Félagsbréf - 01.10.1965, Page 25
menn þessara mála gera nú með frænd-
þjóðum okkar, vil ég láta þess getið,
að þeir telja bókhlöðu, sem hafi 700
fermetra gólfflöt lágmark þess, sem
nauðsynlegt sé í 5 þúsund manna
smáhæ. í tvö þúsund manna hæ, þarf
hlutfallslega mun meira rúm, en hlut-
fallslega minna, eftir þvi sem bærinn
er fjölmennari. í Eskilstuna í Svíþjóð
sá ég og skoðaði í fyrra allvandlega
nýreist almenningsbókasafn. f Eskil-
stuna búa 60 þúsund manns, svo að
borgin er nokkru minni en Reykjavík.
Gólfflötur hins nýja safns er 4200
fermetrar, en við það er byggt fjög-
urra hæða hús handa fræðsluhring-
unum í borginni, og gólfflötur hverrar
hæðar er 600 fermetrar. Þá hefur og
safnið tvo stóra, hagkvæma og glæsi-
lega bókabíla, og þannig er háttað, að
þeir geta ekið undir skjólþak við bak-
hlið bókhlöðunnar. Þar opnast hreiðar
dyr, og er gólfið í herherginu jafnhátt
gólfi bílsins, svo að unnt er að aka
hlöðnum bókavögnum inn í bílinn án
uokkurrar fyrirstöðu. — Svo hagkvæm
eru vinnuskilyrðin í þessu bókasafni,
uð þar eru aðeins sex bókaverðir í fullu
starfi og með alhliða þekkingu í bóka-
safnsfræðum. Annað starfsfólk vinnur
tímavinnu einhvern hluta dagsins við
störf, sem krefjast aðeins sérhæfðrar
æfingar og almennrar þekkingar.
Þá tel ég vert að láta þess getið, að
uiér er allvel kunnugt, hæði af viðtöl-
unt, bréfum og lestri, að frömuðir
fræðslunnar í hinum nýju og vanþró-
uðu ríkjum Afriku setja fyrst og fremst
traust sitt á almenningsbókasöfn. 1
þessum ríkjum er og verður um lang-
an aldur skortur á skólum og hæfum
kennurum, svo að markið er ekki
sett hærra en að kenna sem flestum
næstu ár og jafnvel áratugi að lesa og
skrifa og eitthvað í reikningi, en síðan
sé þeim beint til almenningsbókasafna,
þar sem þeir njóti leiðbeiningar og
örvunar um að afla sér frekari þekk-
ingar.
Reyndin er því sú, að jafnt í þeim
löndum, þar sem fræðsla og menning
er einna lengst á veg komin, og í hin-
uin vanþróuðu, þar sem meginhluti
íbúanna er ólæs, hinda menningar-
frömuðir mjög vonir sínar við mikil-
vægi almenningsbókasafna.
III.
Almenningsbókasöfn á íslandi til 1938.
Hér á íslandi var fyrsta almennings-
hókasafnið, Amtsbókasafnið á Akur-
eyri, stofnað árið 1828. Næst í röð-
inni mun hafa verið Bókasafn Flateyj-
ar framfarastiftunar, stofnað 1836,
og það þriðja Amtsbókasafnið í Stykk-
ishólmi, sem var stofnað 1847. Síðan
voru stofnuð lestrarfélög upp úr miðri
öldinni á nokkrum stöðum á landinu
— og fór þeim ört fjölgandi undir
aldamótin. Árið 1893 var Amtsbóka-
safnið á Seyðisfirði stofnað, en til-
gangurinn með stofnun amtsbókasafn-
anna var sá, að í öllum landshlutum
FÉLAGSBRÉF 17