök, sjóðir, sem auðmenn hafa gefið — og síðast en ekki sízt margvísleg iðjuver kosta slík söfn þar vestra, og þykir gildi þeirra síður en svo hafa rýrnað þótt nú sé í Banda- ríkjunum kostur hinna fullkomnustu skóla, jafnt til almennrar fræðslu sem hvers konar sérnáms, og ekki þykja þau sízt mikilvæg á sviði tæknilegra fram- fara. Einn af hinum merkustu og víð- kunnustu iðjuhöldum Bandaríkjanna hefur sagt: „Um hagkvæma nýbreytni í ýmsum vinnubrögðum á ég meira að þakka hugvitssömum verkamönnum, sem hafa fengið tæknilega fræðslu með sjálfsnámi í almenningsbókasöfnum, heldur en nokkrum hinna hálærðu sér- fræðinga, sem ég hef í þjónustu minni.“ Bretar kynntust fljótlega starfsemi almenningsbókasafna í Bandaríkjunum og komu auga á gildi þeirra, og urðu þeir fyrstir til að setja lög um slík söfn. Á Norðurlöndum voru það einkum lýð- háskólamenn og síðan verkalýðsleið- togar, sem höfðu forustu um stofnun lestrarfélaga og almenningsbókasafna, en það var þó ekki fyrr en seint á 19. öldinni, sem bókasafnahreyfingin varð almenn á Norðurlöndum. En síðan — FÉLAGSBRÉF 15

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.